Morgunblaðið - 09.08.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Jane Plant
mun ræða um
efni nýjustu
bókar sinnar
„Beating Stress,
Anxiety &
Depression“
en prófessor
Jane Plant er heimsþekkt fyrir
bækur sínar um tengsl
mataræðis og sjúkdóma.
w w w.madur lifandi.isBorgartúni 24, 105 Reykjavík, sími 58 58 700
Fyrirlestur 11. ágúst
kl. 17 í Borgartúni 24
JANE PLANT
Sjá www.janeplant.com
Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
N
ei. Við munum hvorki aðstoða
leifar Kaupþings né við-
skiptavini bankans við að fela
„óhreinan þvott“ sinn frá al-
þjóðasamfélaginu. Tilraunir
Kaupþings til að grafa upp hvaðan skjölin
fengust gætu verið refsiverðar samkvæmt
belgískum lögum um vernd heimildarmanna
og sænsku stjórnarskránni. Hver er banda-
ríski lögfræðingurinn ykkar? Jim Limb.“
Svo hljóðaði svar vefsíðunnar Wikileaks
við kröfu forsvarsmanna Kaupþings um að
upplýsingar úr lánabók bankans, sem lekið
var inn á vefinn, yrðu fjarlægðar þaðan aft-
ur. Í bréfi frá Kaupþingi, dagsettu föstu-
daginn 31. júlí, sagði að ef vefsíðan yrði
ekki við kröfunni myndi bankinn leita réttar
síns og þegar hefði verið haft samband við
bandarískan lögfræðing til að annast málið.
Svar Wikileaks var hins vegar hnitmiðað og
ákveðið. Hringið bara í lögfræðingana ykk-
ar – okkur verður ekki haggað!
Á heimasíðu Wikileaks segir að síðan hafi
verið stofnuð af kínverskum andófs-
mönnum, blaðamönnum, stærðfræðingum
og tæknifræðingum frá Bandaríkjunum, Ta-
ívan, Evrópu, Ástralíu og Suður-Afríku.
Hún veitir „lekendum“, mótmælendum,
blaðamönnum og bloggurum sem standa
frammi fyrir pólitískum ofsóknum, refs-
ingum eða ofbeldi vernd til að koma upplýs-
ingum sínum á framfæri. Á síðunni getur
hver sem er lekið örugglega skjölum nafn-
laust án þess að eiga á hættu að finnast. Þá
geta allir notendur gaumgæft skjölin að vild
og greint og rætt um gildi þeirra og trú-
verðugleika.
„Afhjúpa ósiðlega framkomu“
Á síðunni segir að nánast allt sem við
teljum dýrmætt í umhverfi okkar sé að ein-
hverju leyti háð góðum stjórnarháttum –
heilsa, matarbirgðir, athafnafrelsi, mennt-
un, friðsæld og svo framvegis. „Sé litið til
sögu stjórnmála og ástand mannkyns í dag
er ljóst að frumskilyrði góðra stjórnarhátta
eru opnir stjórnarhættir. Sagan sýnir að
sveigjanlegustu stjórnarhættirnir eru í sam-
félögum þar sem opinber skrif og útgáfa
eru vernduð. Við viljum veita þá vernd í
samfélögum sem ekki geta tryggt borgurum
sínum hana. Við trúum því að Wikileaks sé
besta leiðin til að styrkja lýðræði og góða
stjórnarhætti um víða veröld.“
Wikileaks er ekki formlega tengd alfræði-
orðabókinni Wikipediu en síðurnar deila þó
sama viðmóti og tækni. Þær byggja enn-
fremur báðar á þeirri heimspeki að þekking
fólks aukist og dýpki ef henni er safnað
saman með því að heimila öllum notendum
að skrifa inn á síðurnar.
Wikileaks segist einbeita sér að því að
svipta hulunni af einræðisríkjum í Asíu,
fyrrum Sovétríkjum, í Afríku og
Mið-Austurlöndum en vilji jafnframt rétta
fólki hjálparhönd í öllum heimsálfum sem
„óskar þess að afhjúpa ósiðlega framkomu
ríkisstjórna og fyrirtækja“. Á heimasíðunni
kemur fram að í gagnagrunninum séu um
1,2 milljónir skjala.
