Morgunblaðið - 21.07.2009, Blaðsíða 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2009
✝ Hildimundur Sæ-mundsson fæddist
í Landakoti, Bessa-
staðahreppi, þann 11.
júní 1936. Hann lést
þann 7. júlí 2009.
Foreldrar hans
voru Sæmundur Elías
Arngrímsson bóndi
og Steinhildur Sig-
urðardóttir. Alsyst-
kyni hans: Halldóra
Málfríður, Jóanna,
Sigurður Snæfell og
Arngrímur Berg-
mann. Uppeld-
isbræður: Guðjón J. Brynjólfsson
og Jóhannes E. Hjaltested. Hildi-
mundur kvæntist 17. nóv. 1955 Að-
Hjalti f. 10.6. 2005. Fyrir átti
Kristín með Kristni Arnarsyni Dís
Bjarney f. 28.9. 1990. Fyrir átti
Jón Unnar börnin Magnús Guð-
berg og Margréti Unni. (4) Sæ-
mundur f. 4.1. 1973. Sambýliskona
Nancy Rut Helgadóttir. Barn
þeirra Alexander Esra f. 14.3.
2006.
Hildimundur ólst upp í Landa-
koti. Hann lauk barnaskóla að
Bjarnastöðum og gagnfræðaprófi
frá Flensborgarskólanum í Hafn-
arfirði. Hann var lengst af bóndi
en var einnig bifreiðastjóri. Hann
var fyrst bifreiðarstjóri hjá Olíufé-
laginu, síðan hjá Grænmet-
isverslun landbúnaðarins og síðast
var hann ráðherrabílstjóri þar til
hann veiktist árið 1978 og var
bundinn í hjólastól alla tíð síðan.
Síðustu 12 árin dvaldi hann í
Sjálfsbjargarheimilinu að Hátúni
12.
Útför verður þriðjudaginn
21.júlí kl. 13 frá Breiðholtskirkju.
alheiði Sigurdísi
Steingrímsdóttur.
Aðalheiður er fædd
17. nóv. 1937. Eign-
uðust þau 4 börn: (1)
Steingrímur f. 13.2.
1956, (2) Steinhildur
fædd 29.1. 1960, gift
Leifi Eysteinssyni.
Börn þeirra; Guð-
mundur Örn f. 12.9.
1984, Heiðdís Ósk f.
8.3. 1988; unnusti
hennar Davíð Þór
Þorsteinsson, Elías
Steinn f. 20.4. 1992.
(3) Kristín f. 14.10. 1964, sambýlis-
maður hennar Jón Unnar Gunn-
steinsson, barn þeirra Gunnsteinn
Þau fara, þau hverfa eitt af öðru
Landakotssystkinin en gleymast
ekki. Þegar við hjónin fórum að
byggja okkar hús við Túngötu á
Álftanesi 1973 voru fjögur íbúðarhús
við götuna. Í hverju þeirra bjó systk-
ini frá Landakoti: Sæmundarbörn
með sínum fjölskyldum. En nú er
bara eitt eftir hér. Öll voru þau góðir
og hjálpfúsir grannar en mestar
verða minningarnar um yngsta bróð-
urinn, Hildimund Sæmundsson eða
Mumma í Laufási eins og margir köll-
uðu hann.
Hann varð bráðkvaddur 7. júlí sl. Á
næstu haustdögum verður 31 ár síðan
hann varð veikur og var þá talinn
kominn hans lokadagur. En hann
vaknaði. Vaknaði lamaður. Hann
hljóp aldrei aftur en sat í hjólastól.
Enginn veit um hæð öldufalda eða út
fyrir í sálu þessa þrekmikla manns
sem lostinn var svo þungum dómi.
En hann átti fádæma fjölskyldu,
eiginkonuna Aðalheiði og börnin fjög-
ur. Hann fylgdist með börnum sínum
vaxa úr grasi, tengdabörnum og afa-
börnum, sem styttu honum allan
þann tíma, sem þau gátu, bæði heima
og heiman. En nú er hann farinn.
