SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Side 19

SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Side 19
1. nóvember 2009 19 B rynhildur Erlingsdóttir er ein þeirra fjöl- mörgu kvenna sem hafa nýtt sér þjónustu Konukots. Hún segir kotið hafa gert gæfu- muninn fyrir sig þegar hún var í neyslu og átt ríkan þátt í því að hún náði sér úr viðjum fíkn- arinnar. Það má eiginlega segja að ævi Brynhildar hafi verið ein þrautaganga. Hún kynntist þó ekki vímuefnum fyrr en hún var komin á fertugsaldurinn. Þriggja ára gömul greindist Brynhildur með alvarlegan nýrna- sjúkdóm og tengjast bernskuminningar hennar að miklu leyti sjúkrahúsvist. 15 ára eignaðist hún sitt fyrsta barn og bauðst henni þá tækifæri til að láta ný- fæddan drenginn sinn í umsjá móður sinnar. Hún tók meðvitaða ákvörðun um að halda drengnum því þrátt fyrir ungan aldur vildi hún takast á við móðurhlut- verkið. Þegar Brynhildur var 22 ára hafði hún kynnst nýj- um manni, orðin móðir þriggja drengja, búin að jarða tveggja daga gamla dóttur sína og hafði misst tvö fóstur eftir tuttugu vikna meðgöngu. Í sambandi með handrukkara Brynhildur fékk stera þegar hún gekk með drengina sína tvo til að flýta fyrir þroska þeirra þar sem hún átti sögu um fyrirbura og fósturmissi. Af steranotkun fékk Brynhildur drep í báða mjaðmaliði og leið miklar kvalir í kjölfarið. Við tók margra mánaða sjúkra- húslega og áralöng barátta við verki í öðrum fætinum og mjöðm. „Á þessum tíma vissi ég varla hvað vímu- efnaneysla var. Ég var bara ung en veik húsmóðir og bjó í Vogum á Vatnsleysuströnd,“ segir Brynhildur. Brynhildur skildi síðan við mann sinn, fluttist með drengina sína til Danmerkur og kynntist þar öðrum manni frá Túnis. Brynhildur varð í tvígang ófrísk í Danmörku, eignaðist tvo drengi fyrir tímann og missti þá báða. Annar drengurinn er jarðaður í Danmörku og hinn á Íslandi. Brynhildur og maður hennar sáu fyrir sér að flytja til Túnis en drengirnir hennar voru með heimþrá og vildu flytja aftur til Íslands. Brynhildur segir það óeigingjörnustu ákvörðun sem hún hafi tek- ið, að senda drengina til föður síns, heim til Íslands. Við tók þá flakk hjá Brynhildi þar sem hún fór frá Danmörku til Túnis og var svo reglulega á Íslandi líka. Hún flutti síðan aftur til Íslands og fór að búa með manni sem lifði líferni sem Brynhildur hafði aldrei kynnst áður. „Hann var handrukkari og var í neyslu. Bæði eiturlyf og önnur vímuefni höfðu bara farið fram hjá mér. Ég byrjaði svo að reykja á þrítugsafmælinu mínu og fékk mér tattú og lokk í tunguna og það gerði ég eiginlega meira til að ganga fram af æskuvini mínum en fyrir sjálfa mig,“ segir Brynhildur um upp- haf vímuefnaneyslunnar. „Svo þróaðist það þannig að strákarnir voru alltaf minna og minna hjá mér og ég fór þá að fara út að djamma um hverja helgi, en það hafði ég ekki gert áður,“ segir Brynhildur. Sprautaði sig og bjó í greni Brynhildur átti í stöðugu stríði við verkinn í mjöðm- inni og notaðist við verkjalyf til að lina kvalirnar. Svo var það eitt kvöldið sem hún var verkjalyfjalaus að hún prófaði að reykja gras. „Grasið virkaði vel á verkina hjá mér. Svo prófaði ég að reykja hass út frá því. Síðan fóru að koma vandræði í sambandinu og einhvern veginn upp úr þurru ákvað ég að prófa am- fetamín. Það var enginn sem hélt því að