Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 31
Styrkur frá NATA Samstarf á sviði ferðamála milli Grænlands, Íslands og Færeyja Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt. Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur hið minnsta. Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum: Þróun ferða Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (short break) o.s.frv. Markaðssetning í ferðaþjónustu og greining sóknar- tækifæra Alþjóðleg átaksverkefni á sviði ferðaþjónustu. Menntun Faglegar námsferðir, menntun á sviði ferðamála, dvöl til að kynna sér aðstæður. Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða ensku og sendast til: NATA c/o Ferðamálastofa Lækjargata 3, 101 Reykjavík Lokafrestur til að senda umsóknir er til 20. ágúst 2009 Umsóknareyðublað má nálgast á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is Fyrirspurnir varðandi vinnslu umsóknar sendist til: sigrun@icetourist.is NATA er samstarfssamningur ferðamálaráðuneyta í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvin- nuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009 Getum enn bætt við nemendum í 5 ára og 8 ára bekk Skóli Ísaks Jónssonar er persónulegur skóli sem hefur í rúm 80 ár sérhæft sig í kennslu yngstu grunnskólabarnanna. Við leggjum metnað okkar í kennslu í íslensku, stærð- fræði og tónlist og tökum glöð á móti nýjum börnum í 5 ára og 8 ára bekk. Hægt er að sækja um skólavist á heimasíðu skólans www.isaksskoli.is eða hjá skrifstofu skólans í síma 553 2590. ÍSAKSSKÓLI ÞAÐ ER hreint ótrúlegt að horfa upp á þær auglýsingar sem birtast í blöðunum dag eftir dag um það hvað ríkisbankarnir vilja gera til að létta á íbúð- arlántakendum vegna aukinnar greiðslu- byrði. Aðgerðir þeirra miðast einungis við að tryggja stöðu þeirra og láta lántakendur viðurkenna þá miklu eignaupptöku sem orðið hefur hjá þeim vegna hækkunar á höf- uðstóli íbúðalána. Hafa ber í huga að bankarnir eru í ríkiseigu og allt sem í boði er þar hlýtur að vera boðið með vitund og vilja ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin og bankarnir geta ekki sýnt þjóðinni slíka óvirðingu sem sett er fram í auglýsingum bank- anna, þau hljóta að vera með tappa í eyrunum og bundið fyrir augun, þar sem þau hlusta ekki og horfast ekki í augu við það ástand sem ríkir hjá hinum almenna borgara á Íslandi. Á sama tíma og ríkisbankarnir keppast við að afskrifa lán og kúlulán upp á milljarða, þá er ekki hlustað á raun- hæfa lausn vegna slæmrar stöðu heimilanna í landinu um að afskrifa óraunhæfa hækkun á höfuðstóli íbúðarlána, eins og margoft hefur komið fram hjá Hagsmuna- samtökum heimilanna. Fólk ætti kannski að taka út sparnað sinn úr ríkisbönkunum til þess að mark sé tekið á kröfum þess. Hinn almenni borgari fer fram á að gerð verði leiðrétting á höfuðstóli íbúðarlána með niðurfellingu áfall- innar vísitölu frá 1. janúar 2008 og vístala lánanna afnumin í framhaldi af því. Hvað varðar gengistryggðu íbúðarlánin þarf að finna sambæri- lega lausn á þeim. Það á jafnt yfir alla að ganga. Leiðréttinguna þarf að framkvæma meðan bankarnir eru í ríkiseigu. Það þekkist ekki að íbúð- arlán séu vísitölubundin í löndum innan ESB. Ríkisstjórnin og Alþingi hefur það verkefni að vinna fyrir fólkið í landinu, til þess eru þau kos- in, en ekki að vinna að draumaverk- efnum einstakra flokka. Hagsmunir almennings hljóta að eiga að hafa forgang. Það sem almenningur í þessu landi þarf að þola af völdum þessarar ríkisstjórnar er stórkostleg eignaupptaka, stórhækkaðar skatta- álögur, elli- og örorkulífeyrisþegar hafa orðið fyrir mikilli skerðingu og geta vart dregið fram lífið. Það var hreint ótrúlegt að hlusta á málflutning félagsmála- ráðherra í fjölmiðlum þar sem hann