Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 29
pnin elti
Biblíunni og nýtti næstu ár við hand-
tökur andspyrnuhetja, 25.000 fang-
elsisdóma og 2.000 aftökur. Í kjölfar-
ið fylgdi gúllas-kommúnismi, með
tvöföldu hagkerfi þar sem margir
störfuðu fyrir ríkið á daginn og sjálf-
an sig á kvöldin. Dálítið úrval af vest-
rænum vörum var í boði, ágæt hús-
hitun, bílar og sumarfrí við
Balatonvatn eða Svartahaf. Gorbac-
hev hélt því fram að perestroika
hefði þegið innblástur frá ungverska
gúllas-módelinu. OgRauða stjarnan
var ekki fjarlægð af þinghúsinu fyrr
en 1989.
Deyja seint úr heimsku
„Ríkið passaði þig en kæfði þig um
leið,“ segir hin ljóshærða Fanni Kon-
dacs, 22 ára stjórnmálafræðinemi við
Eötvös Lorand-háskólann í Búda-
pest, nýkomin út úr terrorsafninu við
Andrássy út, sem minnist ógnarára
20. aldar. „Ef þú mismæltir þig fóru
þeir með þig þangað – í fyrrverandi
höfuðstöðvar þjóðaröryggislögregl-
unnar. Þú varst pínd, jafnvel drepin.
En svo fór þetta skánandi og tökin
losnuðu,“ áréttar hún og birta breið-
ist yfir tjáningarríkt andlit hennar
og blá augu. „Ég heillast af því að
greina upplýsingar og atburði, raða
púsli og leysa gátur. Í framtíðinni
langar mig að vinna hjá þjóðarörygg-
isdeildinni Kancellaria, sem sá um
öryggi konunga og keisara í 700 ár.“
Vestræn áhrif verða sífellt greini-
legri í sjó fólks á götunni. „Sjáðu!“
segir Darinka. „Fólk eyðir stórfé í
vestræn föt og yfirborðslega hluti en
skilur heilann eftir. Flest ungt fólk
hugsar um föt, tölvuleiki og skemmt-
anir. Ég sé það ekki lesa bækur. Nýj-
ar hugmyndir um lífið vantar. Þroski
þverr. Þessi skortur á visku minnkar
þig ef þú ferð á mis við hana,“ muldr-
ar hún og pírir augun í sólinni. „Er
frelsið svona á Vesturlöndum?“ spyr
Fanni þegar við blasir Belváros –
hjarta Pest. Breið stræti, há hús með
djörfum framhliðum, Elísabetarbrú
og Dunakorzó-göngustígurinn eftir
bökkum Dónár. Vonbrigðin leyna sér
ekki í ungu andlitinu.
Darinka horfir glöð á lífið á göt-
unni og segir: „En við munum seint
deyja úr heimsku því menning okkar
er auðug og djúp. Ungverska er fal-
legt tungumál með ríkan orðaforða.
Grunnurinn er asískur. Slavnesk orð,
tyrknesk, þýsk og líka frá Kas-
akstan, Úsbekistan. Við erum öðru-
vísi. Hegðunin. Húmorinn. Hugsum
hratt og allt öðruvísi en t.d. Þjóð-
verjar, Englendingar og Rússar.
Enda erum við blanda af austri og
vestri.“ Fanni klinkir út áður en þær
hverfa í mannþröngina: Við gengum
í ESB 2004. Núna er alltaf verið að
ljóstra upp um spillingu. Okkur verð-
ur kannski hent út aftur, en mér
finnst kjarni málsins sá að Ungverja-
land nýtur sama frelsis og vinir okk-
ar í Vestur Evrópu. Við erum sjálf-
stæð, frjáls og loksins í rétta liðinu.“
Frelsi – hvaða frelsi?
Laszlo, 67 ára lífeyrisþegi með
derhúfu, situr á bekk við risavaxið
núll úr steinsteypu hjá Keðjubrú
undir kastalahæð í Pest og furðar sig
á heiminum: „Við fórum úr einum
drullupytt í annan – snákurinn skipti
aðeins um ham,“ segir hann um fall
kommúnismans fyrir 19 árum í Ung-
verjalandi og það sem við tók.
