Morgunblaðið - 08.08.2009, Page 47

Morgunblaðið - 08.08.2009, Page 47
Menning 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2009 Í„Sextándu sónötu Svanhvítarí C-dúr fyrir sextán sítara“(sem er vitanlega rangnefniog einungis gáskafullur leikur að ofstuðlun) er rakin saga af stráki sem rekst á hóp úlpuklæddra ung- linga og fer með þeim á tónleika í Norðurkjallara MH. Það sem er svo undarlegt við þennan hóp er að allir sem honum tilheyra eru frábrugðnir öllum öðrum – en nákvæmlega eins innbyrðis. Allir í hópnum kyrja sem einn „við erum svo indie / við erum svo indiesleg“ – þeir lýsa sem sagt yfir sjálfstæði sínu og einstaklings- eðli (indie er stytting á independ- ent), allir á sama hátt – með sama laginu, íklæddir eins úlpum. Þessi þverstæða er beitt píla til indírokk- ara og krútta sem elta vitanlega tískusveiflur eins og hver annar, þeir sækja tískuna bara ekki á FM957 eða í Séð og heyrt, heldur á Pitchfork og Facehunter. Í týpískri póstmódernískri kald- hæðni er hljómsveitin <3 Svanhvít hins vegar langt í frá einstök – þau eru sjálf úlpuklæddu krakkarnir – og sveitin minnir ekki lítið á ýmsar vinsælar indípoppsveitir; Andhéri sálugi er þarna einhversstaðar og hin sænska I’m from Barcelona kemur upp í hugann þótt frum- burður Svanhvítar minni kannski mest á hina stórgóðu Los Campes- inos! frá Wales. Platan sú nefnist Partí á Ísland [sic] og er nýkomin út hjá Braki hljómplötum sem hafa dælt út fínum skífum síðustu vikur og mánuði. <3 Svanhvít leggur talsvert upp úr því að vera fyndin og tekst það oft. Mörg laganna eru þó helst til menntaskólaleg – pottþétt stöff á árshátíðarplötu MR en missir svolít- ið sjarmann inni í stofu hjá þeim sem þekkir ekki til. Svo við höldum okk- ur við „Sextándu sónötu Svanhvítar“ þá minnir flutningur söngvarans/ lesarans í versunum til dæmis held- ur mikið á léttan inngangskafla í ræðu í átta liða úrslitum Morfís. Það er synd því textinn er snjall og við- lagið næstum óhuggulega grípandi í einfaldleika sínum. Saxófónn og fiðla ljá laginu enn fremur skemmtilega hljómræna breidd umfram hin hefð- bundnu rokkhljóðfæri eins og í lang- flestum lögum plötunnar. Ég veit ekki hvort „Heiðar“ á sér hliðstæðu í veruleikanum en textinn málar engu að síður flotta mynd af þeirri óafvitandi grimmd sem börn grípa til þegar þau raða vinum sín- um og kunningjum í röð. Ljóðmæl- andi er með Heiðar efstan á listan- um en heyrir síðan að hann sé ekki nema númer átta hjá Heiðari. „Heið- ar“ er líka dúndurlag eins og gildir raunar um öll fyrstu lögin á skífunni. Líklega stendur lagið „Við = indí“ upp úr með blíðum laglínum sínum, hæglátum gítarslætti, fallega hljóm- andi píanói og töffaralegum tromm- um, þótt leikþáttur þar sem aðal- persónan Nanna á í samræðum við strangan dyravörð fái kjánahrollinn til að hríslast niður eftir bakinu. Hér stendur söngvarinn sig líka með stakri prýði, en það vantar svolítið upp á það víða annars staðar á plöt- unni. Það verður heldur ekki sagt um <3 Svanhvít að bandið sé það þéttasta í bænum, en sveitin skilar sínu og hrár hljómurinn hentar efni- viðnum jafnframt vel. Frá og með „Labbdansi“ fer svo- lítið að halla undan fæti, laginu tekst ekki að grípa mann og textinn er óttaleg steypa. „BBC“ á að skopast að tilvistarlegum ljóðum en minnir á endanum sjálft á mjólkurfernu- skáldskap, og lagið nær ekki að halda athygli eitt og sér. Platan nær sér ekki nægilega á strik eftir það þótt „Systir Svanhvítar er skatt- stjóri“ eigi mjög fína spretti. Partí á Ísland er full af fínum hug- myndum þó að frumleikanum sé ekki fyrir að fara. Lögin eru á heild- ina litið góð og textahöfundarnir eru hnyttnir. Verði næsta plata samin með stærri áheyrendahóp í huga má vel vera að Íslendingar hafi eignast frábæra skandinavíska indípopp- sveit. Fjandi fínn frumburður Geisladiskur <3 Svanhvít - Partí á Ísland bbbnn ATLI BOLLASON TÓNLIST GLAMÚRFYRIRSÆTAN Katie Price, einnig þekkt sem Jordan, hef- ur ákveðið að trúlofast um leið og skilnaður hennar og tónlistarmanns- ins Peters Andres gengur í gegn. Formlegt skilnaðarferli Price og Andres er ekki farið í gang en þau eiga saman þrjú börn. Price mun þegar hafa valið sér bleikan brúðarkjól og látið kærasta sinn, Alex Reid, máta kjólföt. Parið planar að gifta sig í nóvember næst- komandi en það var á miðvikudaginn sem Price og Reid opinberuðu áform sín. Reid sendi vini símaskilaboð þar sem hann sagði að þeim væri full al- vara með að giftast. Nýja parið hélt matarboð fyrir nánustu vini í vikunni, rétt áður en þau héldu í rómantískt frí til Spánar. Talið er að þau hafi tilkynnt vænt- anlega trúlofun sína þar, en fyrir Spánarferðina keypti Price par af svokölluðum vinahringjum sem þau ætla að byrja að ganga með þegar þau koma heim. Skötuhjú Myndir af parinu eru enn sem komið er af skornum skammti. Þessi náðist í gegnum bílrúðu. Brúðkaup á borðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.