Margs er að minnast, eitt er þó eins
og kvikmynd á tjaldi eða bara eins og
gerst hafi í gær. Þegar Mummi kom á
harðahlaupum upp götuna, tók eitt
hástökk yfir gaddavírsgirðinguna og
upp á tún, til að sinna kindum sínum.
Þannig viljum við muna hann, eins og
hann var fyrstu fimm árin okkar hér
við Túngötu.
Þökkum öll okkar kynni.
Álfhildur og Gunnar,
Túngötu 23, Álftanesi.
Bestu minningar um afa:
Húmorinn hans. Hvað hann var
fyndinn. Brosið hans. Hvað hann hló
skemmtilega. Var alltaf í góðu skapi.
Alltaf góður í spilum. Gott að tala við
hann. Var pabbi númer tvö. Hvað
hann kom fólki í gott skap. Algjör
prakkari. Alltaf gaman að vera í
kringum hann. Átti alltaf afa-nammi.
Afastelpur,
Dís Bjarney og Heiðdís Ósk.
Mummi eins og hann var ávallt
kallaður kom til búsetu á Sjálfsbjarg-
arheimilið árið 1995 og varð það hans
annað heimili. Hann fór þó reglulega
heim til eiginkonu sinnar á Álftanes
þar sem þau áttu sitt heimili saman.
Þrátt fyrir fötlun sína lagði Mummi
allt kapp á að vera sem mest sjálf-
bjarga og að hafa eitthvað fyrir
stafni. Hann var ávallt ljúfur í um-
gengni, nærgætinn og bar um-
hyggju fyrir öðru fólki.
Mumma þótti gaman að ferðast
og hvar sem hann kom á ferðum sín-
um skoðaði hann hvernig aðgengi
var fyrir fatlaða því honum var um-
hugað um að allir gætu komist ferða
sinna hindrunarlaust. Nú síðustu ár
sá Mummi um ferðasjóð íbúa í Há-
túni 12, en það var honum mikið
hugðarefni að sem flestir gætu
ferðast og var hann iðinn við að
safna í sjóðinn.
Daginn sem Mummi kvaddi var
hann á leið í sumarfrí með fjölskyldu
sinni. Ferðaáætlunin breyttist á síð-
ustu stundu. Nú er hann farinn í
ferðalagið mikla sem bíður okkar
allra.
Starfsfólk og íbúar Sjálfsbjargar-
heimilisins þakka Mumma fyrir
samfylgdina. Hans er sárt saknað.
Anna Njálsdóttir.
Hildimundur
Sæmundsson
✝ Katrín Ragn-arsdóttir fæddist í
Reykjavík 26. desem-
ber 1932.
Hún lést á dval-
arheimilinu Grund 13.
júlí sl. Foreldrar Katr-
ínar voru Ragnar Páls-
son, f. 3.5. 1899 á Ak-
ureyri, d. 2.10. 1973,
og Svava Benedikts-
dóttir, f. 6.6. 1912 á
Vallá á Kjalarnesi, d.
19.12. 1954. Fyrri mað-
ur Katrínar var Vil-
mundur Ingimarsson,
f. 1925, d. 1985. Börn þeirra eru
Svava, f. 8.6. 1950, og Anna Sigurlína,
f. 21.5. 1951. Kjörforeldrar Önnu Sig-
Gabríel Friðrik, f. 24.9. 2002, Rakel
Margrét, f. 7.5. 2006, Stefán Smári, f.
26.3. 2008, og óskírt stúlkubarn, f.
25.2. 2009. Svava átti fyrir drenginn
Guðmund Smára, f. 28.8. 1968, d. 1.3.
1996. Sambýliskona Bryndís Krist-
jánsdóttir, f. 21.3. 1972. Börn þeirra:
Brynjar Smári, f. 8.8. 1992, og Svava,
f. 4.6. 1994. 2) Anna Sigurlína, f. 21.5.
1951. Maki Jónas Hermannsson, f.
25.10. 1946. Börn þeirra a) Hermann,
f. 31.8. 1969, b)Karl, f. 14.6. 1975, c)
Ragnar, f. 25.7. 1978, og d) Jónas Val-
ur, f. 31.7. 1984.
