Morgunblaðið - 18.11.2009, Page 5
Fréttir 5INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2009
JÓLAHLAÐBORÐIN virðast ætla
að njóta mikilla vinsælda í ár, að
sögn talsmanna þriggja staða sem
bjóða gestum sínum upp á slíkar
veitingar.
Andrés James Andrésson í Veislu-
turninum í Smáranum sagði að þar
væri allt að verða uppbókað um helg-
ar til jóla. Veisluturninn byrjaði með
svonefndan „jólabrunch“ um síðustu
helgi og verður með jólahlaðborð í
hádeginu virka daga. Andrési finnst
eftirspurnin vera mun meiri nú en í
fyrra og tóku pantanir að berast í
september. „Það eru allir sammála
um að það sé miklu meira um að vera
nú en í fyrra,“ sagði Andrés. „Það er
bara hátíð í bæ hjá okkur, jólatrén
eru komin upp og allt tilbúið.“
Silfur restaurant á Hótel Borg
verður með jólahlaðborð í hádeginu
og á kvöldin frá 27. nóvember og til
jóla. „Það má segja að hvert einasta
símtal nú sé um jólahlaðborð,“ sagði
Guðrún Veronika Þorvaldsdóttir hjá
Silfri. Henni þótti meira hafa verið
hringt nú en á sama tíma í fyrra og
sagði að mikið væri búið að bóka.
Þegar er uppbókað suma daga.
„Þetta kemur ekki á óvart. Það er
alltaf svona um jólin. Þetta er alltaf
jafn vinsælt,“ sagði Guðrún Vero-
nika.
Skíðaskálinn í Hveradölum býður
upp á jólahlaðborð um helgar til jóla.
Gestum er boðið að koma með rútu
og á dansleik með lifandi tónlist eftir
matinn og er svo ekið aftur til
byggða. Vignir Guðmundsson veit-
ingamaður sagði að töluvert mikið
hefði verið spurt um jólahlaðborðið
hjá þeim í ár en eftirspurnin hefði
byrjað seinna en venjulega. Hann
stílar mest inn á að fá hópa að jóla-
hlaðborðinu.
„Fólk er seinna til að taka ákvarð-
anir en það var. Þetta er öðruvísi
ástand,“ sagði Vignir. gudni@mbl.is
Mikil ásókn í
jólahlaðborðin
Veitingahús hafa vart undan við að
bóka Meira að gera nú en í fyrra
MÖRGUM þykir það ómissandi
þáttur í aðdraganda jóla að fara á
jólahlaðborð. Veitingahús og
veislusalir bjóða upp á jólahlaðborð
með ólíkum áherslum og ívafi.
Verðið er víða lægra í hádeginu
en á kvöldin og dýrara um helgar
en virka daga. Sum veitingahús
bjóða upp á skemmtiatriði eða
dansleiki jafnframt jólamatnum.
Morgunblaðið/Kristinn
Hitað upp fyrir jól
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
BERÐU SAMAN VERÐ OG ÞJÓNUSTU
NÆST ÞEGAR ÞÚ FLÝGUR
HVERS VEGNA VELUR ÞÚ ICELANDAIR?
• Icelandair er í fyrsta sæti meðal evrópskra flugfélaga það sem af er árinu 2009
fyrir stundvísi á flugleiðinni milli Evrópu og Bandaríkjanna.
• Í september var Icelandair í fyrsta sæti þegar skoðuð var stundvísi flugfélaga sem
fljúga á stuttum og meðallöngum flugleiðum innan Evrópu.
• Icelandair hefur á þessu ári verið í fyrsta sæti þegar litið er til áreiðanleika flugfélaga
í Evrópusambandi flugfélaga, þ.e. Icelandair hefur aflýst flugi sjaldnar en allir aðrir.
Kröfur í Landsbankann
Stapi
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Gildi
Lífeyrissjóður verslunarmanna
Lífeyrissjóðir Bankastræti 7
Lífeyrissjóður bankamanna
Almenni lífeyrissjóðurinn
Íslenski lífeyrissjóðurinn
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
LífeyrissjóðurVestfirðinga
Eftirlaunasjóður stm.Hafnarfjarðar
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
Kjölur lífeyrissjóður
Eftirlaunasjóður íslenskra atvinnuflugmanna
Festa lífeyrissjóður
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Stafir lífeyrissjóður
Lífeyrissjóður bænda
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
Lífeyrissjóður Hjúkrunarfræðinga
Lífeyrissjóður verkfræðinga
Lífeyrissjóður vestmannaeyja
Séreignadeild lífeyrissjóðs tannlæknafélags
Eftirlaunasjóður starfsmannaGlitnis
Lífeyrissjóður akraneskaupstaðar
Lífeyrissjóður StarfsmannaReykjavíkurborgar
Lífeyrissjóður StarfsmannaReykjavíkurborgar
Lífeyrissjóður hf. Eimskipafélags Íslands
Samtryggingardeildar lífeyrissjóðs
Lífeyrissjóðurinn skjöldur
38,2
9,1
5,6
5,3
4,4
4
3,4
3,4
3,1
3
3
2,7
2,1
2
1,8
1,7
1,5
1,4
0,8
0,9
0,6
0,3
0,23
0,2
0,2
0,15
0,07
0,045
0,031
0,016
99,242 ma. kr.Samtals:
Lífeyrissjóðir
Tölur eru í milljörðum króna
Erlendir bankar
Deutsche Bank 403
HSBC 30
Goldman Sachs 25,5
UBS 7,4
Merrill Lynch 6,9
JP Morgan 3,3
Íslenskir bankar
Glitnir 94
Sparisjóðabankinn 77
NBI - Nýi Landsbankinn 72
Kaupþing 37
Straumur 25
Byr 3,8
Sjávarútvegsfyrirtæki
Skinney Þinganes 1,1
Stálskip 0,3
Opinberir aðilar
Fjármálaráðuneyti 82
Reykjavíkurborg 5,1
Sjávarútvegs&Land 0,08
Orkuveita Reykjavíkur 0,06
Reykjanesbær 0,5
Ýmsir
Noord Holland-umdæmi 15
Lögregluumdæmi Lundúna 6,3
Chelsea Building Society 3,9
Star Energy 3,3
Bæjarsjóður Surrey 3,1
Oxford-háskóli 2,2
Bæjarsj. Stoke on Trent 0,6
Lögreglan í Dorset, Engl. 0,4