Morgunblaðið - 08.08.2009, Side 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2009
✝ Jóhannes EsraIngólfsson (Esra í
Lukku) fæddist á Há-
steinsvegi 20 (Eyja-
hólum) í Vest-
mannaeyjum 7.
október 1948. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 23. júlí sl. For-
eldrar hans voru
Jóhanna Hjart-
ardóttir, f. 1911, d.
1998 og Ingólfur
Guðjónsson, f. 1913,
d. 1999. Bróðir Esra
er Hjörtur, f. 1945, kvæntur Mar-
gréti Helgadóttur, f. 1945. Börn
þeirra eru Jóhanna Inga, f. 1966,
Jónas, f. 1969 og Hjördís, f. 1978.
Esra kvæntist 14. apríl 1968
Báru Jóneyju Guðmundsdóttur, f.
1946. Foreldrar hennar voru Guð-
mundur Guðjónsson, f. 1911, d.
1969, og Jórunn Ingunn Guðjóns-
dóttir, f. 1910, d. 199. Esra og
Bára slitu samvistir. Börn þeirra
eru: 1) Ása Svanhvít, f. 1966, gift
Andrési Þorsteini Sigurðssyni, f.
1962. Synir þeirra eru Egill, f.
Eydís Tórshamar, f. 1973, unnusti
Þórarinn Ólason, f. 1963. Dætur
Eydísar af fyrra sambandi eru Ísa-
bella, f. 2000 og Saga, f. 2004. c)
Finnbogi Eyvindur Þorsteinsson, f.
1978.
Esra lauk iðnskólaprófi 1969 og
vann við plötu- og ketilsmíði í
Magna fram að gosi, 1973. Þá
starfaði Esra í Álverinu í Straums-
vík áður en hann flutti aftur til
Eyja eftir gos og vann þar að lagn-
ingu fyrir hitaveitu Vest-
mannaeyja. Esra stundaði sjó-
mennsku í mörg ár og starfaði
einnig sem kjötiðnaðarmaður og á
þeim tíma stofnaði hann og rak
fyrirtækið Kofareyking. Eftir
þetta fór hann aftur á sjó og vann
þar eins lengi og heilsan leyfði.
Esra var virkur meðlimur í veiði-
félagi Elliðaeyinga, var í Kirkju-
kór Landakirkju og meðlimur Gí-
deon-félagsins. Einnig starfaði
Esra í slökkviliði Vestmannaeyja í
mörg ár.
Esra verður jarðsunginn frá
Landakirkju í dag, 8. ágúst, og
hefst athöfnin kl. 14.
Meira: mbl.is/minningar
1986 og Hlynur, f.
1993. 2) Guðmundur
Ingi, f. 1973, kvæntur
Soffíu Baldursdóttur,
f. 1974, börn þeirra
eru Sylvía, f. 1992,
Alexander, f. 1996 og
Gabríel, f. 2002. 3)
Ingólfur, f. 1976,
kvæntur Fjólu Mar-
gréti Róbertsdóttur,
f. 1973. Synir þeirra
eru Jóhannes Esra, f.
2002 og Róbert Elí, f.
2005. 4) Bryndís, f.
1981.
Esra kvæntist 12. maí 2007 Guð-
nýju Önnu Tórshamar, f. 1953.
Foreldrar hennar voru Eyvind
Tórshamar, f. 1921, d. 1976. og
Jórunn Emilsdóttir Tórshamar, f.
1919, d. 1997. Dóttir þeirra er
Írena Dís, f. 1991, unnusti Marko
Manojlovic, f. 1989. Börn Guðnýjar
af fyrra sambandi eru a) Helgi
Tórshamar, f. 1971. Dóttir hans og
Kristínar Guðmundsdóttur, f.
1976, er Guðný Emilíana, f. 2002.
Dóttir Kristínar af fyrra sambandi
er Ása Elín Helgadóttir, f. 1991. b)
Ég sit hér dofinn vegna andláts
þíns. Veit ekki hvar ég á að byrja né
enda á þessari minningargrein um
þig, Esra minn. Þú og mamma kynnt-
ust fyrir um það bil 20 árum og eign-
uðust svo 1991 gullmolann ykkar
hana Írenu Dís. Eftir það gekkstu
mér, Eydísi og Bóbó í föðurstað. Fyr-
ir áttir þú 4 börn frá fyrra hjóna-
bandi.
