Morgunblaðið - 21.07.2009, Page 29
Menning 29FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2009
Í gær tilkynnti útvarpsmað-
urinn Ómar Eyþórsson félögum
sínum á Fésbókinni að hann legði
sig fram við að vera „John Peel X-
sins“. Sá frægi útvarpsmaður BBC
var þekktur fyrir að kynna hlust-
endum sínum fyrir nýrri og
áhugaverði tónlist. Dr. Gunni nýtti
þá tækifærið og skaut því að hon-
um að þá væri nú best að henda
playlista stöðvarinnar út um
gluggann.
Þó rokkfyllt lagaval X-sins þyki
á köflum ágætt eru þessi skrif á
Fésbókinni til marks um minnk-
andi áhuga tónlistargrúskrara á
stöðinni. X-ið er kynnt daglega í
stiklum á stöðinni sjálfri sem upp-
hafspunktur íslensks rokkútvarps.
En flestir eru auðvitað búnir að
gleyma því að þegar X-ið byrjaði
var höfuðáherslan aldrei á rokkið,
heldur á alla þá tónlist sem ekki
var leikin alls staðar annars stað-
ar. Sem sagt, X-ið var áður fyrr
mun nærri hugmyndafræði John
Peel en hún er í dag, en nokkuð
víst þykir að sá frækni útvarps-
maður hefði aldrei sætt sig við að
þurfa að fara eftir lagavali frá
forritaðri tölvu.
Dr. Gunni skýtur
á X-ið á Fésbókinni
Fólk
Art (MoMa) í New York og var skipaður af Hvíta
húsinu í starf hæstráðanda WPA/Federal Art Proj-
ectm, hvers starf var að styðja við bakið á sveltandi
listamönnum í kreppunni miklu. Hann lést í Banda-
ríkjunum árið 1960.
Hans Kristján hefur legið yfir æviferli Cahills und-
anfarin ár og er myndin afrakstur yfirlegunnar. Í
myndinni má meðan annars sjá viðtöl við einkabarn
Cahills, dótturina Jane Ann.
Myndin er bæði á ensku og íslensku og hefur auk
þess enskan texta. Hún er tæp klukkustund. Frá
torfbæ á forsíðu Time verður sýnd á kvikmyndahá-
tíð í Manitoba í Kanada síðar í mánuðinum.
Myndin fæst m.a. í Smekkleysu og 12 tónum hér á
landi og kostar um 3.000 krónur.
birta@mbl.is
Frá torfbæ á forsíðu Time
Time Holger Cahill á
forsíðunni.
SVEINN Kristján Bjarnason er kannski ekki mörg-
um Íslendingum kunnur en hann mun þó vera eini
landsmaðurinn sem birst hefur á forsíðu tímaritsins
Time. Hans Kristján Árnason hefur nú gert
heimildarmynd um Svein Kristján, sem tók upp nafn-
ið Holger Cahill síðar á ævinni, og er myndin nú
komin í sölu hérlendis.
Myndin nefnist From Turf Cottage to the Cover of
Time (Frá torfbæ á forsíðu Time) og segir frá ævi
þessa merka manns, sem fæddist á Íslandi árið 1887.
Þegar hann var 27 ára breytti hann nafni sínu og hóf
farsælt starf í listakreðsum Bandaríkjanna. Hann
var meðal annars stjórnandi hjá Museum of Modern
Síðastliðinn laugardag var
Hinsegin kaupfélag opnað á Lauga-
vegi 28. Eins og nafnið gefur til
kynna er þarna um að ræða kaup-
félag sem tengist Hinsegin dögum,
sem fara fram í Reykjavík dagana
6. til 9. ágúst næstkomandi.
Í kaupfélaginu, sem er opið milli
klukkan 12 og 18 alla virka daga, er
hægt að fjárfesta í VIP-kortum,
Hinsegin bolum auk alls kyns hátíð-
arvarnings sem gefur lífinu lit.
Dagskrá Hinsegin daga liggur nú
fyrir á heimasíðunni www.gaypri-
de.is og kennir þar ýmissa grasa.
Að vanda verður hápunktinum svo
náð í Gleðigöngunni miklu þegar
tugir þúsunda safnast saman og
ganga niður Laugaveginn. Byrjað
er að taka við umsóknum um atriði
í göngunni á fyrrnefndri heima-
síðu.
