Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 19

Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009 Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Costa del Sol frá kr. 89.990 - með eða án fæðis Heimsferðir bjóða frábær tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol þann 25. ágúst í 11 nætur. Í boði eru frábær sértilboð á Aguamarina og Castle Beach íbúðahótelunum, sem eru á meðal vinsælusta gististaða okkar. Einnig er í boði stökktu tilboð,með eða án fæðis, þar sem þú bókar sæti (og fæðisvalkost) og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu þetta frábæra tækifæri og tryggðu þér sumarauka við góðan aðbúnað á vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga á ótrúlegum kjörum. Verð kr. 89.990 Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð í viku. Stökktu tilboð 25. ágúst. Verð m.v. 2 í stúdíóíbúð á Aguamarina kr. 99.700. Verð m.v. 2 í íbúð með 1 svefnherbergi á Aguamarina eða Castle Beach kr. 114.900. Sértilboð 25. ágúst. Aukalega fyrir hálft fæði í 11 daga kr. 35.000 fyrir fullorðna og kr. 18.000 fyrir börn. 25. ágúst Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Frábær 11 nátta ferð – aðeins örfá sæti laus Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl.is Þeir sem eru orðnir þreyttir á böl- móði efnahagsþrenginga ættu kannski að draga lærdóm af sög- unni og gera eins og hópur Þjóð- verja hefur gert – skemmta sér á sama hátt og gert var í kreppunni miklu. Það er hópur sem kallar sig „Boheme Sauvage“ eða „óhefluðu bóhemarnir“ sem tekst á við dumbung ársins 2009 með því að upphefja þriðja áratug síðustu ald- ar og kreppuna miklu. Fé- lagsskapurinn snýst að miklu leyti um samkvæmi þar sem bóhemar í Berlín mæta uppstrílaðir í tísku þess tíma, dansa Charleston og spila fjárhættuspil. Hið fallega tímabil síðustu aldar (Belle Epo- que) er þannig í hávegum haft og eru samkvæmin því sérkennileg blanda Moulin Rouge kabaretts, Art Nouveau tískunnar, Burlesque að hætti Ditu Von Teese, listar Toulouse-Lautrec og absinth- áfengisins rótsterka í takt við bannár Bandaríkjanna og mafíósa. Tímabilið sem áhersla er lögð á er frá 1890 til 1940 og svo allir geti skemmt sér sem best er ekki verið að fárast yfir því þó ekki sé allt eftir bókinni í samkvæmunum – sögulega séð. Þó leggur fólk mikið á sig til að hafa allt sem eðlilegast. Nútímalegar hár- greiðslur, skart og hverskyns plastefni er til að mynda afar illa séð. Félagsskapurinn ætti þannig að höfða til þeirra sem hafa gaman af hlutverkaleikjum, grímuböllum eða þeirra sem vilja hreinlega skemmta sér á fágaðan máta, fjarri amstri nútímans í það minnsta huglægt séð. Sú sem á heiðurinn af þessu frumlega uppátæki er Else Edel- stahl eða Elsa Eðalstál sem gæti allt eins verið sögupersónu úr glæpamynd. Elsa fékk hugmyndina eftir að hafa rekið um nokkurt skeið bari með systur sinni Emmu sem allir byggðust á tísku og stíl þriðja ára- tugar síðustu aldar. Elsa vill meina að ekki sé til betri leið til að takast á við efna- hagsniðursveifluna en að skemmta sér á sama hátt, og fólk gerði í síðustu alvarlegu kreppu sem reið yfir heiminn. Aftur til fortíð- ar í kreppu- skemmtun Smart Tíska tímabilsins fram til 1940 er út af fyrir sig góð ástæða til að taka gleði sína á ný í samkvæmum Boheme Sauvage. Reuters Kabarett Danshópur sýnir atriði á kreppuballi Boheme Sauvage þar sem um fimm hundruð gestir mæta og skemmta sér í anda þriðja áratugar síðustu aldar. Reuters Rúlletta Gestir í kreppuveislu Elsu Eðalstáls spila rúllettu með spilapeningum í viðeigandi umhverfi 19. aldar kastala. , ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.