Ég mun aldrei gleyma hversu
glaður þú varst þegar þið mamma
giftuð ykkur loksins 12. maí 2007 eft-
ir langa bið, enda betri konu gastu
ekki fundið þér. Hamingjusamari
mann hef ég aldrei séð enda sagðir
þú þegar athöfnina var lokið „Yes!“
með krepptum hnefa, þú varst eins
og unglingur sem hafði loksins unnið
fyrsta kossinn frá þeirri heittelskuðu.
Ég mun aldrei gleyma hversu op-
inn þú varst í samskiptum við aðra,
varst bara blátt áfram. Eitt orð er
sterkt í huga mér núna, það er orðið
„vinur“. Alltaf þegar við kvöddumst
og ég sagði við þig við sjáumst þá
sagðir þú alltaf „Já vinur“. Eða ef ég
hjálpaði þér við eitthvað þá sagðir þú
alltaf „takk vinur“ og svona má lengi
telja. Þetta orð lærði ég af þér og
nota það óspart í dag. Einnig varstu
tryggur þeim sem þér þótti vænt um,
þá sérstaklega fjölskylduna sem þér
var afar kær. Þú varst alltaf boðinn
og búinn að hjálpa til þegar til þín var
leitað.
Oft hringdir þú í okkur með engum
fyrirvara að bjóða okkur í mat, því
eldamennskan var eitt af því sem þú
dáðir. Eldhúsið var þitt pláss á heim-
ili ykkar mömmu enda varstu besti
kokkur sem ég hef hitt. Einnig varstu
afar barngóður.
Dætur mínar Ása Elín og Guðný
Emilíana og dætur hennar Eydísar
systir Ísabella og Saga komu til ykk-
ar nánast á hverjum degi til að hitta
afa Esra og ömmu Dinnu. Það verður
ekki það sama fyrir þær að koma
þangað núna þar sem þú ert ekki þar
til að knúsa þær, gefa þeim nammi
eða smá pening.
Þetta er mikill missir fyrir þær og
mat ég þessa hlið á þér afar mikils.
Það erfiðasta sem ég hef upplifað
var þegar við fjölskyldan vorum boð-
uð uppá spítala vegna veikinda þinna
til að kveðja þig. Að standa þarna og
horfa á þig, þennan glaðlynda mann,
liggjandi fársjúkan, án nokkurrar
hjálpar, var afar erfitt fyrir mig að
sætta mig við. Þetta var ekki sami
Esra sem ég þekkti. Þessum degi
mun ég aldrei gleyma.
Svona er hægt að halda lengi
áfram Esra minn, en það mikilvæg-
asta fyrir mig núna er að segja þér
sem mig skorti þor að segja þér með-
an þú varst á lífi. Ég elska þig, Esra
minn. Ég kveð þig með mikla sorg í
hjarta og söknuði með ljóði sem Jór-
unn amma samdi þegar hún var 12
ára
sem heitir Góðan dag, góða nótt.
Og vil ég þakka þér fyrir allt sem þú
gafst mér og mun ég geyma það í
hjarta mér.
Ylhýrt brosir barnsins auga,
berst að eyrum dularlag,
sólskinsbros í ljósi lauga
lífsins morgun, góðan dag.
Falla tár um föla vanga,
foldin grætur, allt er hljótt,
eftir ævi liðna langa
lokast augun, góða nótt.
(Jórunn E. Tórshamar.)
Sjáumst seinna, vinur.
Þinn fóstursonur
Helgi.
Jæja vinur.
