SunnudagsMogginn - 01.11.2009, Side 55
1. nóvember 2009 55
Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16
mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík
og nýjasta margmiðlunartækni.
Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni.
Opið alla daga frá kl. 10-17.
www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is
LISTASAFN ÍSLANDS
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Óþekkt augnablik
Greiningarsýning á ljósmyndum frá tímabilinu 1900-1960
úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni.
Leitað er aðstoðar safngesta við greiningu myndefnis.
Aðgangur ókeypis fyrir börn.
www.thjodminjasafn.is.
Söfnin í landinu
LISTASAFN ASÍ
24. okt. til 15. nóv. 2009
GUNNFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
MYNDHÖGGVARI
1889-1968
Leiðsögn 1. nóv. kl. 15:00
Opið 13-17 alla daga
nema mánud.
Aðgangur ókeypis
Freyjugötu 41, 101 Rvk
www.listasafnasi.is
28. ágúst – 1. nóvember
Lífróður
– föðurland vort hálft er hafið
Síðasta sýningarhelgi
Opið 11-17,
fimmtudaga 11-21,
lokað þriðjudaga.
www.hafnarborg.is
Aðgangur ókeypis.
Listir – hönnun - handverk
ÞRÆDDIR ÞRÆÐIR
og
EINU SINNI ER
Kaffistofa - Barnahorn - Leskró
OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
SVAVAR GUÐNASON
31.10. 2009 - 03.01. 2010
LEIÐSÖGN á sunnudag kl. 14
Halldór Björn Runólfsson safnstjóri
TÓNLEIKAR - miðvikudaginn 4. nóv. kl. 20
Edda Erlendsdóttir píanóleikari
SAFNBÚÐ
Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara.
Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR
www.listasafn.is
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ
Sýningar opnar alla daga:
Handritin - sýning á þjóðargersemum, saga þeirra og hlutverk.
ÍSLAND::KVIKMYNDIR, 100 íslenskar kvikmyndir til að horfa á.
Að spyrja Náttúruna - dýrasafn og aðrir munir í eigu
Náttúrugripasafnsins.
Þjóðskjalasafn Íslands - 90 ár í Safnahúsi. Merk skjöl úr sögu
þjóðarinnar. Gögn frá valdatíma Jörundar hundadagakonungs fyrir
200 árum.
Sýning Íslandspósts „Póst- og samgöngusaga - landpóstar,
bifreiðar, skip og flugvélar“ ásamt frímerkjasafni Árna Gústafssonar.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík
Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is
Listasafn: Innistæða, íslensk
myndlist í eigu Landsbankans,
1900-1990.
Sýningarstjóri: Aðalsteinn
Ingólfsson
Bíósalur: Verk úr safneign
Listasafns Reykjanesbæjar
Bátasafn: 100 bátalíkön
Byggðasafn: Völlurinn
Opið virka daga 11.00-17.00
helgar 13.00-17.00
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
VÍKINGAHEIMAR
Skipið Íslendingur og
sögusýning
- Söguleg skemmtun
VÍKINGABRAUT 1
- REYKJANESBÆ
Opið alla daga
frá 11:00 til 18:00
Sími 422 2000
www.vikingaheimar.com
info@vikingaheimar.com
Bergsveinn Birgisson segir frá
ungum menningarfræðingi
sem tekur að sér að gera
heimildarmynd um íslensku
kúna. Ýmislegt er í ólagi í
kollinum á honum og smám
saman sækir á hann þráhyggja
um kýr og stöðu þeirra í
mannkynssögunni / menning-
arsögunni og um leið hvernig
kýrin er samofin lífi íslensku
þjóðarinnar. Margt er reyndar
skemmtilegt í þeim vangavelt-
um og ekki síst hvernig Berg-
sveinn tengir saman þenslu og
æði síðustu ára við þá hug-
mynd manna að flytja inn
fóstursvísa til að „bæta“ ís-
lenska nautgripastofninn.
