SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Síða 11

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Síða 11
1. nóvember 2009 11 Á rið 2004 var ítalski knattspyrnumað- urinn Francesco Totti dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að hrækja í andlitið á dönskum andstæðingi sínum. Enginn hefur stungið upp á því að koma upp hrákadöllum á knattspyrnuvöllum sem gæti líka verið snúið. En þegar horft er á leiki í sjónvarpi virðist ekki vanþörf á því; menn skyrpa og hrækja hver um annan þveran eins og þeim sé borgað fyrir það. Ef til vill mætti leysa málið með því að nýta gamla upp- finningu: einkahrákadall sem er nógu nettur til að hafa í vasa. En þá yrði að sauma slíka vasa á búninginn. Menn hafa hrækt og skyrpt á gólfið og á víðavangi frá því í árdaga og yfirvöld í Kína reyna eftir mætti að gera út af við þennan gamla, útbreidda sið þar í landi með hörðum við- urlögum en gengur víst hægt. Það var ekki fyrr en um 1500 að yfirstéttin í Evrópu fór að amast við háttalaginu. Henni fannst þetta ekki nógu dannað en svo má ekki gleyma að nef- og munntóbakið hafði haldið innreið sína og ekki varð það til að gera siðinn geðslegri. Eitthvað var að gera og hráka- dallurinn varð til. Úr fægðu látúni Seint á 19. öld var slíkur dallur mjög algeng sjón á börum og hótelum, í verslunum, bönkum og járnbrautarvögnum bæði í Bandaríkjunum og Vestur- Evrópu. Þess má geta að stór hrákadallur úr fægðu látúni var við hvert sæti á Bandaríkja- þingi og enn er slíkir gripur við hvert sæti hæstaréttardómara í Washington. Vatnssalerni voru ekki á hverju strái eins og núna og því nauðsynlegt að hafa stað þar sem fólk gat losað sig við offramleiðslu af munnvatni, ekki síst ef það var kvefað eða þurfti að skipta um tóbak. Er- lendir ferðalangar á Íslandi um þetta leyti voru margir stand- andi hissa á að sjá jafnvel vel- menntað fólk skyrpa og hrækja á gólfið eins og ekkert væri. En smám saman mun dallurinn hafa rutt sér til rúms einnig hér á landi. „Bannað að hrækja á gólfið!“ varð algeng áletrun á skiltum. Hrákadallurinn, gerður úr ýmsum efnum og tæmdur reglulega af láglaunafólki eða þrælum, mun hafa náð há- punkti vinsælda sinna um 1900 en um sama leyti var vitn- eskjan um sóttkveikjur að verða almenn. Bent var á að áhaldið ýtti undir útbreiðslu sjúkdóma. Það sem ef til vill gerði endanlega út af við dall- inn var spænska veikin í lok fyrri heimsstyrjaldar 1918. Nú kröfðust læknar banns og frægðarsól þessa merka áhalds rann loks til viðar. kjon@mbl.is Óspennandi uppfinning með ljótt nafn Saga hlutanna Hrákadallar geta verið af öllum stærð- um og gerðum enda ekki vel upplýstu fólki sæmandi að skyrpa á gólfið. H V êT A H ò S I /S êA 0 9 -1 7 9 1

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.