SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Side 42
42 1. nóvember 2009
L
æknirinn og rithöfundurinn Sir Arthur
Conan Doyle hefur örugglega ekki haft
grænan grun um að hann væri að skapa
lífseigasta einkaspæjara sögunnar, þegar
hann skrifaði A Study in Scarlet, á ofanverðri 19.
öld. Síðan eru liðin rösk 120 ár og Doyle átti eftir að
skrifa fjórar bækur og 56 smásögur um hinn skarp-
gáfaða og ráðsnjalla uppljóstrara og hinn ómissandi
aðstoðarmann hans, Dr. John Watson.
Mest kvikmyndaða sögupersónan
Kvikmyndirnar komu til sögunnar á meðan Doyle
var enn að skrifa á fullum afköstum um tvíeykið
góða og hin nýi miðill var ekki lengi að finna pen-
ingalyktina af sagnabálkinum, sem var þá þegar
búinn að ná mikilli útbreiðslu og geysivinsældum.
Fyrsta myndin sem var gerð eftir bókum Doyle,
heitir einfaldlega Sherlock Holmes I., breskrar ætt-
ar og var frumsýnd árið 1906. Rétt er að hafa í huga
að þessar upplýsingar eru fengnar hjá IMDb gagna-
bankanum á alnetinu, en hann er fjarri því að vera
fullkominn þegar kemur að fyrstu áratugum kvik-
myndasögunnar. Frá upphafi hafa vinsældir tví-
menninganna verið með ólíkindum á hvíta tjaldinu
og samkvæmt heimsmetabók Guinness, er Holmes
mest kvikmyndaða sögupersóna heimsbyggð-
arinnar, með um 200 myndir að baki, sem hafa
státað af einum 70 leikurum í aðalhlutverkinu.
Þessi ótrúlega myndasúpa er af öllum stærðum
og gerðum og kemur víða frá. M.a. var Holmes leik-
inn af Basil Rathbone í 26 mynda bálki á árunum
1939-46. Nigel Bruce fór með hlutverk Dr. Wat-
sons, en myndirnar voru framleiddar í Hollywood,
af 20th Century Fox (14), og Universal (12). Áður
hafði 15 mynda röð verið framleidd á 2. og 3. ára-
tugnum í Bretlandi. Tvímenningarnir hafa m.a.
verið filmaðir í Sovétríkjunum sálugu, í Belgíu,
Frakklandi, Finnlandi, á Ítalíu og víðar. Verk Doy-
les hafa mörg verið sett upp á fjölunum, vítt og
breitt og flutt í útvarpsþáttum í öllum heims-
hornum. Þá hafa aðrir höfundar samið sínar eigin
sögur og kvikmyndahandrit um Holmes og Dr.
Watson og svo mætti lengi telja
Nýtt Sherlock Holmes-æði í uppsiglingu?
Allt bendir til þess að þessi 120 ára gamli fé-
lagsskapur gangi í endurnýjun lífdaga um n.k. jól,
eða áramót, en þá verður frumsýnd fokdýr og
vönduð stórmynd sem ber nafn ofurspæjarans. Er
þegar búið að ákveða a.m.k. eina framhaldsmynd
og bendir flest til þess að þær verði fleiri. Það rýrir
ekki væntingarnar að þessi nýjasti Holmes kvik-
myndasögunnar er leikinn af stórleikaranum Ro-
bert Downey Jr., og engu síðri fagmaður, Mark
Strong, mannar hlutverk illmennisins, Blackwood
lávarðar. Dr. Watson er í höndum Jude Law og í
leikhópnum er einnig að finna nöfn Rachel Mc-
Adams, sem leikur Irene Adler, einu konuna sem
Holmes er í einhverjum kynnum við í bókunum;
James Fox leikur Sir Thomas en Guy Ritchie sér um
leikstjórnina og tekur með sér nokkur kunnugleg
skúrksandlit úr fyrri myndum sínum (Lock, Stock
and Two Smoking Barrels, Snatched, RocknRolla.)
Sherlock Holmes gerist á síðasta átatug 19. aldar,
og færist félögunum Holmes og hans trygga aðstoð-
armanni, Dr. Watson, ekkert lítilræði í fang, eða að
koma upp um samsæri sem á að kollvarpa breska
heimsveldinu. Hefst myndin á því að Holmes og
Watson koma morðóðum glæpaleiðtoga, skálk-
inum Blackvell lávarði (Strong), í hendur réttvís-
innar. Þegar verið er að flytja ódáminn í gálgann,
heitir lávarðurinn því að snúa til baka úr víti og
hefna sín á tvímenningunum. Línan er lögð.
Holmes er allt annað en auðdrepinn, afburða
skytta, skylmingamaður, fjölbragðaglímukappi,
með meiru, auk þess að vera ljóngáfaður og manna
glúrnastur að sjá út næstu leiki andstæðingsins. Dr.
Watson kann líka hitt og annað fyrir sér, enda fyrr-
um stríðshetja og bardagamaður mikill og er sögu-
maður myndarinnar. Þá kemur við sögu bandaríska
glæfrakvendið Irene Adler (McAdams), viðsjálverð
með afbrigðum og eina konan sem hefur snúið á
Holmes og hefur haft við hann stormasamt sam-
band í gegnum árin. Strong fer sem fyrr segir, með
hlutverk erkiþrjótsins, en leikarinn hefur verið að
bruna upp metorðastigann í kvikmyndaheiminum
að undanförnu. Lék m.a. stórvel í State of Play, og
síðustu Ritchie-myndinni, RocknRolla.
Warner Bros hefur ekkert til sparað svo nýja
myndin verði sem best úr garði gerð og bindur
vonir við að hún verði ekki aðeins metaðsókn-
armynd heldur upphafið á ferskum framhalds-
myndabálki (franchise.) Handritið er skrifað af
Michael Robert Johnson, Anthony Peckham og
Simon Kinberg (X-Men, Mr. & Mrs. Smith, xXx;
Tvær Harry Potter-myndir, ofl.)Tónlist og kvik-
myndataka er í meistarahondum Hans Zimmer og
Philippes Rousselot.
Framleiðandinn, Lionel Wigram, hefur sagt að
hann hafi eytt síðasta áratug í að undirbúa og finna
leiðir til að sýna Sherlock Holmes í nýju ljósi, ólíku
gömlu myndanna. Hefur spæjarann í nútímalegri
Sherlock Hol-
mes í gömlum
og nýjum
glæpamálum
Þrælmennið prófessor Moriarty ætlaði að
koma Sherlock Holmes fyrir kattarnef í
Reichenbach-fossunum árið 1891. Í stuttu
máli er eru engin ellimörk á meistaraspæj-
aranum og von á stórmynd um hann á jólum
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Jude Law, Robert Downey, Jr., og Rachel Mc-
Adams í hlutverkum sínum í nýju myndinni um
Sherlock Holmes. Á svart/hvítu myndinni getur
að líta þá félaga, Holmes og Watson, í túlkun
Nigel Bruce og Basil Rathbone í kunnri röð
kvikmynda á fjórða og fimmta áratugnum.
Alex Bailey
Kvikmyndir