Morgunblaðið - 21.07.2009, Page 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2009
Gunnar K.
Þorvaldsson
✝ Gunnar KristinnÞorvaldsson
fæddist 5.8. 1945 í
Lambhúskoti, Bisk-
upstungum. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 13. júlí sl.
Útför Gunnars fór fram frá Akureyr-
arkirkju mánudaginn 20. júlí síðastlið-
inn.
Meira: mbl.is/minningar
Sýnd veiði í bikarnum
Það var sýnd veiði en ekki gefin
þegar Suðurnesjamenn mættu til
keppni sl. fimmtudag í bikarnum.
Andstæðingarnir voru sveit Grant
Thornton og spilað í húsi Bridssam-
bandsins.
Suðurnesjamennirnir, sveit Ey-
þórs Jónssonar, tóku forystuna í
fyrsta leikhluta, 29-19, en töpuðu illa
öðrum hluta, 7-33. Staðan var því 36-
52 eftir fyrri leikinn.
Suðurnesjamenn unnu þriðja hlut-
ann með sex stigum og síðasta hlut-
ann vann Grant, 29-28, og þar með
leikinn, 110-99.
Þriðju umferð í bikarnum skal lok-
ið í síðasta lagi 9. ágúst.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Amma á Ytri-Tjörn-
um var kjölfestan í
ólgusjó æskunnar. Ég
var þar mörg sumur
sem barn og á þaðan einungis góðar
minningar. Það var ávallt með mik-
illi tilhlökkun sem ég hugsaði til
Þuríður Helga
Kristjánsdóttir
✝ Þuríður HelgaKristjánsdóttir
fæddist á Hellu á Ár-
skógsströnd 21. nóv-
ember 1915. Hún lést
á Kristnesspítala 2.
júlí sl.
Útför Þuríðar fór
fram frá Munkaþver-
árkirkju 16. júlí síð-
astliðinn.
ferða minna í sveitina
og móttökurnar voru
einatt þær sömu,
amma og afi knúsuðu
mig hvort með sínu
sérstaka lagi og buðu
mér að ganga í bæinn
og þá fannst mér ég
kominn heim. Ég veit
að öllum þeim sem
heimsóttu ömmu og
afa í sveitinni, í hvaða
erindagjörðum sem
var, leið eins. Hlýju
stafaði af ömmu í öllu
því sem að mér og
okkur hinum barnabörnunum laut.
Ég fann fyrir værðarlegu tímaleysi
nálægt henni en áttaði mig þó ekki á
því fyrr en seinna hvernig sú já-
kvæða orka virkaði. Þó sá ég
snemma þessi sígildu stef í hennar
háttum; hvernig hún af ótrúlegri
nægjusemi lét alla aðra ganga fyrir
áður en hún sinnti eigin þörfum,
hvernig hún nostraði við allt sem
hún tók sér fyrir hendur, hvernig
hún hallmælti ekki nokkrum manni,
heldur talaði ávallt af virðingu um
alla sem líf hennar snertu, hvernig
hún sýndi mér ávallt þolinmæði sem
ég þó átti ekki alltaf skilda og hvern-
ig þau spiluðu saman, amma Þuríður
og afi Baldur með þeirri ástúð og
virðingu sem endurspeglaði allt
þeirra líf.
Ég fann því snemma að amma bjó
yfir sérstökum kostum sem breytt-
ust ekki þótt tíminn liði en rannsak-
aði þó aldrei þessa tilfinningu frek-
ar. Amma var einfaldlega eitt af
stefjum lífsins sem var engum
breytingum undirorpið. Hún bjó yfir
tímaleysi sem svo einfalt er að taka
sem gefið. Það var ekki fyrr en ég
sjálfur varð pabbi að ég sá loks sam-
hengið. Í einni af ferðum okkar Sig-
nýjar í sveitina eftir að Snorri okkar
var fæddur man ég vel eftir atburði
sem tengdi tilfinningar mínar saman
við tímann. Við sátum við eldhús-
borðið ég og Signý, hún á bekknum
og ég í stólnum hans afa. Amma sat
eins og oftast, þegar hún var ekki á
þönum við að bera veitingar í fólk, á
stólnum við reykháfinn með bakið í
ofninn. Snorri var þarna hjá okkur.
Það var kvöld og hann var orðinn
þreyttur og ergilegur. Hún spurði
hann blíðlega hvort hann vildi ekki
setjast aðeins hjá henni, svona góð-
ur drengur. Svo raulaði hún fyrir
hann sama lagið, ruggaði sér í stóln-
um með sama takti og lék við hann
sömu leikina og hún hafði leikið við
mig í minni æsku þegar ég sat í
fangi hennar 30 árum áður. Það var
alltaf pláss í fanginu á ömmu. Ég
fylgdist með þeim saman og sá
hvernig Snorri sefaðist á augabragði
og ég fann fyrir sömu værðinni og
ég hafði fundið svo oft áður þótt ég
væri nú í öðru sæti. Það var þögn í
eldhúsinu á þessu fallega sumar-
kvöldi og ég fann loks fyrir hinu ei-
lífa andartaki; hinum tímalausa
streng kærleika og hlýju sem teygði
sig óbrotinn í gegnum líf ömmu og
yfir til okkar hinna sem lifum við
minninguna eftir að hún hefur kvatt.