Það er ekki mikið sem hægt er að
segja á svona stundu. Það er mikill
missir að þér og hvað ég sakna þín
mikið. Þú gekkst okkur systkinunum
í föðurstað og tókst okkur sem þínum
eigin þó að við værum hálfstálpuð og
flutt að heiman þegar þú og mamma
kynntust. Þú varst maðurinn í frakk-
anum, maðurinn í símanum og mað-
urinn með kærleikann, brosið og
glottið. Þú sagðist alltaf eiga 8 börn
þó að í raun ættir þú bara 5! Við hin
þrjú vorum bara bónus! Mikið var ég
stolt af því að fá að vera dóttir þín
þegar þú sagðist eiga mig, enda vor-
um við mjög lík á ýmsum sviðum. Við
vorum einu morgunhanarnir í fjöl-
skyldunni og drukkum oft kaffi sam-
an og spjölluðum áður en að ég fór í
vinnu. Þú varst stór partur af lífi okk-
ar mæðgna og ekki leið sá dagur að
við töluðum ekki saman. Þú varst
með barnshjarta, svo einlægur og
hjálpsamur enda sagðir þú oft að
nafnið þitt þýddi „hjálpari“ Það kom
mér því ekkert á óvart þegar ég
vaknaði einn júnímorgun og dró frá
stofuglugganum og þar stóðst þú úti
við skúrinn hjá mér að mála.
Oftar en ekki smalaðir þú krökk-
unum í bílinn og allir í ís og bíltúr. Þú
varst duglegur, Esra og enda varst
stoltur af vinnunni þinni og því sem
þú varst að gera. Þú hefur líka kennt
mér margt og eitt af því er að fyr-
irgefa. Ég þakka þér fyrir það og að
hafa átt þennan tíma með þér. Stelp-
urnar mínar sakna afa síns og við bú-
umst við að þú komir og bankir á
gluggann hjá okkur á morgunblaðs-
rúntinum þínum.
Það er tómarúm í tilveru okkar
sem erfitt er að fylla en við minnumst
þín með gleði og kærleika og við ætl-
um að halda minningu þinni þannig.
Þú varst góður maður, Esra og mér
finnst sárt að kveðja þig en ég óska
þess að nú líði þér vel.
Hvernig stóð á því
að loginn slokknaði svo fljótt
og kólguský dró fyrir sól?
Stórt er spurt, en svarafátt
stundum virðist allt svo kalt og grátt.
Þá er gott að ylja sér við minninganna
glóð,
lofa allt sem ljúfast var meðan á því stóð.
En það er ótrúlegt
hve vindur getur snúist alveg ofurskjótt.
Og svo er hljótt.
Allt sem var og allt sem er.
Eftirleiðis annar heimur hér.
Það er sagt að tíminn muni græða hjar-
tasár
en sársaukinn þó hverfur tæpast alveg
næstu ár.
Ó, þau sakna þín.
En þau þakka fyrir það að hafa fengið að
eiga með þér þetta líf.
Því fær enginn breytt sem orðið er.
Og öll við verðum yfirleitt að taka því
sem að ber að höndum hér.
Sama lögmálið hjá mér og þér
en það er gott að ylja sér við minning-
anna glóð
lofa allt sem ljúfast var meðan á því stóð.
Ó, þau sakna þín.
En þau þakka fyrir það að hafa fengið að
eiga með þér þetta líf.
(S. Hilmarsson.)
Kær kveðja, elsku vinur, við sökn-
um þín.
Eydís.
Þegar Gummi hringdi í okkur og
sagðir að þú hefðir verið fluttur til
Reykjavíkur með sjúkraflugi, hugs-
aði maður, nú er eitthvert bras á kall-
inum, aldrei hvarflaði að manni ann-
að en að þetta væri eitthvað sem þú
myndir verða fljótur að jafna þig á,
koma svo í heimsókn til okkar svona
rétt til að athuga hvort ekki vantaði
verkfæri í næsta verkefni, en það var
varla til það verkfæri sem þú áttir
ekki. Það er erfitt að sætta sig við að
raunveruleikinn er annar og þú far-
inn, mikið á ég eftir að sakna þín
Esra minn. Hugurinn leitar til baka
og minningarbrotin koma fram, eins
og þegar ég hitti þig fyrst, dóttirin
kom með kærastann heim í fyrsta
sinn, þú sprast á fætur úr sófanum og
tókst í höndina á mér, svolítið brugð-
ið. Þú áttir greinilega ekki von á
tengdasyni strax, en það varð um leið
mikil vinátta milli okkar og oft lágu
leiðir okkar saman. Það var gott að
leita til þín og þurfti það oft á fyrstu
búskaparárunum þegar við vorum
búin að kaupa hálfkarað hús, allt eftir
og ég kunni ekkert, það var gott að
geta endurgreitt greiðana og hjálpað
þér í seinni tíð, en þér þótti gaman að
laga og gera upp alltaf að smíða eitt-
hvað, og hugurinn strax kominn á
næsta verkefni, það má segja að þú
hafir verið alltaf á fullu, þess vegna
kom það ekki á óvart þegar þú sagðir
að læknarnir hefðu greint þig ofvirk-
an, það útskýrði ýmislegt. Það er
gaman að rifja upp þegar við vorum
saman á sjónum, ég orðinn skipstjóri
og þú kokkur hjá mér, ég man hvað
þú varst ánægður með að við skyld-
um róa saman, stoltur af tengdasyn-
inum, og hvað þú varst áhugasamur í
kokkaríinu alltaf að reyna að gera öll-
um til hæfis og tókst bara vel, en það
varst akkúrat þú, góðmennskan í
gegn og gaman að hugsa um aðra.
