SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Page 12

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Page 12
12 1. nóvember 2009 Þ egar tónlistarmaðurinn Jonni snýr heim eftir áralanga dvöl í Argentínu kemst hann að því að allt er breytt. Illa haldinn af hinni íslensku „þetta reddast“-veiki neyðist hann til að horfast í augu við að nú komi hvorki bankinn né mamma honum til bjargar og því sé lítið annað að gera en að takast á við erf- iðleikana og vinna sig út úr þeim. Kannski ekki ósvipað aðstæðum íslensku þjóðarinnar um þessar mundir. Saga Jonna er sögð í kvikmyndinni Desember sem frumsýnd verður um næstu helgi. Jonna leik- ur Tómas Lemarquis en með hlutverk fyrrverandi kærustu hans fer Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt sem tónlistarkonan Lay Low. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég leik eitthvað annað en sjálfa mig,“ svarar hún aðspurð en fyrir tveim- ur árum kom hún fram í leikritinu Ökutímum, sem Leikfélag Akureyrar setti á svið. „Þar kom ég bara inn á sviðið og spilaði þannig að þótt þetta væri leiksýning var ég ekkert að leika.“ Hún segir það því hafa verið nokkuð skondið þegar Hilmar Oddsson, leikstjóri myndarinnar, hringdi í hana og spurði hvort hún gæti leikið. „Ég svaraði strax neitandi en hann spurði þá hvort ég væri alveg viss því hann væri með mynd. Þegar ég var búin að tala við hann sagði ég við pabba að þetta hefði verið einhver maður að spyrja mig hvort ég gæti leikið í bíómynd og hann fór að skellihlæja.“ Lovísa var þó til í að skoða málið svo úr varð að hún fór í leikprufu með Tómasi. „Ég var alveg að skíta á mig af hræðslu og vissi ekkert hvað ég var að gera,“ segir hún og hlær. „Þú stóðst þig mjög vel,“ segir Tómas að bragði og bætir því við að það hafi verið frábært að vinna með Lay Low. „Hún er með stórt hjarta og keyrir áfram á því og það skiptir öllu máli í svona vinnu.“ Lovísa hefur svipaða sögu að segja af Tómasi. „Það var mjög mikill stuðningur í því að við mættumst á jafningjagrundvelli. Hann var ekki leikarinn að segja mér til heldur ræddi hann við mig um atriðin sem við vorum að leika á máli sem ég skildi.“ Hún bætir því við að Hilmar hafi líka hjálpað sér mikið og meðal annars tekið hana á „skyndinámskeið í kvikmyndaleik“ auk þess sem konan hans, leikkonan Þórey Sigþórsdóttir, hafi þjálfað hana raddlega. Dreymdi fyrir myndinni Aðkoma Tómasar að myndinni var nokkuð sér- stök. „Viku áður en ég fór í prufu kom Hilmar til mín í draumi, en ég þekkti hann lítið sem ekkert fyrir myndina. Það voru mjög sterk tákn í draumnum og meðal annars Elliðavatn – sama sjónarhorn og úr villunni þar sem myndin var tekin að hluta. Þannig að þegar ég horfði út um gluggann á húsinu sá ég nákvæmlega sömu senu og hafði verið í draumnum. Þessi draumur breytti öllu fyrir mig, upp á traust mitt til Hilmars, og það reyndist alveg frábært að vinna með honum í Keyrt áfram á hjartanu Þótt annað hefði dágóða reynslu úr kvikmyndum en hitt enga mættust þau á jafningjagrunni við tökurnar á kvik- myndinni Desember. Tónlistarkonan Lay Low og leikarinn Tómas Lemarq- uis fara þar með aðalhlutverkin. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.