SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 12

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 12
12 30. maí 2010 H ann kom eins og storm- sveipur inn í íslenskt tónlist- arlíf, skeggjaður með snúð í hári. Það er nóg að horfa á Högna Egilsson til að átta sig á því að hann fer ekki troðnar slóðir, frekar en nafnið gefur til kynna. Hann er söngvari og helsti lagasmiður einnar vinsælustu hljómsveitar landsins, Hjaltalín, sem vakið hefur athygli innan lands og utan fyrir frumlega nálgun við viðfangsefni sitt – poppið – og tilvísanir í allar mögu- legar áttir, ekki síst blessaða klassíkina. Skyldi engan undra, Högni ólst upp við Bach og Mozart og í vor brautskráist hann frá Listaháskóla Íslands með próf í tónsmíðum upp á vasann. Burtfar- artónleikarnir verða einmitt í Þjóðmenn- ingarhúsinu í dag (laugardag) kl. 16. En hver er hann annars, þessi síðhærði og bjarti halur, sem af útlitinu að dæma gæti allt eins hafa verið uppi á vík- ingaöld? Högni fæddist í Reykjavík 3. október 1985, sonur Egils B. Hreinssonar, pró- fessors í verkfræði við Háskóla Íslands, og Ernu Guðrúnar Árnadóttur íslensku- fræðings, sem starfar hjá mennta- málaráðuneytinu. Raunar standa fleiri velunnarar tungunnar okkar að Högna en afar hans eru Hreinn Benediktsson málfræðingur og Árni Böðvarsson, rit- stjóri Orðabókar Menningarsjóðs. Þá er maður Sigríðar Kristjánsdóttur, föð- urömmu hans, Jónas Kristjánsson, hand- ritafræðingur og fyrrverandi for- stöðumaður Árnastofnunar. Móðuramma Högna er Guðrún Ágústa Sigurðardóttir. Högni á þrjú systkini, Arndísi Hrönn leikkonu og Hrafnkel Orra sellóleikara, sem eru eldri, og tvíburabróðurinn Andra, sem er stærðfræðingur að mennt. „Við erum tvíeggja og afskaplega ólíkir í útliti og háttum. En samt ekki,“ segir Högni og hallar undir flatt. Fjórðungi bregður til föður Foreldrar Högna skildu þegar hann var sex ára en seinni maður móður hans er Eiríkur Baldursson vísindaheimspek- ingur. Börn Eiríks og stjúpsystkini Högna eru Ingvi, Ragnheiður og Finnur. Tónar flæddu um bernskuheimili Högna. Faðir hans er liðtækur píanisti og var virkur í djasssenunni hér heima á ní- unda og tíunda áratugnum. Sendi meira að segja frá sér eina plötu. „Pabbi er mjög músíkalskur maður,“ segir Högni. „Mamma er það raunar líka enda þótt hún leiki ekki sjálf á hljóðfæri. Hún hefur spilað Bach, Mozart, Händel og hina gömlu meistarana í botni frá því ég man eftir mér.“ Við blasir að Högni hefur tónlistargáf- una frá foreldrum sínum. „Auðvitað eru áhrifaþættirnir fleiri en stendur ekki í Njálu að fjórðungi bregði til föður og fjórðungi til móður?“ Rétt er það. Fimm ára hóf Högni fiðlunám hjá Lilju Hjaltadóttur í Suzuki-tónlistarskólanum. „Ég djöflaðist á fiðlunni í tíu ár,“ segir hann sposkur á svip. „Það var mjög sterkt félagslegt aðhald hjá Suzuki, við fórum í ferðir út á land og til útlanda, og mér leiddist aldrei í fiðlunáminu en það væri ofmælt að ég hafi verið í því af lífi og sál. Á tímabili hugsaði ég um að hætta og snúa mér að karate eða einhverju slíku en var hvattur til að halda áfram. Ég leit Hvers vegna ferð þú ekki í tónlist? Hann fórnaði karate fyrir fiðluna og síðar mynd- list fyrir tónsmíðar. Guði sé lof, segja margir en Högni Egilsson í Hjaltalín hefur á undraskömm- um tíma skipað sér á bekk með okkar framsækn- ustu og vinsælustu tónlistarmönnum. Fáir hafa komið við hjartað í þjóðinni með sama hætti. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ljósmyndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.