Katrín og Guðmundur Nikulásson
eignuðust drenginn Markús Smára, f.
23.4. 1958, d. 14.11. 1964.
Systkini Katrínar voru Margrét, f.
1930, d. 2007, og Gunnar Benedikt, f.
1931, d. 1998.
Útför Katrínar fer fram frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 21. júlí og
hefst athöfnin kl. 13.
urlínu voru Karl Dav-
íðsson, f. 2.9. 1907, og
Elín Brynjólsdóttir, f.
7.10. 1911. Síðari maki
Katrínar var Guð-
mundur Nikulásson, f.
9.9. 1930, d. 30.3. 2007.
1) Svava Guðmunds-
dóttir, f. 8.6. 1950,
maki Friðrik Bridde, f.
31.8. 1951. Börn þeirra
a) Anna Margrét, f. 5.3.
1972, maki Elvar Birg-
isson, f. 10.3. 1972.
Börn þeirra María
Dögg, f. 30.6. 1994,
Friðrik Már, f. 23.8. 2004, og Elín
Gróa, f. 1.4. 2006. b) Katrín Dröfn
Bridde, f. 14.4. 1981. Börn hennar
Mér er það ljúft að minnast
tengdamóður minnar sem nú hefur
kvatt þetta jarðneska líf.
Mér er efst í huga þakklæti fyrir
allt það sem hún hefur stutt mig til.
Katrín var alltaf kölluð Stella af
vinum og vandamönnum. Hún
stundaði nám á yngri árum í Hús-
mæðraskólanum að Löngumýri í
Skagafirði. Eftir námsdvöl þar lá
leiðin aftur til Reykjavíkur þar sem
hún fór að vinna og margt var það
sem Katrín tók sér fyrir hendur.
Hún naut þess að fá gesti til að
spjalla yfir góðum kaffibolla og eign-
aðist marga vini sem reyndust henni
vel allt til síðasta dags, þeirra á með-
al Lára, Steinunn og Sista. Ég
þekkti Katrínu í fjörutíu ár og
kynntist henni vel. Katrín var ekki
vön að tjá sig um sín vandamál en
var ávallt reiðubúin að hjálpa öðrum
Ung að árum giftist Katrín æskuást-
inni sinni Vilmundi Ingimarssyni og
átt með honum tvær dætur, þær
Svövu og Önnu Sigurlínu. Svo skildu
leiðir og hún stóð ein á báti með tvö
börn og hún tekur þá erfiðu ákvörð-
un að gefa frá sér yngra barn sitt til
dásamlegra hjóna, Elínar Brynjólfs-
dóttur og Karls Davíðssonar sem
reyndust Önnu ástríkir og góðir for-
eldrar. Þó mæðgurnar væru aðskild-
ar hélst alla tíð gott samband.
Katrín giftist síðari manni sínum,
Guðmundi Nikulássyni, sjómanni og
síðar bílstjóra í Reykjavík, 7. júní
1955. Katrín var lánsöm að kynnast
Guðmundi; hann gekk Svövu í föð-
urstað og gaf þeim mæðgum mikið
þó ekki hafi það verið af veraldlegum
auði heldur hafsjó af gleði, væntum-
þykju og ást. Þau Katrín og Guð-
mundur eignuðust soninn Markús
Smára, f. 23. apríl 1958. Síðar kom í
ljós að drengurinn var með ólækn-
andi sjúkdóm og hann lést aðeins 6
ára gamall. Annað áfall skall á Katr-
ínu þegar Guðmundur Smári barna-
barn hennar sem hún hafði alið frá
fæðingu lést 28 ára gamall. Katrín
bar mikla umhyggju fyrir velferð
Smára og gerði allt sem hún gat fyrir
hann. Þetta áfall markaði djúp spor í
sálu hennar og varð henni á orði:
„Nú er komið nóg“.
Á erfiðum stundum sem þessum
er gott að eiga góðan maka sem
hvetur mann áfram og huggar, það
gerði Guðmundur, hann var alltaf
tilbúinn að byggja konu sína upp og
reyna að gleðja hana á ýmsa lund.
