Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 43

Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 43
Velvakandi 43 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009 Bórisfrísa Eftir: Þorgrím Kára Snævarr Fagrir tónar flögruðu um Ingólfstorg fyrir helgi, en þá blés lúðrasveit frá Lemvig í Danmörku í hljóðfærin, gestum og gangandi til mikillar ánægju. Var hljómsveitin hér í heimsókn hjá skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Morgunblaðið/Eggert Skrúðklædd skólahljómsveit Steingrímur – ég skil þig ekki Ágæti fjármálaráð- herra og aðrir les- endur. Mig setur hljóða þegar reynt er að sannfæra almenn- ing um þær gjörðir að bjarga klúðrinu, þ.e.a.s. Icesave. Það hefur sýnt sig og sannað að fáir sem engir, nema Eva Joly, sýna landi okkar sam- úð í allri spillingunni sem hefur fengið að grassera sl. ár svo um munar. Það er búið að setja á okk- ur hryðjuverkalög og hver einasti hugsandi maður sér það og veit, að lánveiting frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum er háð þeim skilmálum að ganga frá lausum endum gagnvart Bretum og Hollendingum. Síðan fylgja Norðurlöndin á eftir og vilja ekki lána okkur undir þeim for- merkjum, þ.e. ef við borgum Bret- um og Hollendingum með þeim lánsfjármunum. Þetta virðist snú- ið. En eitt er það sem hefur vakið furðu mína: það eru fjármunir líf- eyrissjóðanna. Það hefur verið rætt á opinber- um vettvangi að þessir sjóðir okk- ar séu digrir og það heil ósköp! Ég spyr í kjölfarið: Hvers vegna hefur ríkisstjórnin ekki séð möguleika á því að taka að láni inneign lífeyrissjóð- anna, sjóðanna okkar, í stað þess að horfa til Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins? Höfum við einhverju að tapa akkúrat núna? Ekki eru allir Íslendingar að taka út lífeyris- greiðslur á sama tíma! Jú, reyndar, ef unga fjölskyldufólkið flyst úr landi og þeir sem eftir sitja í súp- unni á Íslandi verða eingöngu löggildir ellilífeyrisþegar og öryrkjar. Því bið ég þig, Steingrímur, að horfa ögn út fyrir hestagleraugun – þessi aðferð þín passar ekki við ímynd þína sem hefur einkennt þig sl. ár og áratugi, þegar þú varst að berjast fyrir hönd alþýð- unnar með hnefann á lofti. Hvar er hann núna? Kannski bundinn á bak aftur í skjóli peningavaldsins sem enn virðist hafa tögl og hagld- ir á Íslandi? Ég segi einfaldlega: Út úr landi með þetta hyski – byggjum upp nýtt og hreint ÍS- LAND í víðasta skilningi þess orðs! Magnea Ólafs.       Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar, auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum Markmið sjóðsins er stuðningur við nýjungar í læknisfræði, einkum á sviði heila- og taugasjúkdóma, hjarta- og æðasjúkdóma, augnsjúkdóma og öldrunarsjúkdóma. Með umsóknunum skulu fylgja greinargerðir um vísinda- störf umsækjenda, ítarleg kostnaðaráætlun og upplýsingar um það, hvernig þeir ætla að verja styrknum. Umsóknarfrestur er til 30. október nk. og skulu umsóknir sendar í: Pósthólf 931, 121 Reykjavík. Stefnt er að því að tilkynna um úthlutun í lok nóvember nk., ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.