Heimir Snorrason.
Fleiri minningargreinar um Þur-
íði Helgu Kristjánsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður, teng-
damóður, ömmu, langömmu og langalangömmu,
INGU VALBORGAR EINARSDÓTTUR,
Gullsmára 5,
Kópavogi.
Soffía Sveinsdóttir,
Sveinn M. Sveinsson, Auður E. Guðmundsdóttir,
Guðmundur G. Sveinsson,
Einar Sveinsson, Arnhild Mölnvik,
Sigurður V. Sveinsson, Sigríður Héðinsdóttir,
Þórlaug Sveinsdóttir, Guðmundur Friðjónsson,
barnabörn, barnabarnabörn,
barnabarnabarnabörn og makar þeirra.
✝
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu
okkur samúð og hlýhug og aðstoðuðu okkur vegna
andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, sonar, afa og bróður,
ÞÓRHALLS STEINGRÍMSSONAR
kaupmanns,
Sogavegi 158.
Þorgerður K. Halldórsdóttir,
Þóra Kristín Þórhallsdóttir, Árni Þór Steinarsson,
Rakel Ósk Þórhallsdóttir, Elmar Sigurðsson,
Berglind Björk Þórhallsdóttir, Sigurður Árnason,
Helga María Þórhallsdóttir, Ívar Daníelsson,
Þóra Kristín Kristjánsdóttir,
barnabörn og systkini.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
FLEMMING HOLM,
Hverafold 2,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 22. júlí kl. 13.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Jón Hólm, Gréta Jóhannsdóttir,
Jakob Hólm,
Jórunn G. Hólm,
Gunnar Hólm, Lise K. Sörensen,
Flemming Þór Hólm, Aðalheiður K. Jurado,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
HALLDÓRS M. ÓLAFSSONAR,
Sólvangi Hafnarfirði,
áður Hlíðarvegi 14,
Ísafirði.
Guðrún Halldórsdóttir, Hálfdán Hauksson,
Ólafur Á. Halldórsson, Valgerður G. Jónsdóttir,
Björg Sörensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
bróðir, mágur, afi og langafi,
BÖRKUR ÁKASON
frá Súðavík,
Sefgörðum 16,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
24. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna
er bent á Minningarsjóð um sjómenn frá Súðavík. Sjóðnum er ætlað
að standa straum af kostnaði við að reisa minnisvarða um sjómenn
sem hafa farist með bátum frá Súðavík. Reikningsnúmer sjóðsins er
130-05-60500, kt. 660509-0640.
Kristín M. Jónsdóttir,
Rósa Björk Barkardóttir, Haraldur Leifsson,
Birna Barkardóttir, Sigurður M. Sigurðsson,
Dóra Jóna Barkardóttir,
Heimir Barkarson, Patricia Barkarson,
Ásta Ákadóttir, Sigurður B. Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SIGURBJARGAR GÍSLADÓTTUR,
Birkihvammi 12,
Kópavogi.
Þorkell Jónsson,
Kristín Þorkelsdóttir, Helgi Óskar Óskarsson,
Jón Gísli Þorkelsson, María Höskuldsdóttir,
Guðjón Þorkelsson, Kristín Sigurðardóttir,
Árni Þorkelsson, Jakobína Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir,
tengdafaðir, bróðir og afi,
JÓN HALLGRÍMUR BJÖRNSSON
landslagsarkitekt,
kenndur við Alaska,
Ásgarði 125,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi
miðvikudaginn 15. júlí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 24. júlí klukkan 13.00.
Elín Þorsteinsdóttir,
Sigríður Lóa Jónsdóttir, Sigurður Ingi Ásgeirsson,
Gunnlaugur Björn Jónsson, Kristrún Jónsdóttir,
Ingibjörg Svala Jónsdóttir, Ólafur Ingólfsson,
Sigrún Jónsdóttir,
Björn Þór Jónsson,
Elísa Ólöf Guðmundsdóttir, Vignir Kristjánsson,
Þorsteinn Ágúst Ólafsson, Sandra Shobha Kumari,
Árni Björnsson
og barnabörn.
✝
Elsku sambýlismaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, stjúpfaðir, uppeldisfaðir, afi og langafi,
SVAVAR OTTESEN
prentari og fyrrverandi bókaútgefandi,
Gránufélagsgötu 16,
Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 18. júlí.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 24. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Jakobssjóð hjá KA.
Sóley Halldórsdóttir,
Sölvi H. Matthíasson,
Ásta Ottesen, Páll H. Jónsson,
Gunnlaug Ottesen, Friðrik Diego,
Þórhallur Ottesen, Margrét Jóhannsdóttir,
Kristín Ottesen, Sigmundur Ásgeirsson,
Vilhelm Ottesen,
Jón Vilberg Harðarson, Angkhana Sribang,
Rannveig Harðardóttir, Guðbjörn Guðjónsson,
Ottó Hörður Guðmundsson, Birna Jónsdóttir,
Sóley Magnúsdóttir, Sævar Örn Þorsteinsson,
Halldór Magnússon,
Ása Huldrún Magnúsdóttir, Gunnar Arason,
barnabörn og barnabarnabörn.