Málið er bara að það er of lítið
skipulag í æðinu hjá Berg-
sveini og smám saman
drukknar sagan í aukaatriðum
og útúrdúrum. Það er ekki
fyrr en undir lokin, þegar við
stígum inn í heim geðveik-
innar, að bókin tekst á flug,
en þá er það um seinan.
Mööööö …
Skáldsaga
Handbók um
hugarfar kúa
eftir Bergsveinn
Birgisson
Bjartur, 2009
bbbnn
Árni Matthíasson
Sögupersóna Falskrar nótu,
guðfræðineminn Ari Þór Ara-
son, fær óvænt í hendur
greiðslukortsreikning frá út-
löndum sem stílaður er á hann,
eða kannski á föður hans og
alnafna sem lést fyrir mörgum
árum. Hann heldur af stað til
að grennslast fyrir um hverju
sæti.
Svo gæti hafist spennandi
sakamálasaga eða tilfinn-
ingaþrungin þroskasaga, nú
eða hugljúf ástarsaga, en Ragn-
ar Jónasson nýtir efniviðinn í
spennusögu sem er eiginlega án
spennu. Persónur í bókinni eru
líka án persónuleika, samtöl í
skýrsluformi og atburðarásin
ótrúverðug.
Skáldsaga
Fölsk nóta
eftir Ragnar
Jónasson
Veröld 2009
bbnnn
Spennulaus spennusaga
Árni Matthíasson
Hér var eitt sinn annað skó-
horn er fjórða ljóðabók Gísla
Þórs Ólafssonar á fjórum árum.
Hann hefur í þessum bókum
þróað ljóðheim sinn talsvert og
gengur til að mynda enn lengra
hér en fyrr í að nota ljóðið sem
einskonar dagbók, upprifjun
eða skýrslu um liðna atburði.
Um leið er reynt á formið, en
það skilar misgóðum árangri.
Fyrsta ljóð bókarinnar er
þannig uppskrift að pastarétti,
sett upp sem ljóð, og ekki mjög
áhugavert. Lokaljóðið er
skýrsla um ferð til Hollands,
líka dulbúin sem ljóð. Áhuga-
vert að vissu leyti, en ekki
meira en það.
Gísli Þór vitnar talsvert til
skáldbræðra sinna, til að
mynda Sigurlaugs Elíassonar í
upphafi kaflans Ferðaljóð; en
meðan Sigurlaugur gæðir ferðir
ljóðanna ljóðrænum galdri, eru
ferðaljóð Gísla Þórs upptaln-
ingar, tilraunir vissulega, en
galdurinn oftast fjarverandi.
Besti hluti bókarinnar er Ný
ást, þar sem skáldið vinnur
hvað best úr ljóðmálinu og
liggur talsvert á hjarta – enda
fjallað um ást og kynlíf. Í Mjúk
nærvera er hver nótt sögð eins
og ævintýri: „þegar ég skyggn-
ist inní huga þinn / þegar þú
hlærð uppúr svefni.“
Ljóðapasta og ferðalög
Ljóðabók
Hér var eitt sinn
annað skóhorn
eftir Gísla Þór
Ólafsson
bbmnn
Einar Falur Ingólfsson
Góður glæpur skiptir miklu í
spennusögu og að því leyti er
morðið sem framið er í upphafi
þessarar bókar mjög vel heppn-
að, þ.e. framkvæmd þess og
umhverfi. Bókin fer því vel af
stað en svo sígur á ógæfuhliðin
því klisjukenndar persónur,
ótrúverðug framvinda og tilvilj-
anakenndar uppákomur draga
smám saman þrótt úr lesand-
anum og subbulegt barnaníð
bætir ekki úr skák.
Það er og galli á hverri bók
þegar söguhetjur hennar eru
eins og klipptar út úr sjónvarps-
þætti og þannig er því farið með
löggurnar Gunnar og Birki Li.
Þeim fyrrnefna er þó við bjarg-
andi.
Gott morð – vond saga
Skáldsaga
Sólstjakar
eftir Viktor Arnar
Ingólfsson
Mál og menning
2009
bbnnn
Árni Matthíasson