Morgunblaðið - 08.08.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2009
Það er eins og seinheppni og lán-leysi þeirra sem völdust í skila-
nefndir föllnu bankanna þriggja,
sem nú eru ríkisbankar, ríði ekki
við einteyming. Augljóslega eru
mönnum mislagðar hendur, ekki
síst vegna þess að í kunningja- og
vinasamfélaginu gæta menn ekki
hófs og fara ekki með gát.
ÍDV í gær varumfjöllun um
að Lögfræðistofa
Reykjavíkur
hefði lagt fram
innheimtureikn-
ing upp á litlar
250 milljónir
króna vegna inn-
heimtu krafna á
hendur Exista.
Þar var einnig greint frá því aðLárentsínus Kristjánsson
hæstaréttarlögmaður, sem situr í
skilanefnd Landsbankans, væri
einn eigenda Lögfræðiskrifstofu
Reykjavíkur.
Skilanefnd Landsbankans sáástæðu í gær til þess að senda
frá sér yfirlýsingu þar sem greint
var frá því að Lárentsínus Krist-
jánsson hefði vikið sæti þegar skila-
nefndin tók til umfjöllunar ítar-
legan verksamning við
ónafngreindan lögmann hjá
Lögfræðistofu Reykjavíkur vegna
krafna á hendur Exista.
Er það nóg að Lárentsínus hafivikið sæti? Skipta eigenda-
tengsl skilanefndarmannsins við
Lögfræðistofu Reykjavíkur engu
máli? Eru það ekki einmitt svona
vinnubrögð sem kynda undir tor-
tryggni og vantrausti í garð þeirra
sem sitja í skilanefndunum?
Skilanefndarmenn, starfsmennFjármálaeftirlits, sérstaks sak-
sóknara og stjórnvöld verða að átta
sig á því að almenningur á Íslandi
lætur ekki lengur bjóða sér hvað
sem er. Þolinmæðin er á þrotum.
Lárentsínus
Kristjánsson
Seinheppni og lánleysi
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 14 skúrir Lúxemborg 29 heiðskírt Algarve 27 heiðskírt
Bolungarvík 14 skýjað Brussel 23 skýjað Madríd 32 heiðskírt
Akureyri 17 skýjað Dublin 18 skýjað Barcelona 27 léttskýjað
Egilsstaðir 16 léttskýjað Glasgow 18 léttskýjað Mallorca 28 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 alskýjað London 19 skýjað Róm 31 léttskýjað
Nuuk 13 skýjað París 24 léttskýjað Aþena 31 léttskýjað
Þórshöfn 13 skýjað Amsterdam 23 heiðskírt Winnipeg 16 skúrir
Ósló 24 heiðskírt Hamborg 29 heiðskírt Montreal 17 alskýjað
Kaupmannahöfn 24 heiðskírt Berlín 28 heiðskírt New York 24 léttskýjað
Stokkhólmur 24 heiðskírt Vín 28 léttskýjað Chicago 23 alskýjað
Helsinki 21 heiðskírt Moskva 16 skýjað Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
8. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 1.44 0,5 7.43 3,7 13.48 0,5 19.57 3,9 4:59 22:09
ÍSAFJÖRÐUR 3.50 0,3 9.36 2,0 15.49 0,4 21.47 2,2 4:46 22:32
SIGLUFJÖRÐUR 0.01 1,4 6.15 0,2 12.29 1,2 18.10 0,3 4:28 22:15
DJÚPIVOGUR 4.53 2,0 10.59 0,4 17.11 2,1 23.23 0,5 4:24 21:43
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag
Hægviðri og skúrir á víð og
dreif. Hiti 10 til 16 stig.
Á mánudag
Hæg austlæg eða breytileg átt
og stöku skúrir í flestum lands-
hlutum, en norðaustan 5-10
m/s og dálítil rigning sunn-
anlands um kvöldið. Fremur
milt í veðri.
Á þriðjudag og miðvikudag
Norðlæg átt og skúrir, en bjart
með köflum og síðdegisskúrir
SV-lands. Hiti 8 til 14 stig.