Kaupfélag Hinsegin
daga á Laugavegi
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ tökum þátt í sumardjasshátíð,
og maður sér það á dagskránni að
það eru ansi þekktir einstaklingar
sem koma þar fram,“ segir gítarleik-
arinn Björn Thoroddsen sem fer
ásamt tríói sínu, Guitar Islancio, til
New York í dag, en þar mun það
spila á djasshátíð í Scandinavian
House á morgun. Jafnframt mun
tríóið kynna nýjan liðsmann sinn til
leiks. „Þetta er í fyrsta skipti sem
við komum fram með þessari nýju
liðskipan. Við höfum lítið spilað að
undanförnu en fengið töluvert af fyr-
irspurnum, sérstaklega að utan, og
ákváðum að slá til núna. Þannig að
við fengum þennan unga mann, gít-
arleikarann Hjört Steinarsson, til
liðs við okkur. Hann nær meðalaldr-
inum hressilega niður, enda ekki
nema 22 ára gamall,“ útskýrir
Björn, en þriðji liðsmaðurinn er
bassaleikarinn Jón Rafnsson. Þar
með bætist Hjörtur í hóp ekki
ómerkari manna en Gunnars Þórð-
arsonar, Guðmundar Péturssonar
og Þórðar Árnasonar sem allir hafa
spilað með Guitar Islancio.
En hvað ætlar tríóið að bjóða New
York-búum upp á á morgun? „Við
ætlum að spila norræn þjóðlög í
þessum djassútsetningum sem við
höfum verið að glíma við, en svo ætl-
um við líka að spila amerísk þjóðlög.
Þar sem við erum nú djassarar í eðli
okkar spilum við auðvitað eitthvað af
amerískum standördum,“ segir
Björn og bætir því við að tríóið muni
halda tónleika hér á landi í haust.
Meðalaldurinn lækkaður mikið
Morgunblaðið/ÞÖK
2/3 Jón Rafnsson og Björn Thoroddsen hafa fengið góðan liðsstyrk í hinum
22 ára gamla Hirti Steinarssyni, sem lækkar meðalaldur tríósins mikið.
Guitar Islancio
heldur tónleika í
New York
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
ÞAÐ er ótrúleg staðreynd að Þórhallur Sigurðs-
son, eða Laddi eins og við þekkjum hann öll, hef-
ur aldrei á sínum langa ferli farið með aðal-
hlutverk í kvikmynd. Þar verður breyting á í
haust þegar kvikmyndin Jóhannes kemur út en
tökum lauk á henni í síðustu viku. Um er að ræða
gamanmynd í leikstjórn Þorsteins Gunnars
Bjarnasonar eftir bókinni Andsælis á auðnuhjól-
inu eftir Helga Ingólfsson. Í myndinni leikur
Laddi miðaldra mann sem mótaði sjálfsmynd
sína fyrir áratugum og hefur ekki viljað breyta
henni síðan. Í myndinni skartar hann m.a. svo
glæsilegri mottu að hörðustu klámmyndaleik-
arar áttunda áratugarins hefðu kiknað í hjánum
við opinberunina. „Okkur fannst eðlilegt að
Laddi myndi leika þennan hrakfallabálk sem Jó-
hannes er en svo þegar við vorum lagðir af stað
áttuðum við okkur á því að hann hafði aldrei far-
ið með aðalhlutverk í kvikmynd áður,“ segir
Guðbrandur Örn Arnarson, meðframleiðandi
myndarinnar. „Hann hefur alltaf stolið senunni,
lent í því að leika aðalhlutverkið en aldrei verið
ráðinn í það. Eins og í Stellu í orlofi þá hefur
hann glitrað á skjánum.“
Guðbrandur segir persónu Ladda í myndinni
vera algjörlega nýja persónu og ólíka þeim er
gamanleikarinn hefur tekist á við áður. „Það má
eiginlega segja að þetta sé sú persóna sem er
næst því að vera Laddi sjálfur. Kannski heldur
einhver að þetta sé Laddi en það er gaman að
segja frá því að þegar við héldum partí eftir að
tökum lauk þá mætti hann sem persónan í næstu
mynd sem hann er að fara skjóta. Sú heitir Rok-
land og þar er hann allt önnur persóna. Þá var
hann búinn að losa sig við mottuna, lita á sér
hárið og fór endalaust með frasana af næstu per-
sónu. Jóhannes var horfinn. Laddi er svolítið
eins og Peter Sellers. Maður margra andlita en
ekki með neinn persónuleika sem hægt er að
kalla hans eigin.“
Í Jóhannesi leikur Laddi litlausan kennara
sem býr undir hæl tengdamóður sinnar og lendir
í ótrúlegum hremmingum á einum degi. Margir
góðir leikarar koma við sögu en þar má nefna
Stefán Karl Stefánsson, Stefán Hall, Herdísi Þor-
valdsdóttur, Guðrúnu Ásmundsdóttur, Halldór
Gylfason og Unni Birnu Vilhjálmsdóttur fegurð-
ardrottningu.
Loksins í aðalhlutverki
Tökum lokið á gamanmyndinni Jóhannes er frumsýnd verður í haust Fyrsta
kvikmyndin sem skartar Ladda í aðalhlutverki Gerð eftir bók Helga Ingólfssonar
Laddi með mottuna Hér má sjá hann í hlutverki Jóhannesar. Til vinstri má sjá þau Stefán Hall, Unni Birnu og Herdísi Þorvaldsdóttur í sínum hlutverkum.
Fréttir á SMS