SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Síða 33
F
arandsýningin Íslensk hönnun 2009 –
Húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr var
fyrst sett upp á Kjarvalsstöðum í Reykja-
vík á Listahátíð 2009. Samhliða sýning-
unni byrjaði Elísabet V. Ingvarsdóttir sýning-
arstjóri að vinna að sýningarskrá sem varð svo
viðamikil að úr varð bók sem kom út síðastliðinn
föstudag. „Þetta er ekki fræðibók,“ segir Elísabet
um bók sína, „þá bók langar mig að gera seinna.
Þetta er meira upplýsingarit“.
Í bókinni Íslensk samtímahönnun – húsgögn,
vöruhönnun og arkitektúr er varpað ljósi á verk
íslenskra samtímahönnuða en verulegur skortur
hefur verið á bókum sem slíkum. Flest verkin í
bókinni hafa hlotið umfjöllun í fjölmiðlum und-
anfarið en nú gefst áhugasömum tækifæri á að
kynna sér hönnuðinn á bak við vöruna.
Valin eru verk sem gefa sem fjölbreyttasta mynd
af starfi íslenskra hönnuða samtímans hvort sem
það eru snjóflóðavarnargarðar á Siglufirði eða bar-
innréttingar í Hong Kong. En hvernig var hægt að
velja úr öllum þeim fjölda íslenskra hönnuða sem
við eigum? „Þegar valið var á sýninguna var reynt
að sýna ákveðna heild en þar sem þetta er far-
andsýning þá setti það mér ákveðnar skorður. Mér
fannst svo mikið atriði að leggja ekki allt undir og
taka bara fáar hönnunargreinar og vinna markvist
með þær út frá samspili manngerðs umhverfis.
Þarna er aðeins brot af því besta innan þessara
hönnunargreina. Eins fannst mér mikilvægt að
velja hönnuði sem höfðu þegar vakið á sér at-
hygli,“ segir Elísabet.
Farandsýningin Íslensk hönnun 2009 stendur
enn og er nú í Ketilhúsinu á Akureyri.
signyg@mbl.is
Verk íslenskra
samtímahönnuða
í einni bók
Snjóflóðavarnir á Siglufirði efit Landslag ehf.
+ARKITEKTAR sáu um endurgerð á Hótel Borg.
2922 dagar eftir Snæfríð Þorsteins
og Hildigunni Gunnarsdóttur.
Visual Inner Structure eftir Guð-
rúnu Lilju Gunnlaugsdóttur.
„Mér fannst svo
mikið atriði að
leggja ekki allt
undir og taka
bara fáar hönn-
unargreinar og
vinna markvist
með þær út frá
samspili mann-
gerðs umhverfis.“
Frá farandsýningunni Íslensk hönnun 2009 - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr.
1. nóvember 2009 33
Hönnun
Inga Björk Andr-
ésdóttir hannar
hálsmen og
eyrnalokka úr
steinum en
mestmegnis
hannar hún háls-
men úr plexígleri.
Línan kallast The
Indian in Me þar sem Inga notar
mikið indíánamunstur. „Ég hef alltaf
verið mikið fyrir steina og hef rosa-
lega gaman af allri speki í kringum
steina og áhrif þeirra. Þaðan kemur
indíánaáhuginn. Mér finnst gaman
að blanda saman þessu andlega,
gamla og rótgróna við plexígler sem
er svo nýstárlegt.“ Inga segist afar
hrifin af plexígleri og finnst það
skemmtilegt efni. „Það er svo end-
ingargott. Sama hvað þú gerir við
það þá lítur það alltaf jafnfallega út.
Svo getur maður hannað hvað sem
er með því, hvort sem það eru
skartgripir eða húsgögn.“
Inga er menntaður fatahönnuður
frá Listaháskóla Íslands en hefur
alltaf haft áhuga á skarti. Hún hefur
selt fata- og skartgripahönnun sína
í búð en segir að alltaf hafi meira
selst af skartinu. „Mér finnst skipta
máli sem fatahönnuður að hafa líka
einhverja vöru sem fólk dettur
meira niður á og kaupir „instant“.
Það er miklu meira mál að kaupa
heila flík sem er mjög afgerandi.
Það er frekar að fólk sé tilrauna-
kenndara með fylgihluti og einnig
finnst mér skemmtilegt að nota
skartgripi í gjafir.“
Hönnun Ingu er hægt að fá á Pop
Up-markaðnum sem skýtur upp
kollinum hér og þar um borgina á
óútreiknanlegum tímum. Hægt er
að gerast aðdáandi markaðarins á
Facebook, síðan heitir Milliliðalaus
verzlun og gerist maður aðdáandi
fær maður tilkynningar hvar og hve-
nær næsti markaður verður hald-
inn.
ylfa@mbl.is
Línan er innblásin af indíánum.
Ljósmynd/Ólafur Þórisson
Inga Björk
Gömlu og rót-
grónu blandað
við nýstárlegt