Mér er mjög minnisstæður síðasti
dagurinn þinn, ég að mála þakskegg-
ið og þú að halda stiganum, mikið
spjall eins og ávallt, ekki grunaði
mann að þetta væri okkar lokaverk
saman og síðasta spjall, það er svo
óvænt og erfitt að sætta sig við. Það
má segja um þig Esra minn að þú
hafir verið sérstakur og settir svip á
bæjarlífið, það eru ekki margir sem
þekkja ekki Esra í Lukku og margar
sögur hafa verið sagðar af þér þar
sem þú hafðir þá barnslegu trú að all-
ir væru góðir og þú trúðir engu
slæmu um náungann, það er alveg
klárt að þú verður lengi í minnum
hafður hérna.
Þinn vinur og tengdasonur,
Andrés Þorsteinn Sigurðsson.
Afi þú varst alltaf svo góður við
okkur, þú kenndir okkur margt, þú
hjálpaðir okkur með allt, og við þökk-
um þér fyrir allt sem þú hjálpaðir
okkur með og við munum alltaf muna
þig og elska þig.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með
tárum, hugsið ekki um dauðann með
harmi eða ótta.
Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar
snertir mig og kvelur, þótt látinn mig
haldið.
En þegar þið hlæið og syngið með glöð-
um hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóss-
ins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í
gleði ykkar yfir lífinu.
(Kahlil Gibran)
Alexander, Sylvía og Gabríel.
Elsku afi Esra, ég elska þig svo
mikið. Mér fannst svo fallegt þegar
þú og amma Dinna giftust loksins. Þú
horfðir í augu mín eins og sólargeisli
sem ég sakna svo mikið. Þú ætlaðir
að fara með mig til Danmerkur en
núna getum við það ekki.
Hjólið sem þú gafst mér var svo
fallegt.
Ég sakna þín svo mikið og mér er
illt í hjartanu að hafa þig ekki lengur
hjá mér, en samt ertu í hjarta mínu.
Bless afi Esra, ég gleymi þér aldr-
ei.
Guðný Emilíana.
Það er erfitt fyrir okkur að setjast
niður og skrifa um þig minningarorð
elsku Esra okkar. Margs er að minn-
ast þegar við rifjum upp allar góðu
stundirnar sem við höfum átt í öll
þessi ár. Við Magga áttum yndislegar
helgar með ykkur í maí sl. og svo aft-
ur í júlí sl. þegar við komum til Eyja
og gistum í húsbílnum fyrir utan hús-
ið ykkar Guðnýjar. Fyrri helgina sem
við komum átti ég afmæli og þið tók-
uð á móti okkur eins og við værum
kóngafólk og það var veislumatur í
hvert mál. Það var mikið spjallað og
hlegið þessar helgar og minningarn-
ar sem urðu til verða alltaf geymdar í
hjörtum okkar. Þið höfðuð verið að
endurgera húsið ykkar og þú sást til
þess að allt yrði í besta standi fyrst
við værum að koma til ykkar. Ferðin
sem við bræðurnir fórum á æskuslóð-
ir okkar upp í Lukku rifjaði upp
margar góðar minningar og það var
mikið hlegið. Eins er okkur minnis-
stætt þegar við vorum í Noregi og þið
Guðný og Írena Dís hittuð okkur og
við eyddum þar saman góðum dög-
um. Einnig eru margar minningarn-
ar um símtölin okkar, ég að siða þig
og þú að lesa yfir mér. Það er svo
skrýtið að geta ekki hringt í þig oftar.