Hann fór með Katrínu í ferðalög, og í
fyrstu voru það siglingar þegar tog-
arinn fór í sölutúra erlendis, svo með
fraktskipum. Einnig ferðuðust þau
mjög mikið innanlands.
Það var sama hvar þau voru og
hvernig sem viðraði, alls staðar leið
þeim vel því þau voru saman. Ég fór í
margar ferðir með þeim hjónum sem
eru mér ljóslifandi sökum þeirrar
gleði sem alltaf ríkti í návist þeirra.
Við fráfall Guðmundar missti
Katrín mikið og tók að draga hratt
úr þrótti og starfsgetu hennar. Hún
átti við veikindi að stríða síðari ár
ævi sinnar og Katrín var södd líf-
daga þegar hún andaðist á elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund. Þakka
ber öllum þeim sem stuðluðu að því
að láta henni líða sem best, hafið
þökk fyrir.
Ég kveð góða tengdamóður með
virðingu og þakklæti og bið góðan
Guð að varðveita hana.
Friðrik Bridde.
Katrín Ragnarsdóttir
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MÁLFRÍÐUR RANNVEIG OKTAVÍA
EINARSDÓTTIR
frá Lækjarbakka,
Tálknafirði,
lést á Hrafnistu að morgni laugardagsins 18. júlí.
Jarðarförin verður tilkynnt síðar.
Herbert Guðbrandsson,
Olga Herbertsdóttir, Ásgeir Kristinsson,
Jón Herbertsson,
Sævar Herbertsson, Dagný Bjarkadóttir,
Einar Herbertsson, Freyja Benediktsdóttir,
Ómar Herbertsson, Margrét Hermannsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SVAVA HANSDÓTTIR,
Hjallavegi 2,
Suðureyri, Súgandafirði,
andaðist aðfaranótt laugardagsins 18. júlí á
öldrunardeild Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði.
Útförin fer fram frá Suðureyrarkirkju föstudaginn 24. júlí kl. 14.00.
Valgeir Hallbjörnsson, Þóra Þórðardóttir,
Gísli Hallbjörnsson, Málfríður Skúladóttir,
Róbert Hallbjörnsson, Ósk Bára Bjarnadóttir,
Valgerður Hallbjörnsdóttir, Grétar Schmidt,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR
skáldkona frá Króki í Skagahreppi,
Austur-Húnavatnssýslu,
síðast til heimilis að Suðurgötu 17,
Sandgerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði föstudaginn 17. júlí.
Útför fer fram frá safnaðarheimilinu í Sandgerði föstudaginn 24. júlí
kl. 14.00.
Ingibjörg verður jarðsett í Hofskirkjugarði á Skagaströnd samdægurs.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á Hjálparstarf kirkjunnar, reikningsnúmer: 1150-26-27,
kt. 450670-0499.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐBJÖRG GUÐLAUGSDÓTTIR
frá Vík,
Grænumörk 5,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn
19. júlí. Útförin fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn
25. júlí kl. 14.00.
Ólafur Friðrik Ögmundsson,
Ögmundur Ólafsson, Helga Halldórsdóttir,
Alda Guðlaug Ólafsdóttir,
Lilja Guðrún Ólafsdóttir, Björn Friðriksson,
Erna Ólafsdóttir, Eyjólfur Sigurjónsson,
Guðlaugur Jón Ólafsson, Angela Rós Sveinbjörnsdóttir,
Baldur Ólafsson, Kristín Erna Leifsdóttir,
Halla Ólafsdóttir, Guðni Einarsson,
Jón Geir Ólafsson, Ólöf Ragna Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Okkar ástkæri
JÓN SVAVAR TRYGGVASON,
Hátúni 12,
Reykjavík,
andaðist laugardaginn 18. júlí á Landspítalanum í
Fossvogi.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. júlí
kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Sjálfsbjargarheimilið Hátúni.
Tryggvi Jónsson, Þórhildur Þorkelsdóttir,
Anna Jónsdóttir, Róbert F. Michelsen,
Elinborg Jónsdóttir, Brynhildur Freyja Tryggvadóttir.