mér. Svo leiddi eitt af öðru. Þegar ég var komin meira í neysl- una varð ég bara sjálfri mér nóg og fór að humma alla hluti fram af mér. Ég missti síðan húsnæði mitt, var farin að sprauta mig og einn daginn var ég allt í einu komin í eitthvert greni á Frakkastíg,“ segir Brynhild- ur. Þegar hér var komið sögu naut Brynhildur aðstoðar Konukots. „Þegar ég steig inn í Konukot í fyrsta skipti leið mér æðislega. Ég upplifði mig ekki sem einhvern dópista sem var á vappi niðri í bæ og öllum var skítsama um. Hér voru konur sem pössuðu upp á mann og maður gat þvegið fötin sín og fór aldrei svangur í rúmið eða út úr húsi,“ segir Brynhildur. Brynhildi finnst slæmt að Konukot skuli vera lokað yfir miðjan daginn og segir að þótt þetta séu ekki nema fimm klukkustundir sem þær þurfa að brúa sjálfar sé það oft erfitt fyrir konurnar og þá sér- staklega yfir vetrartímann. „Ég er sannfærð um að ef það hefði ekki verið lokað yfir daginn þá hefði ég ver- ið fljótari að jafna mig, því þegar maður fer út á dag- inn er maður fastur í þessu umhverfi.“ Vildi ekki vera amma í dópi Einn besti vinur Brynhildar var mjög langt leiddur í neyslu og þótt þau hafi getað stutt hvort annað á göt- unni gerði hún sér grein fyrir að hún vildi ekki feta sama veg og hann. „Svo var ég líka með konum sem leið illa alla daga, þær voru alltaf peningalausar og rétt eftir hádegi voru þær orðnar draugfullar, farnar að garga á fólk á Laugaveginum og tala við litlu börn- in. Það var svo ekki fyrr en ég átti von á barnabarni að ég hugsaði með mér að ég vildi ekki verða öskrandi og rugluð amma á Laugaveginum.“ Þegar Brynhildur fékk svo loksins viðeigandi verkjalyf sem hentuðu henni hætti hún að finna þörf fyrir eiturlyfin. Hún fór þá í fyrsta skipti að eigin frumkvæði í meðferð og er búin að vera edrú í eitt og hálft ár. Hún er nú búsett á Akranesi og vinnur þar sem sjálfboðaliði fyrir Rauða krossinn. Draumur hennar er svo að vinna sjálboðaliðastörf í Konukoti þegar tækifæri gefst til og launa þannig þá góðu umönnun sem hún hlaut þar. Brynhildur verður meyr þegar hún talar um sam- band sitt við syni sína. Hún hefur ekki hitt yngsta drenginn sinn í þrjú ár en er búin að reyna að byggja upp samband við miðjubarnið síðastliðið ár. Hún er og hefur alltaf verið í góðu sambandi við elsta son sinn. „Strákarnir mínir allir eru englarnir mínir og elsti strákurinn minn er eiginlega besti vinur minn líka.“ Gesturinn Brynhildur Erlingsdóttir Af götunni í sjálfboðaliðastarf Brynhildur segir Konukot hafa gert gæfumuninn þegar hún var að ná sér úr viðjum fíknarinnar. Morgunblaðið/Heiddi K onukot var stofnað á haustmánuðum 2004 og byrjaði sem tilraunaverkefni Reykjavík- urdeildar Rauða kross Íslands en Reykjavík- urborg útvegaði húsnæðið í Eskihlíð 4. Upp- haflega var um tveggja ára tilraunaverkefni að ræða sem átti svo að endurskoða þegar ljóst væri hvort þörfin væri til staðar að verkefninu loknu og eins hvort kon- urnar myndu nýta sér þessa þjónustu. Að tveimur árum liðnum var niðurstaðan sú að þörfin var til staðar því á fyrstu tveimur árunum sýndu sig um 40 konur. Þá var kominn grundvöllur fyrir frekara samstarf við Reykja- víkurborg og árið 2006 gerðu svo Velferðarsvið Reykja- víkurborgar og Reykjavíkurdeild Rauða krossins með sér samning þess efnis að Reykjavíkurdeildin sæi