Eðlilega líkar ekki öllum við Wikileaks og
vinnubrögðin sem tíðkast þar á bæ. Við-
brögð forsvarsmanna Kaupþings eru til
sönnunar um það. Fleiri hafa reynt að
leggja stein í götu síðunnar. Kínversk
stjórnvöld loka til að mynda á allar vefsíður
sem hafa orðið „wikileaks“ í vefslóð sinni. Í
Kína er þó hægt að komast inn á Wikileaks
í gegnum svonefndar „speglasíður“ sem
stöðugt breyta um nafn og aðstandendur
síðunnar hvetja fólk til að leita að þeim með
fulltingi leitarvéla á netinu.
Vettvangur til að brjóta trúnað
Wikileaks berst gegn ósiðlegri hegðun
ríkisstjórna og fyrirtækja en starfshættir
síðunnar sjálfrar eru ekki síður umdeildir.
Vefsíðan er í raun vettvangur fyrir þá sem
vilja brjóta trúnað, hver sem hvati þeirra er
hverju sinni, og komast upp með það.
„Þar sem frelsi er af skornum skammti
og óréttlæti er verndað með lögum er rými
fyrir borgaralega óhlýðni. Þegar sú einfalda
aðgerð að dreifa upplýsingum getur svipt
hulunni af glæpastarfsemi eða komið upp
um skammarlega hegðun ríkisstjórna áskilj-
um við okkur þann rétt og teljum það
skyldu okkar að gera svo.“ Rannsókn-
arblaðamenn á vegum Wikileaks gaumgæfa
öll skjöl sem berast og reyna að greina
hvort þau séu trúverðug og ekta. Á síðunni
segir að þeim hafi til þessa aldrei skjátlast.
Hugsjónin er falleg og staðfestan aðdáun-
arverð þótt starfsemin sé umdeild. Og það
er ljóst að fyrirtæki og ríkisstjórnir geta
svitnað yfir tilhugsuninni um Wikileaks hafi
þau eitthvað að fela, því þegar starfsmenn-
irnir í þvottahúsinu opna dyrnar fyrir Wiki-
leaks í skjóli nætur og óhreina tauið blasir
við verður ekki aftur snúið. Og öllum til-
raunum til að stöðva síðuna verður mætt
með sama svarinu: „Nei.“
Leyniþjónusta fólksins
Vefsíðan Wikileaks veitir fólki færi á að koma upplýsingum nafnlaust og örugglega
á framfæri „Munum ekki aðstoða leifar Kaupþings við að fela óhreina þvottinn“Vefsíðan www.wikileaks.
org hefur verið starf-
rækt frá því í desem-
bermánuði árið 2006. Á
heimasíðunni sjálfri seg-
ir að ferlið hafi hafist
þegar „aðgerðasinnar“
um víða veröld gáfu sig á
tal saman með fulltingi
veraldarvefjarins. Sam-
eiginlegt áhyggjuefni
þessa fólks var að þján-
ing og eymd manna (sem
orsakast af matarskorti, lélegu heilbrigð-
iskerfi og dapurlegu menntakerfi og svo fram-
vegis) stafaði að miklu leyti af lélegum stjórn-
arháttum og spillingu innan ríkisstjórna.
Verkefninu hefur verið líkt við það þegar
Daniel Ellsberg lak „Pentagon-skjölunum“ til
Neil Sheehan, blaðamanns á dagblaðinu The
New York Times, árið 1971. Skjölin voru í raun
skýrsla sem Robert S. McNamara, þáverandi
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, lét vinna
um stjórnmála- og hernaðarafskipti Banda-
ríkjamanna í Víetnam á árunum 1945-1967. Í
skýrslunni kom ýmislegt fram um athæfi
Bandaríkjamanna í Víetnam sem ekki hafði
verið sagt frá áður.
Eftir að The New York Times hafði synjað
beiðni saksóknara og Richard Nixons, forseta,
um að birta ekki skjölin hófust málaferli. Lög-
bann fékkst á birtingu skjalanna en málið fór
hratt um dómskerfi Bandaríkjanna og endaði
hjá hæstarétti. Rétturinn úrskurðaði að birt-
ingin væri heimil og að lögbannið hefði gengið
í berhögg við ákvæði 1. viðauka stjórnarskrár
um tjáningarfrelsi.
„Pentagon-
skjölin“ láku
Richard Nixon,
fyrrum forseti.
