Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009 Faxafeni 5 • Sími 588 8477 Heilsurúm í sérflokki ! Eitt líf Njótum þess! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is KÍNVERSKA risafyrirtækið Sinopec og Enex Kína, jarðvarmafélag í eigu Geysis Green Energy (75%) og Reykjavik Energy Invest (25%), hafa tekið höndum saman um sameiginlega uppbygg- ingu jarðvarmaveitna í þessu fjölmennasta ríki heims, sem telur um 1.300 milljónir manna. Sinopec fer með ráðandi hlut í félaginu (51% hlutafjár) en Enex Kína með afganginn. Samningurinn þykir viðurkenning á íslenskri jarðhitatækni í Kína en þar ber hæst uppbygg- ingu Enex Kína á jarðvarmaveitu í Xianyang í Shaanxi-héraði, borg með um hálfa milljón íbúa. Sú veita náði því marki í fyrra að jafnast á við hitaveituna í Reykjanesbæ að umfangi og er stefnt að því að hún fimmtánfaldist, úr rúmlega milljón upphitaðra húsnæðisfermetra nú, í um 15 milljónir húsnæðisfermetra innan nokkurra ára. Verkefnin geta því verið gríðarstór en umfang- ið fer og mun fara eftir aðstæðum hverju sinni. Næsta verkefnið í Hebei-héraði Fyrsta sameiginlega verkefni fyrirtækjanna er að halda áfram uppbyggingunni í Xianyang. Næsti áfangi verður svo í Xiong-sýslu í Hebei- héraði þar sem áætlað er að hita upp 300.000 fer- metra með jarðvarmaveitu þegar á þessu ári og svo milljón fermetra 2010. Önnur verkefni sem fyrirhuguð eru eru í Shandong-héraði, skammt frá höfuðborginni Peking, en Jiang Zhu, svæðis- stjóri Geysis Green Energy í Asíu, með aðsetur í Shanghai, segir aðspurður ekki tímabært að upp- lýsa um frekari verkefni að svo stöddu. Hvað snertir möguleika jarðvarmans í Kína bendir Jiang á að varmagildi jarðhitans þar í landi hafi verið áætlað 250 milljarðar tonna – og er þá miðað við varmagildi úr hefðbundnum kolum – samanborið við 188,6 milljarða tonna varmagildi í áætluðum kolabirgðum í landinu. Mögulegt varmagildi – sá varmi sem sækja má í orkugjafann – er því með öðrum orðum um þriðj- ungi meiri í jarðvarmanum en í kolunum. Kínverska stjórnin fer með mótun orkustefn- unnar í landinu og segir Jiang það koma jarð- varmanum til góða að hún hafi einsett sér að auka veg endurnýjanlegrar orku, með það að markmiði að hlutur hennar í orkuframboðinu fari í 10% árið 2010 í 15% fyrir 2020. Jafnframt sé að því stefnt að lækka hlutfall kola í orkuframboðinu úr 73% nú í 68% 2010 og svo niður í 60% árið 2020. Ódýrara en að hita upp með kolum Jiang segir hitun með jarðvarma samkeppnis- hæfa við hitun með varma sem sóttur er í kol. „Kostnaðurinn við jarðvarmahitun er um þrír fjórðu af kostnaðinum við húshitun með kolum. Verð á kolum hefur farið hækkandi í Kína og því er útlitið gott fyrir jarðvarmann í Kína. Við þetta bætist að jarðvarmavirkjunum fylgir kolefnis- kvóti, vegna þess samdráttar í koldíoxíðlosun sem starfsemi þeirra býður upp á, en hann má síðan endurselja fyrir umtalsverðar fjárhæðir.“ – Hvaða fjárhæðir er hér verið að tala um? „Ég get nefnt sem dæmi að fyrir hverja 100.000 húsnæðisfermetra sem hitaðir eru upp með jarð- varma fæst kolefniskvóti að andvirði frá 60.000 til 80.000 evra. Sú viðbót er mikilvæg fyrir rekstur- inn sem stendur að öðru leyti fyllilega undir sér. Það er góð arðsemi af rekstrinum.“ Mikill áhugi stjórnvalda Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu sýna kínversk stjórnvöld jarðvarmauppbygging- unni áhuga og má rifja upp þau orð Zhaos Zhen- gyong, fyrsta aðstoðarríkisstjóra Shaanxi-héraðs, að Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, hafi sýnt persónulegan áhuga á samstarfi við íslensk fyrir- tæki á þessu sviði. Jiang tekur aðspurður undir að Kínastjórn sýni uppbyggingunni áhuga og bendir í því samhengi á að forstjóri Sinopec hafi ígildi stöðu ráðherra í Kína. „Reynslan í Xianyang hefur sýnt okkur hversu arðbær jarðvarmaverkefni geta verið í Kína. Nú hefst sókn á önnur svæði í Kína með öflugum inn- lendum aðila. Þetta sýnir að minni hyggju hversu mikils metin íslensk jarðhitaþekking er í Kína.