Saga - 1988, Blaðsíða 86
84
GUÐMUNDUR JÚNSSON
kunna ekki að skrifa slík bréf. Pá telja landsdrottnar að með bréflaus-
um leigumála eigi þeir auðveldara með að byggja leiguliðum sínum
út af jörðunum án þess að lenda í málaferlum. Ekkert óttast menn
eins mikið og að lenda í málaferlum; þau eru dýr, margvíslegum erf-
iðleikum bundin, málaflutningsmenn vantar að heita má alveg og
dómarar eru reynslulitlir. Reynslan sýnir að afar erfitt er að fá óhæfan
leiguliða af jörð með dómi ef hann hefur byggingarbréf um lífstíðar-
ábúð. Pað er því í sjálfu sér eðlilegt að menn reyni að forðast slíkt,
annaðhvort með því að gefa engin byggingarbréf út eða semja um
stuttan ábúðartíma.
Grímur er sammála Páli Melsteð að jarðir séu sjaldnast leigðar til
langs tíma. Ýmist eru þær leigðar til eins eða tveggja ára í senn, með
uppsagnarákvæði eða til óákveðins tíma, þannig að bóndinn þarf að
leita eftir samþykki landsdrottins á hverju hausti fyrir framlengingu á
leigu um eitt ár, taka heima sem kallað er. Grímur bendir á að lífstíð-
arábúð á konungsjörðum hafi ekki verið almenn fyrr en hann varð
amtmaður. Hinn stutti leigutími sem viðgengst á kirkju- og bænda-
jörðum er ekki sú óhæfa sem af er látið. Menn mega ekki horfa fram
hjá þeim reginmun sem er á aðstæðum á íslandi og í Danmörku, þar
sem lífstíðarábúð er almenn.
Nár en Bondekarl i Danmark indgár Ægteskab og fæster en
Gárd, da afgiver denne en Næringsvej for ham, hvorved han
kan blive sin hele Livstid, og det er meget sjældent, at han heri
attrár eller har Ársag til at attrá nogen Forandring. Jordbruget
i Island derimod nærmer sig mere Nomadelivet. Jordejendom-
mene ere af sá mangfoldige Variationer i Storrelse, Situation,
naturlig Beskaffenhed og Bomitet. Begynderen, som i Al-
mindelighed er fattig, men forst ved Kreaturens Tillæg og
Opdræt skal erhverve noget, tilbygsler sig helst smá Jorder
passende til hans ringe Drifts Evne og Kræfter. Men træffer
han gode Ár og er hældig med at foroge Antallet af sine Krea-
ture, da bliver det ham snart for trangt pá den lille Jord, og han
má da, især nár Familien imidlertid er bleven formeret (thi
efter Antallet af de fortærende Familielemmer má altid Antal-
let af Kreature rettes eller reguleres) soge en storre Jord, derfra
igjen om nogle ár en endnu storre o.s.fr. Omvendt kunde
hárde Ár, Uheld, Tab af Kreature, Mangel af Tjenestefolk, til-