Organistablaðið - 01.07.1971, Blaðsíða 7
Ulrich Teuber, dóccnt:
Danmörk.
GUÐSÞJÓNUSTAN
í nútíð og framtíð.
Guðsþjónustan í lúthersku kirkjunum á Norðurlöndum nú á tímum,
verkar annars vegar mjög hefðbundin, en hins vegar veldur heildar-
myndin áhyggjum. Sem stofnun er kirkjan mótuð af sögufrægum
byggingum, sögulegri umgerð, og i flestum tilfellum íhaldssömum
starfsmönnum. Annars verður oft vart vaxandi óánægju meðal kirkj-
unnar manna, yfirleitt til guðsþjónusta og þar með kirkna í dag. Er
þjóðfélagsþróunin ekki orðin svo ör og liefur kirkjan ekki dregizt
svo aftur úr innan frá, að guðsþjónustan nú á dögum geti i mesta lagi
skoðazt sem guðsþjónusta frá síðustu áratugum?
Ef við lítum á umhæturnar á sviði kennslunnar í kirkjuhljómlist-
tnni, komumst við að þeirri niðurstöðu, að frá sjónarfióli okkar hafa
margar róttækar hreytingar og umbætur átt sér stað á síðustu ára-
tugum. En við hljótum lika að viðurkenna, að þessar umbætur voru
ekki nógu róttækar til þess að geta uppfyllt stöðugt vaxandi kröfur
um þátttöku í tilraunastarfsemi, sem við erum vitni að í dag.
Baksvið þessara tilrauna er margvíslegt: óskir um meira lýðræði
mnan hins klerklega forms, lausn undan sagnfræðilegum mál- og
niúsíkstíl, mótun nýs félagsanda, sem ihafinn er yfir gömul takmörk
°g ‘hömlur, og ekki eízt þrá eftir dultrú, er skjótt myndi hafa áhrif
a helgisiðina. Öryggisleysi kirkjunnar sjálfrar hefur um undanfarin
ar m. a. sýnt sig í því, að menn húa til guðfræðilegar röksemdir fyrir
að byggja litlar kirkjur, sem ýta undir fyrirlestrahald, þ. e. a. s.
Predikunarstarfið, og koma í veg fyrir músíkalska þróun, samtímis
'Pví að menn viðurkenna vanmátt sinn í því að endurnýja flutninginn,
sem bæði getur orðið skýr og þó svo ríkur að hann nái til alls safn-
aðarins.
í umræðunum um ílutningsvandamálið sézt mönnum oft yfir:
1) að skiljanleiki orðtáknanna er í rauninni ekki á háu stigi, hvort
héldur orðin eru mælt af munni fram eða sem söngtexti,
2) að mátturinn að baki orðsins getur 'haft veruleg áhrif á óbeinan
hátt, svo sem t. d. persónuleg hvatning, listrænt fLutningsform og
í því sambandi ekki sízt músíkalski búningurinn, og,
ORGANISTABLAÐIÐ 7