áfram um rekstur Konukots en fengi rekstrarfé frá Velferð- arsviði borgarinnar. Sjálfboðaliðar skipa stórt hlutverk „Það má segja að þetta sé dæmigert Rauðakrossverkefni að því leytinu til að það er farið af stað fyrir minni- hlutahóp sem á sér ekki málsvara,“ segir Kristin Helga Guðmundsdóttir verkefnastjóri Konukots. „Verkefnið leit ekki út fyrir að vera sjálfboðaliðavænt í byrjun og var það aðallega vegna opnunartíma athvarfsins, sem var til að byrja með frá kl. 21 á kvöldin til kl. 9 á morgnana. Það þótti ekki líklegt að hægt væri að manna þennan tíma með sjálfboðaliðum og voru starfsmenn ráðnir á næturvaktirnar. Þegar opnunartíminn var síð- an rýmkaður skapaðist nýtt rými fyrir sjálfboðaliða- vaktir,“ segir Kristín. Í Konukoti vinna milli 30 og 40 sjálfboðaliðar sem standa vaktir frá kl. 17-22. Margir fé- lagsráðgjafanemar nýta sér þetta tækifæri og bjóða fram krafta sína og kynnast þá um leið konunum sjálfum og málaflokknum innanfrá. En það eru ekki eingöngu há- skólanemar sem vinna sjálfboðaliðastörf í Konukoti, þar vinnur fólk með ólíka menntun og starfsreynslu sem vill einfaldlega láta gott af sér leiða. Aukning lífsgæða með tilkomu Konukots Áður en Konukot var stofnað var Gistiskýlið í Þing- holtsstræti eina úrræðið fyrir konur sem voru heim- ilislausar. Þar voru karlar alltaf í meirihluta og má telja nokkuð víst að sumar konur sem þurftu á tímabundnu athvarfi að halda hafi oft veigrað sér við því að nýta sér það úrræði. Það var því heilmikil aukning á lífsgæðum fyrir þessar konur að Konukot var stofnað en vissulega ekki nóg. Til eru úrræði fyrir karla þar sem þeir eiga lögheimili og mega búa þó að þeir séu í neyslu. Ýmis skilyrði fylgja þó, á staðnum er starfsmaður og íbúar mega ekki taka með sér gesti inn á heimilið. Það má því segja að viss hvati sé ennþá til staðar til að taka næsta skref, s.s. að flytja t.d. í félagsbústaði. „Auðvitað vonumst við eftir slíku úrræði fyrir konur sem fyrst, en það er í vinnslu,“ segir Kristín Helga Þurfa að sigrast á eigin fordómum Þó að flestar konur sem leita skjóls í Konukoti séu í neyslu og/eða eigi við geðræn vandamál að stríða þá er mikilvægt að það komi fram að það er ekki einhlítt. Og þó aðstæður kvennanna séu slæmar þurfa þær samt sem áður oft að sigrast á eigin fordómum gagnvart staðnum og þá kannski helst yngri konurnar. „Það er líka viss ímynd sem fylgir orðinu athvarf og dettur fólki oft í hug grár beddi, súpa og stór ausa þegar því orði er kastað fram. Konurnar verða því margar hverjar hissa þegar þær koma inn í fyrsta skipti og sjá hversu heimilislegt og notalegt athvarfið er. Hugsanlega styður eða kveikir það löngun hjá konunum til að komast á annan stað í lífinu,“ segir Kirstín Helga. Ástand kvennanna sem leita til Konukots er misjafnt en hvernig sem það er, leitast sjálfboðaliðar og starfs- menn af fremsta megni við að sýna þeim öllum virð- ingu, bæði með viðmóti og með umhverfinu. Mark- miðið er að mæta konunum þar sem þær eru staddar og gera þeim lífið sem bærilegast á meðan þær dvelja í at- hvarfinu. Kristín Helga leggur mikið upp úr að gera líf kvennanna í Konukoti sem bærilegast á meðan þær dvelja þar. Morgunblaðið/Heiddi Verkefnastjórinn Kristín Helga Guðmundsdóttir Heimilislausum sýnd virðing

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.