Það hefur ekki
gefist vel að reyna
að endurheimta
gögn frá Wiki-
leaks. 27. mars ár-
ið 2008 sendi Vís-
indakirkjan
vefsíðunni bréf og
bað um að
ákveðnum skjölum
sem vörðuðu mál-
efni kirkjunnar
yrði skilað. Wiki-
leaks sendi frá sér
yfirlýsingu í kjöl-
farið þess efnis að
í „tilefni af þessari
tilraun til þögg-
unar“ myndi vefsíðan viku síðar birta þúsundir
skjala um málefni Vísindakirkjunnar. Viku síð-
ar var staðið við þau orð.
7. nóvember árið 2007 birtist á vefsíðu Wiki-
leaks skjal sem innihélt siðareglur Bandaríkja-
hers í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu. Þar
kom meðal annars fram að ákveðnir fangar
höfðu ekki fengið að hitta sendinefndir Rauða
krossins en fram að birtingu skjalsins hafði
Bandaríkjaher ávallt neitað slíkum ásökunum.
„Tilraun til
þöggunar“
Frá Guantanamo-
fangelsinu á Kúbu.
Uppljóstranir
Í febrúar árið 2008 úrskurðaði
Jeffrey S. White, dómari í Kali-
forníu í Bandaríkjunum, að taka
skyldi vefslóðina www.wikileak-
s.org af veraldarvefnum í kjölfar
málsóknar svissneska Julius Baer
bankans á hendur Wikileaks. Wiki-
leaks hafði þá birt gögn sem lekið
hafði verið um ólöglegar aðgerðir
bankans á Cayman-eyjum. Að sögn
Wikileaks sýndu gögnin að bankinn
stundaði m.a. peningaþvætti og
sveik undan skatti. Forsvarsmenn
bankans sögðu að gögnunum hefði
verið stolið og birting þeirra væri
trúnaðarbrot og bryti gegn lögum
um bankaleynd.
Dómsmálið þótti reyna á þol-
mörk 1. viðauka við stjórnarskrá
Bandaríkjanna sem fjallar um
frelsi til tjáningar. Málið var jafn-
framt ekki ólíkt því sem kom upp
nú fyrir skemmstu þegar vefsíðan
birti upplýsingar úr lánabók Kaup-
þings.
Dómarinn lét því loka aðalhlið-
inu að síðunni ef svo má að orði
komast en „speglasíðurnar“ voru
enn opnar og glöggir vefnotendur
voru ekki lengi að finna leið inn á
síðuna með öðrum vefslóðum.
Fjölmörg samtök um tjáning-
arfrelsi og fjölmiðlar mótmæltu
lokuninni harðlega og kröfðust
þess að fá að koma fyrir dóminn og
benda á ýmis atriði varðandi 1. við-
auka stjórnarskrárinnar.
Í þessum hópi voru meðal ann-
ars Associated Press-fréttastofan
og dagblaðið Los Angeles Times.
Sérstaklega var minnst á að Wiki-
leaks hafði ekki sent neinn lög-
mann fyrir sína hönd á dómþingið.
Tveimur vikum síðar kvað White
dómari upp annan úrskurð og
ógilti með honum þann fyrri.
Dómarinn virtist argur við úr-
skurðinn og viðurkenndi að fyrri
ákvörðun hans gæti hafa falið í sér
stjórnarskrárbrot. „Við lifum á
þeim tímum þar sem fólk getur
gert ákaflega góða og jafnframt
slæma hluti án þess að þurfa að
bera ábyrgð fyrir dómstólum.“
Sama kvöld og dómarinn kvað
upp úrskurðinn var aðalsíða Wiki-
leaks aftur virkjuð. Nokkrum dög-
um síðar féll bankinn frá málsókn
sinni á hendur vefsíðunni.
Framkvæmdastjóri samtaka
blaðamanna um frelsi fjölmiðla í
Bandaríkjunum, Lucy Daglish,
sagði í kjölfar úrskurðarins: „Það
er ekki algengt að dómari taki 180
gráðu beygju í máli og ógildi alveg
sinn fyrri úrskurð. Við erum mjög
ánægð með að hann viðurkenndi
að fyrri ákvörðun um að loka síð-
unni stæðist að öllum líkindum
ekki ákvæði stjórnarskrár.“
Lögmaður bankans sagði að í
raun hefði dómarinn hafnað því að
dómsvaldið næði einnig yfir ver-
aldarvefinn. „Það er ákaflega dap-
urleg niðurstaða.“
Höfðuðu mál á hendur Wikileaks