Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 42
42 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009 Sudoku Frumstig 5 3 6 2 8 5 4 5 3 8 9 7 4 1 5 2 1 9 4 6 2 3 7 2 7 6 5 8 3 4 9 2 8 7 1 4 2 6 4 1 3 7 3 1 6 5 5 4 3 2 5 7 9 8 9 5 3 4 4 2 8 6 1 7 6 8 4 7 5 1 5 1 8 9 3 7 4 2 6 3 2 4 8 5 6 9 1 7 7 6 9 4 2 1 5 8 3 9 3 2 7 4 5 8 6 1 4 7 6 1 9 8 3 5 2 8 5 1 3 6 2 7 9 4 6 8 7 5 1 4 2 3 9 1 9 5 2 7 3 6 4 8 2 4 3 6 8 9 1 7 5 3 4 9 2 8 1 5 7 6 1 7 2 4 5 6 3 8 9 8 6 5 3 7 9 1 4 2 4 1 6 5 3 8 9 2 7 5 2 8 6 9 7 4 1 3 9 3 7 1 4 2 6 5 8 6 5 4 7 2 3 8 9 1 7 8 3 9 1 4 2 6 5 2 9 1 8 6 5 7 3 4 9 1 8 2 6 7 4 5 3 6 5 4 3 8 1 7 2 9 2 7 3 5 9 4 1 8 6 7 2 1 8 5 9 3 6 4 8 4 6 1 2 3 5 9 7 3 9 5 4 7 6 2 1 8 5 3 2 6 4 8 9 7 1 1 6 7 9 3 2 8 4 5 4 8 9 7 1 5 6 3 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er sunnudagur 9. ágúst, 221. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú. (2. Tím. 3, 15.) Víkverji hefur engan skilning áþeim laxveiðum sem stundaðar eru víða um land þessar vikur og mánuði. Af hverju vilja menn spretta upp fyrir allar aldir, vaða út í á og standa þar tímunum saman meðan þeir rembast við að veiða fisk? Það er svo miklu þægilegra að fara bara í næstu fiskbúð og kaupa dauðan lax. Ekkert hangs og ekkert vesen fylgir því. x x x Þegar laxveiðimenn hittast talaþeir eins og þeir hafi orðið fyrir opinberun. Sérkennilegur glampi kemur í augu þeirra, þeir verða óða- mála og nær óskiljanlegir og virðast vera í eins konar vímu. Þegar Vík- verji kemur að laxveiðimönnum þar sem þeir stinga saman nefjum er hann fljótur að forða sér. Þar er ekki von á vitsmunalegu kompaníi. x x x Víkverji veit vel að til að hann getiborðað lax þarf einhver að veiða hann. En laxveiðar sem hobbí eru tóm vitleysa. x x x Það verður þó að viðurkennast aðlaxveiðar eru aðeins skárri íþrótt en golf. Golf er íþrótt hins lata. Það er kannski ágætt að þeir lötu eigi sínar stundir en samt fær þetta dútl þeirra fullmikla athygli. Svo er sjón- varpað frá golfmótum þar sem millj- ónir eru í verðlaun og það eina sem menn verða að gera er að slá kúlu og tölta svo á eftir henni. Víkverji er sannfærður um að þetta er nokkuð sem hann gæti svo auðveldlega gert. x x x Víkverji er þeirrar gæfu aðnjót-andi að fá hið merka tímarit Séð og heyrt sent til sín einu sinni í viku. Áskrift Víkverja að tímaritinu hefur mjög aukið vinsældir hans. Til hans streymir fólk á hverjum fimmtudegi sem vill fá að vita hverjir hafa tekið saman og hverjir skilið. Víkverji verður að viðurkenna að hann er al- veg hissa hvað það eru mörg brostin hjörtu í Séð og heyrt. Getur ekki ver- ið að alltof margir séu að skilja? víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 erfiðleikarnir, 8 verður fljótt mótt, 9 enda, 10 fugl, 11 snaga, 13 stal, 15 heilbrigð, 18 spilið, 21 ótta, 22 sorp, 23 hindra, 24 skjall. Lóðrétt | 2 rík, 3 ávöxt- ur, 4 álítur, 5 ástundun, 6 hneisa, 7 opi, 12 loft- tegund, 14 kyn, 15 vatns- fall, 16 Evrópubúa, 17 þekktu, 18 óskunda, 19 nafnbót, 20 askar. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 kusan, 4 kolla, 7 kyrrt, 8 regns, 9 afl, 11 röng, 13 iðin, 14 ræðið, 15 strá, 17 nagg, 20 orm, 22 rætur, 23 eisan, 24 tunna, 25 nærir. Lóðrétt: 1 kækur, 2 sýran, 3 nota, 4 karl, 5 logið, 6 aus- an, 10 fæðir, 12 grá, 13 iðn, 15 strút, 16 rætin, 18 ansar, 19 ganar, 20 orga, 21 mein. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. f3 e5 6. Rb3 Be6 7. c4 a5 8. Be3 a4 9. R3d2 Da5 10. Rc3 Be7 11. Be2 0-0 12. 0-0 Bd8 13. Kh1 a3 14. Dc2 axb2 15. Dxb2 Da3 16. Db3 Da5 17. Db2 Da3 18. Db3 Rbd7 19. Rb5 Da6 20. Rb1 Hc8 21. Hd1 Be7 22. R1c3 Rc5 23. Db2 Hfd8 24. Hab1 h6 25. Dd2 Hd7 26. Hdc1 Rh7 27. Rd5 Bg5 28. Rbc3 Bd8 29. Hb5 f5 30. exf5 Bxf5 31. Rb4 Da7 32. Rd3 Bg5 33. Rd5 Rxd3 34. Bxd3 Bxe3 35. Rxe3 Bxd3 36. Dxd3 Dxa2 37. Hxe5 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Quebec. Al- þjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunn- arsson (2.462) hafði svart gegn Louie Jiang (2.250). 37. … Db2! 38. Dd5+ Kh8 39. Hd1 Rf6 40. Db5 Dxe5 og hvítur gafst upp. Svartur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Heppnisspil. Norður ♠KD4 ♥63 ♦DG1054 ♣ÁDG Vestur Austur ♠Á10632 ♠G975 ♥– ♥Á9842 ♦Á76 ♦K83 ♣K7643 ♣9 Suður ♠8 ♥KDG1075 ♦92 ♣10852 Suður spilar 3♥ dobluð. Margir spilarar líta á það sem heppni þegar „vondu spilin“ falla sam- an í sveitakeppni, enda verður þá minna úr tjóninu en ella. Edgar heitinn Kaplan taldi þó óæskilegt að fá mörg slík heppnisspil í hverjum leik. Spilið að ofan kom upp í 8-liða úrslit- um Spingold og reyndist mjög heppi- legt fyrir sveit DeKnijff. Á öðru borð- inu gáfu liðsmenn DeKnijff út 790 fyrir 4♠ doblaða í AV. Hinum megin opnaði suður á 3♥, vestur doblaði til úttektar og liðsmaður DeKnijff í austur passaði í refsiskyni. Með toppvörn má taka 3♥ þrjá niður, en vörnin var alveg á hinum kantinum. Út kom lauf, sem sagnhafi svínaði, spilaði ♥3 úr borði á ♥5 heima. Síðan spaða að blindum. Vestur drap og reyndi að gefa makker tígulstungu. Unnið spil og „aðeins“ 16 út. Heppni! (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Stjörnurnar segja að komið sé að hrútnum að láta ljós sitt skína á opinber- um vettvangi. Láttu ekkert trufla þig á meðan. Fáðu álit utanaðkomandi aðila ef þess gerist þörf. (20. apríl - 20. maí)  Naut Sambönd styrkjast vegna hæfileika þinna til að tjá þig með orðum. Þú áorkar miklu í dag. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Einhver spennandi skýtur upp kollinum, endurskipuleggur allt og hverf- ur svo á braut. Tvíburar verða hugs- anlega í erfiðum aðstæðum, sem hægt er að bæta ef þeir verða virkari. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Rómantíkin ræður ríkjum þessa dagana og þú ert í sjöunda himni því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér. Finndu heppilega leið til að auðga anda þinn. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þegar þú grandskoðar einkalífið langar þig til að koma með opinbera yf- irlýsingu um það. Vertu því varkár í um- gengni þinni við aðra. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það hefur ekkert upp á sig að vera stöðugt að falast eftir því sem ekki fæst. Dekraðu við sjálfan þig í kvöld. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú þarft að búa svo um hnútana að ekki verði hægt að koma þér á óvart með aðfinnslum við starf þitt. Hvernig sem því er farið þá verða um það heitar umræður. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Óumbeðnu áliti sporðdrekans verður ekki vel tekið. Reyndu að vera já- kvæð/ur því þegar upp er staðið ertu í betri aðstöðu en áður. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Hvaðeina sem þú festir kaup á í dag verður hagnýtt, á góðu verði og mun að líkindum endast um langan aldur. Léttlyndið er mál dagsins, ekki alvaran. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Steingeitin er bjartsýn á fram- tíðina. Ef einhver reynist ekki traustsins verður í dag mun krabbi túlka það sem vísbendingu fyrir framtíðina. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Fortíðin nær í skottið á þér. Tengslin sem þú átt við manneskju í vog- armerkinu eru einstök. Njóttu tilbreyt- ingarinnar og komdu svo endurnærður til starfa á ný. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Fiskurinn hefur ótrúlegt þolgæði. Það táknar breytingu og án þess getur þú ekki haldið áfram. Gefðu þér tíma til að hlaupa eftir óvæntum hugdettum. Stjörnuspá 9. ágúst 1851 Þegar fulltrúi konungs sleit Þjóðfundinum, sem staðið hafði í Reykjavík í rúman mánuð, reis Jón Sigurðsson upp og mótmælti því „í nafni konungs og þjóðarinnar“. Þá sögðu flestir þingmenn í einu hljóði: „Vér mótmælum allir!“ Einni öld síðar var afhjúpuð minning- artafla um fundinn í hátíðarsal Menntaskólans í Reykjavík, þar sem fundurinn var haldinn. 9. ágúst 1908 Jóhannes Sveinsson, síðar nefndur Kjarval, opnaði fyrstu málverkasýningu sína í Góð- templarahúsinu í Reykjavík, 22 ára. Í Lögréttu var spurt: „Hvað verður nú Íslandi úr þessu listamannsefni?“ 9. ágúst 1930 Þúsund ára minningarhátíð um Gísla Súrsson og Auði konu hans var haldin við Einhamar í Geirþjófsfirði, þar sem Gísli féll, og afhjúpað minnismerki. 9. ágúst 1979 Menntamálaráðuneytið gaf út tilkynningu um friðun gamalla húsa á svonefndri Bernhöfts- torfu í miðbæ Reykjavíkur. 9. ágúst 1987 Mosfellshreppur hlaut kaup- staðarréttindi og varð Mosfells- bær. Fjölmenn grillveisla var við Hlégarð. Íbúar voru þá um 3.900 en eru nú um 8.400. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Ívan Dan Stein- grímsson hélt tombólu í Mos- fellsbæ og safn- aði 3.208 krónum sem hann gaf Rauða krossi Ís- lands. Hlutavelta ÞAÐ reynir á það hvað verður, en þetta leggst ekki illa í mig. Ég er hress og frískur og bara bjartsýnn,“ sagði Magnús Jakobsson, málmsteyp- umaður, þegar hann var spurður hvernig það legðist í hann að verða sjötugur. Magnús ætlar að halda upp á afmælið með opnu húsi í samkomusal íþróttahússins Smárans í Kópa- vogi í dag, sunnudag, kl. 17-19. „Ég vona að ég sjái sem flesta,“ sagði Magnús. „Ég var þarna með veislu þegar ég varð sextugur. Það tókst vel þá og ég vona að þessi takist eins vel. Þá kom langt á annað hundrað manns.“ Magnús hefur verið viðloðandi íþróttir í um 60 ár. Hann byrjaði að stunda íþróttir á æskustöðvum heima í Reykholtsdal og keppti síðar með Breiðabliki í Kópavogi. Hann tók snemma þátt í félagsmálum íþróttahreyfingarinnar og var m.a. formaður Frjálsíþróttasambands Íslands um tíma. Magnús kvaðst telja að ástundun íþrótta væri öllum holl. Spurður um heilræði til yngra fólks sagði Magnús: „Ég held að ein besta forvörnin séu íþróttir einhvers konar. Það er staðreynd að krakkar og unglingar sem ánetjast íþróttum gera ekk- ert slæmt á meðan.“ gudni@mbl.is Magnús Jakobsson málmsteypumaður 70 ára Hress, frískur og bjartsýnn Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Akureyri | Þormóður Ari fæddist 3. apríl kl. 15.07. Hann vó 4.525 g og var 55 cm langur. Foreldrar hans eru Herdís Pálma- dóttir og Þormóður Ingi Pálsson. Akranes | Íris fæddist 3. júní kl. 11.56. Hún vó 4.330 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Hafdís Hallgrímsdóttir og Lárus Wöhler.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.