vísar á bug niðurfellingu á þeirri hækkun sem orð- ið hefur á höfuðstóli íbúðalána frá 1. janúar 2008. Allur þungi þess- arar ríkisstjórnar hefur farið í að knýja fram á Alþingi heimild til um- sóknar um aðild- arviðræður um inn- göngu í ESB og ríkisábyrgð vegna Ice- save-samningsins sem er mjög um- deildur. Í samfélaginu eru mjög skipt- ar skoðanir vegna beggja þessara mála. Icesave-málið er tilkomið vegna glæframennsku aðaleigenda Lands- bankans, bankastjóra og stjórnar bankans. Þjóðin á ekki að taka ábyrgð á þessari glæframennsku, þeir sem stofnuðu til glæpsins eiga að bera ábyrgð á honum. Eva Joly skrifaði frábæra grein í Morgunblaðið sl. laugardag og á hún þakkir skildar fyrir að koma málstað þjóðarinnar á framfæri í fleiri löndum, þar sem hún sýnir fram á að við erum beitt of- beldi. Vonandi á hún eftir að halda merkjum okkar á lofti sem lengst. Ef ríkisstjórnin hlustar ekki á ákall heimilanna í landinu verður skálm- öld á Íslandi áður en langt um líður. Með tappa í eyrunum og bundið fyrir augun Eftir Björgu Þórðardóttur » Fólk ætti kannski að taka út sparnað sinn úr ríkisbönkunum til þess að mark sé tekið á kröfum þess. Björg Þórðardóttir Höfundur er fv. markaðs- og sölustjóri. ÖLL UMFJÖLL- UN um núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi er á þá leið að ef við því verði hróflað fari allt á annan endann. Það má ekki hrófla við kerfi sem býður upp á spillingu og fjötr- ar fólk í ánauð sægreif- anna. Kerfi sem brýtur mannréttindi á fólkinu í landinu. Það mátti heldur ekki hrófla við bönkunum á meðan allir héldu að peningar yrðu til úr engu. Banka- menn voru mærðir og talið að þar væru snillingar á ferð sem gætu með snertingu breytt steini í gull. Ekkert mátti gera til að koma í veg fyrir þessa trú um ágæti þessara manna, því þá færi allt á annan endann. Bankarnir myndu hverfa úr landi og eftir stæði þjóðin slipp og snauð. Þjóðin átti að þakka þessum fræknu köppum sem fóru um heiminn með gúmítékka og keyptu allt það sem þeim datt í hug. Þeir sem höfðu efa- semdir um að hægt væri að breyta steini í gull voru sagði afbrýð- issamir, heimskir og jafnvel sakaðir um að vera óvinir þjóðarinnar. Allt var bara gott og frá- bært, við vorum best, ríkust, gáfuðust og stórust. Núverandi stjórn- arflokkar boðuðu bót og betrun á meðan á kosn- ingabaráttunni stóð. Því var lofað og það sett í stjórnarsáttmála að landið ætti nú að verða land velferðar sem byggðist á jöfnuði, jafnrétti og jafn- ræði. Frjálshyggjunni átti að henda út í hafshauga og nú var það hagur al- mennings sem átti að ráða ferð. Einni rót spillingarinnar sem við erum nú að verða vitni að og erum að upplifa hefur ekki verið hróflað við. Enn er verið að standa vörð um kerfi sem átti þátt í bankahruninu og þeirri kreppu sem við erum nú að kljást við. Þeir sem hafa aðrar skoðanir en þeir sem vilja standa vörð um þetta kerfi fá á sig sama sönginn og þeir sem höfðu efasemdir um frammistöðu út- rásarvíkinganna. Þetta kerfi er kvótakerfið sem enn er við lýði og ekki bólar á neinum breytingum á því. Það má þó segja að strandveiðar hafi verið spor í rétta átt. En betur má ef duga skal. Það verður ekki hægt að byggja upp nýtt Ísland nema tekið verði á þessu kerfi og því breytt. Kvótakerfið varðar alla þætti sam- félagsins. Það hefur með atvinnustig að gera, það hefur með tekjur al- mennings sem starfar í sjávarútvegi að gera, það hefur með þjóðartekjur að gera, það hefur með jöfnuð, jafn- rétti og jafnræði þegnanna að gera. Nýtt Ísland Eftir Grétar Mar Jónsson Grétar Mar Jónsson »Enn er verið að standa vörð um kerfi sem átti þátt í banka- hruninu og þeirri kreppu sem við erum nú að kljást við. Höfundur er fv. þingmaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.