Og ef Möggu langaði í lunda eða fisk
þá var nóg fyrir hana að hringja í þig
og þú sást um að þetta yrði sent með
næstu vél. Þú varst einhvern veginn
alltaf hjá okkur þó að fjarlægðin hafi
verið mikil. Þú varst svo góður við
alla og máttir ekkert aumt sjá. Ég
man þegar ég var að læra í Magna og
gömul kona kom og tíndi spýtur í
poka til að kynda heima hjá sér. Áður
en ég vissi af sást þú um að setja
spýturnar í poka og bera heim fyrir
gömlu konuna. Þetta lýsir þér svo
vel, þú réttir öllum hjálparhönd sem
hana vildu þiggja.
Elsku Esra okkar, mikið er þetta
óraunverulegt að þú sért búinn að
kveðja okkur. Við munum passa vel
upp á Guðnýju og börnin þín. Minn-
ingin um þig verður alltaf geymd í
hjörtum okkar.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(H.J.H.)
Þinn bróðir og mágkona,
Hjörtur og Margrét.
Elsku Esra frændi okkar, við
systkinin sitjum hér með trega og
rifjum upp allar góðu minningarnar
um þig. Hvert okkar á góða minningu
um þig og við upprifjun þessara
minninga eða stunda okkar saman þá
er stutt í tárin og einnig líka hlát-
urinn. Það var gott að hafa þig í
kringum okkur og vita af þér sem
litla og eina bróður hans pabba. Sím-
tölin þín til okkar eru óteljandi og er
hægt að segja að þú hafir verið teng-
ingin okkar við alla í Eyjum og í
gegnum þig fengum við fréttir af öll-
um. Það er skrýtið að hugsa til þess
að á sl. mánuði hittir þú okkur öll og
hafðir töluvert fyrir því að við mynd-
um hittast. Í hjarta okkar erum við
svo þakklát fyrir þig og allar sögurn-
ar sem þú sagðir okkur af ömmu, afa,
og pabba og mömmu, og skemmtileg
er sagan af brúðkaupsnóttinni hjá
pabba og mömmu þegar þú svafst á
bedda inni í herbergi hjá þeim á
sjálfri brúðkaupsnóttinni. Þú hafðir
alltaf svo gaman af því að segja okkur
sögur. Mikið þótti okkur vænt um að
þú skyldir koma og taka þátt í mik-
ilvægum dögum hjá okkur systkin-
unum og fjölskyldum okkar. Fyrir
það erum við ævinlega þakklát þér.
Þetta eru erfiðir tímar fyrir Guðnýju
og börnin ykkar, og elsku pabba og
mömmu, missir ykkar allra er mikill.
Við biðjum góðan Guð að styðja ykk-
ur og styrkja.
Jóhannes Esra Ingólfsson
AÐ SKRIFA MINNINGARGREIN
Sami skilafrestur er á greinum vegna útfara í kyrrþey.
Minningargreinar sem berast blaðinu innan tilskilins frests verða birtar
í blaðinu. Leitast verður við að birta þær á útfarardegi eða sem næst þeim
degi.Hvemargar greinar birtast í blaðinu á útfarardegi viðkomandi, ræðst
af stærð blaðsins hverju sinni.
Minningargreinar, sem berast eftir tilskilinn frest eða útfarardag,
verða eingöngu birtar á vefnum á www.mbl.is/minningar. Tilvísun á
vefslóðina verður í greinum eða æviágripi sem birtast í blaðinu.
Netgreinarnar eru öllum opnar.
Þeim, sem vilja fá birta minningargreinar í Morgunblaðinu,
er bent á að skilafrestur til birtingar í blaðinu er á hádegi
tveimur virkum dögum fyrir útfarardag, þ.e.:
Birtingardagur Skilatími
Mánudagsblað Hádegi föstudag
Þriðjudagsblað Hádegi föstudag
Miðvikudagsblað Hádegi mánudag
Fimmtudagsblað Hádegi þriðjudag
Föstudagsblað Hádegi miðvikudag
Laugardagsblað Hádegi fimmtudag