Á fimmtudag
Hægviðri og skúrir, þó síst NA-
lands. Hiti breytist lítið.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Skýjað með köflum og síðdeg-
isskúrir á Norðaustur- og Aust-
urlandi. Hiti 10 til 20 stig, hlýj-
ast á Norðausturlandi.
EINN stærsti lax sumarsins,
hrygna, veiddist í Breiðdalsá þann
8. júlí. Það var Þröstur Elliðason
sem fékk hann á spún við Gljúfra-
hyl. Segja má að þetta hafi verið
óvæntur fengur, enda var Þröstur
þar á silungsveiðum. Hrygnan var
ósködduð eftir löndun og var ætl-
unin að ná henni lifandi og nota til
klaks. Hún lifði hins vegar ekki bíl-
ferðina af og var því mæld og vigt-
uð. Reyndist hún vera sléttir 100
sentimetrar á lengd og tólf kíló.
Hún var feit og pattarleg, enda um-
málið 53 cm um kviðinn. Á með-
fylgjandi mynd sést erlend veiði-
kona halda á henni við veiðihúsið
Eyjar. Önnur 11 kílóa og 98 senti-
metra hrygna veiddist í ánni, í
Eyjakrókum þann 20. júlí og um
miðjan mánuðinn veiddist í Sveins-
hyl 101 cm löng hrygna sem var
gefið líf. 240 laxar hafa veiðst í ánni
í sumar. onundur@mbl.is
Risahrygnur veiðast
í Breiðdalsá í sumar
Ljósmynd/Þröstur Elliðason
JAFNRÉTTISSTOFA hefur gefið
út handbókina Jöfnum leikinn en
hún fjallar um kynjasamþættingu.
Í lögum um jafna stöðu og jafnan
rétt kvenna og karla nr. 10/2008 er
kveðið á um í 1. gr. að unnið skuli að
jafnrétti kynjanna hér á landi með
því að beita kynjasamþættingu.
Kynjasamþætting felur í sér að
spurt sé ákveðinna spurninga og
ákveðinni aðferðafræði beitt við alla
ákvarðanatöku og stefnumótun,
hvort sem um er að ræða stjórnvöld
eða atvinnulíf. Þróaðar hafa verið
ýmsar aðferðir, svo sem gátlistar og
greiningarmódel til að beita við
kynjasamþættingu. Handbókin er
mjög hagnýt við framkvæmd kynja-
samþættingar en í henni er farið í
gegnum skilvirk-
ar aðferðir auk
þess sem dæmi
eru gefin um ís-
lensk samþætt-
ingarverkefni.
Dæmin sýna
hvernig stuðla
má að auknum
gæðum í þjón-
ustu og öllum
starfsháttum stofnana og fyrirtækja
með jafnrétti að leiðarljósi.
Útgáfa handbókarinnar er hluti af
verkefninu Samstiga eða Side by
Side sem styrkt er af ESB. Bókina
má nálgast á vef Jafnréttisstofu,
jafnretti.is og á heimasíðunni
www.samstiga.is.
Leikurinn jafnaður
Kynjasamþætting lögbundin og útgangs-
punktur í nýrri bók Jafnréttisstofu
ÍSLANDSMÓT í siglingum kjölbáta
er haldið á Skerjafirði um helgina.
Fyrsta umferð fór fram í gær en
ætlunin er að sigla sex umferðir;
þrjár í dag en tvær á morgun.
Umsjón með mótinu hefur sigl-
ingafélagið Ýmis í Kópavogi en hægt
verður að fylgjast með siglingaköpp-
unum í nýrri og glæsilegri aðstöðu
félagsins við Naustavör í Kópavogi.
Til kjölbáta teljast bátar sem eru 7-
12 metrar á lengd, með áföstum kili.
Í áhöfn eru þrír til sjö, allt eftir
stærð bátsins. Skerjafjörður og
Fossvogur eru krefjandi sigl-
ingasvæði og því mun reyna á
kænsku og útsjónarsemi keppenda,
segir í tilkynningu.
Kjölbátar etja kappi á
Skerjafirði um helgina