„Frelsi? Hvaða frelsi? Pínulítið
frelsi. Glundroði. Agaleysi. Og fer
versnandi. – Helvítis frjálshyggjan,“
bætir hann við og hristir höfuðið.
Laszlo lítur á steyptu ljónin á brúnni,
bendir svo á strætiskrot og McDo-
nald’s og hrópar: „Sjáðu subbuskap-
inn út um allt. Við vorum kristin,
íhaldssöm þjóð í þúsund ár! – Þetta
byrjaði allt eftir frönsku byltinguna
þegar Jakóbínarnir fóru að fjölga
sér. Kommúnisminn hamdi þessa
hyggju þar til aftur hitnaði á níunda
og tíunda áratugnum. Eftir 1989
kom frjálshyggjuæði. Ég vil agað,
siðmenntað frelsi. Núna er allt leyft.
Sem er ekki frelsi. Enda kýs ég
MIÉP næst, sem er þjóðern-
isflokkur,“ segir hann og fær sér
sopa af Coke Zero.
„Við köllum okkur Magyara, ekki
Ungverja,“ segir Laszlo. „Fyrir
1.100 árum komu Magyarar frá
Azov-hluta Svartahafsins í Úkraínu,
sem núna er Rússland, til að eigna
sér landið innan Karpata-fjalla-
hringsins. Þeir stoppuðu í Ungvár á
leiðinni, í nokkur ár, þaðan sem nafn-
ið er komið. Við erum vinnusöm, kæn
og finnum alltaf lausnir og smugur til
að lifa af. Gætum lifað á ísjaka. En
við sjáum okkur ekki í raun sem
þjóð. Stöndum ekki saman nema í
verstu krísum,“ útskýrir hann.
„Enda eru fáir í raun hreinir Magy-
arar nema í Transylvaníu, sem er
forn ungversk menning og tilheyrir
Rúmeníu núna. Ég er þaðan.“ Augu
hans vökna.
„Við höfum alltaf verið umkringd
Slövum og þeim finnst við ekki til-
heyra hérna – enn þann dag í dag,“
segir þessi fyrrverandi vélaverk-
fræðingur, sem vill ekki gefa upp eft-
irnafn sitt. „Norður- og Suður-
Slavar, Úkraínumenn, Tékkar, Pól-
verjar og Serbar. Það var auðvelt að
hernema Karpata-fjallahringinn.
Slavarnir eru friðsamt fólk. Og við
erum ekki árásargjörn,“ segir Laszlo
og brosir – „en fljót að slá til baka
þegar við þurfum.“ Hann bendir svo
alvarlegur á sólina að setjast og
klykkir út með tár í auga: „Sól okkar
er sest. En – sannaðu til. Hún mun
rísa aftur upp. Ný heimsmynd mun
birtast okkur.“
Laszlo snýr sér við og lítur upp á
aldna koparörninn fyrir ofan sig. Og
síðan á steinsteypta núllið og ágenga
áminningu úr vestri sem truflar mið-
aldastemninguna – I’m lovin’ it.
Ljósmyndir/Ragnar Halldórsson
Þegar birtir aftur upp „Sól okkar er sest. En sannaðu til, hún mun rísa aftur
upp. Ný heimsmynd mun birtast okkur,“ fullyrðir vongóður lífeyrisþegi.
Hryllingssafnið Ef þú mismælir þig fóru þeir með þig hingað ... í fyrrum höf-
uðstöðvar þjóðaröryggislogreglunnar. Þú varst pínd, jafnvel drepin.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
– meira fyrir áskrifendur
Glæsilegt sérblað um skóla og
námskeið fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 14. ágúst
Skólar &
námskeið
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu
flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á
frekara nám í haust.
Pöntunartími er fyrir klukkan 16
mánudaginn 10. ágúst.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 netfang: kata@mbl.is
Meðal efnis verður :
• Endurmenntun
• Símenntun
• Tómstundarnámskeið
• Tölvunám
• Háskólanám
• Framhaldsskólanám
• Tónlistarnám
• Skólavörur
• Ásamt fullt af spennandi efni