“ Enex Kína í sæng með risafyrirtækinu Sinopec Hafa uppi áætlanir um umfangsmikla uppbyggingu jarðvarmaveitna í Kína Kínverska ríkisfyrir- tækið Sinopec er 9. stærsta fyrirtæki heims, ef horft er til markaðsvirðis, sam- kvæmt árlegum lista tímaritsins Fortune, Global 500, sem birt- ur var í ársbyrjun. Á vefsíðu Fortune segir að Sinopec hafi um 80% hlutdeild á kín- verska olíumarkaðnum. Starfsmenn eru sagðir 639.690 en ef dótturfyrirtæki eru talin með fer fjöldi þeirra yfir milljón. Umsvifin eru gríðarleg: veltan á fjáhagsárinu 2008 var tæpir 208 milljarðar dala eða sem svarar 26.135 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Þá var hagnaður ársins 2008 um 246 milljarðar króna eða um 53% minni en 2007, sem skýrist af hækkandi innkaupsverði á olíu. Fyrirtækið er í senn olíu- og gasvinnslurisi og umsvifamikið í efnaiðnaði. Sinopec Star er dótturfélag olíurisans en það hefur á stefnu sinni að endurnýjanleg orka verði ein af þrem- ur meginstoðunum í rekstri þess. Eitt stærsta fyrirtæki heims LÖGREGLA beitti mótmælendur ofbeldi og fjölmiðlar, sem stunda æsifréttamennsku, taka þátt í áróð- ursmaskínu þeirra sem eiga hags- muna að gæta vegna stóriðju. Þetta segir í yfirlýsingu sem samtökin Sav- ing Iceland sendu frá sér í fyrrinótt vegna atburða við lögreglustöðina við Hverfisgötu á föstudagskvöld. Þar komu um 30 manns úr röðum mótmælenda saman og kom til átaka við lögreglu. Tveir voru handteknir. Kalla fram sundrungu Mótmælendur segja að hvorki frá- sagnir né myndefni sanni frásagnir lögreglu um árásir gegn sér. Þá reyni fjölmiðlar að kalla fram sundr- ungu meðal þeirra sem berjist gegn stóriðju. Sé frásögnum Ómars Þ. Ragnarssonar t.d. gert hærra undir höfði en málstað Saving Iceland. Um stóriðju almennt segir í yfir- lýsingu samtakanna að hún sé meng- andi. Samningur stjórnvalda og Norðuráls orki tvímælis og álfyrir- tækin séu „gegnsýrð af hömlulausri græðgi og miskunnarleysi í garð alls sem mögulega stendur í veginum fyrir gróða.“ sbs@mbl.is Ásakanir um ofbeldi Morgunblaðið/Heiddi Átök Tveir voru handteknir í fyrrakvöld í rimmu lögreglu og álvers- andstæðinga sem nú saka hina fyrrnefndu um ofbeldi.  Saving Iceland segir fjölmiðla stuðla að sundrungu álvers- andstæðinga  Segir álfyrirtækin vera hömlulaus af græðgi „ÞETTA er stórt verkefni og mjög mikilvægt fyrir okkur. Sérstaklega vegur það þungt núna, á tímum samdráttar í byggingariðnaði,“ segir Hannes Sigurgeirsson for- stjóri Steypustöðvarinnar, en fyr- irtækið afhenti á föstudag fyrstu steypuna í 5. áfanga Hellisheiðar- virkjunar. Aðalverktaki við byggingu virkj- unarinnar er JÁ-verktakar ehf sem hafa gert samning við Steypustöð- ina um afhendingu á 6.550 rúm- metrum af steypu vegna þessarar framkvæmdar. Á við 150 íbúðir Til samanburðar má geta þess að 45 til 50 rúmmetrar af steypu fara að jafnaði í íbúð í fjölbýlishúsi. Þessi samningur lætur því nærri að vera um það magn sem færi í 150 blokkaríbúðir. Framkvæmdir við virkjunina á Hellisheiði hófust í júlí og áætluð verklok eru í nóvember 2011. „Þegar lítið er um húsbyggingar skipta verkefni sem þessi miklu máli fyrir okkar starfsemi. Vonandi fjölgar framkvæmdum af þessari stærðargráðu á næstunni,“ segir Hannes en fyrirtækið varð nýlega að grípa til uppsagna 17 starfs- manna. Stöðugildi eru nú ríflega 40 hjá fyrirtækinu. sbs@mbl.is Steypa afhent í stækkun virkjunar á Hellisheiði Steypa Uppsteypa vegna 5. áfanga Hellisheiðarvirkjunar á fullu. ÞRÍR ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut- inni í fyrrinótt. Þeir mældust á 122, 119 og 125 km/klst. þar sem há- markshraðinn er 90 km/klst. Þá var einn ökumaður tekinn grun- aður um ölvun við akstur á Reykja- nesbrautinni í nótt. Hann var færð- ur á lögreglustöðina við Hring- braut þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Þrír teknir á öðru hundraðinu Enex Ísland og kínverski olíurisinn Sinopec hafa tekið höndum saman um uppbyggingu jarðvarmaveitna í Kína. Þarlend stjórnvöld hafa sýnt uppbyggingunni mikinn áhuga. Morgunblaðið/Heiddi Svæðisstjóri Jiang Zhu starfar í Shanghai. Úr iðrum jarðar Jarðhitahola í Shaanxi-héraði. Ljósmynd/Geysir Green Energy

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.