SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Page 15

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Page 15
30. maí 2010 15 S tórtónleikar Hjaltalíns og Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands fara fram í Há- skólabíói 16. júní næst- komandi. Verður þar leikið efni af breiðskífum Högna og félaga, einkum Terminal, auk fimm laga sem sérstaklega eru samin fyrir þetta tilefni. Sinfónían hefur gert töluvert af því á liðnum árum að efna til samstarfs við popphljómsveitir, flestar hafa þær þó staðið í eld- línunni árum og áratugum sam- an. Fyrsta breiðskífa Hjaltalíns kom út fyrir rúmum tveimur ár- um. „Þetta er mikill heiður fyrir okkur og tónleikarnir leggjast vel í okkur,“ segir Högni en frum- kvæðið kom frá Hagatorgi. Einhver gæti bent á að þetta sé rökrétt skref á ferli Hjaltalíns en sveitin er að hluta skipuð strengja- og blásturshljóðfærum, auk þess sem hún kom fram á tónleikum með kammersveit á Listahátíð í Reykjavík í fyrra – við góðan orðstír. „Það er alveg rétt, þetta er alls ekki óeðlilegt framhald á þeim verkefnum sem við höfum verið að fást við,“ segir Högni. „Bara heldur stærra í sniðum.“ Heiðarlegt samtal Talað hefur verið um að Hjaltalín byggi brú milli heima, frá poppi yfir í klassík enda komi aðdá- endur sveitarinnar úr báðum átt- um. Sjálfur vill Högni ekki tala um brú í þessu sambandi. „Við lítum fyrst og síðast á okkur sem popphljómsveit enda þótt við viljum gefa tónlist liðinna alda vægi í nútímalegu samhengi. Þetta eru öðru fremur tilvísanir í fortíðina, heilbrigt og heiðarlegt samtal milli greina án þess að það eitt og sér sé forsenda fyrir sköpuninni.“ Högni og Viktor Orri fiðluleik- ari Hjaltalíns útsetja tónlistina sjálfir fyrir sinfóníuhljómsveit, auk þess sem Hrafnkell Orri Eg- ilsson, sellóleikari og bróðir Högna, fer höndum um fáein lög. Hann er meðlimur í Sinfón- íuhljómsveit Íslands en hefur verið í leyfi í Berlín á þessu starfsári. „Þar sem við gerum þetta sjálfir verður útsetningin samofin lagasköpuninni,“ útskýrir Högni. „Vonandi getum við leikið okkur með það á listrænan hátt.“ Hann hefur mjög víðtækan áhuga á tónlist, drekkur í sig „þetta venjulega“ en líka djúpa og hæga minimalteknómúsík og hefur eins og hver annar ungur maður yndi af skífuþeytum sem bræða saman hrynskipti og tón- tegundir. „Það er alltaf gaman að spegla óhljóðin, hluti sem gerðir eru af hvatvísi. Það þarf nefni- lega alls ekki að vera samasem- merki milli hvatvísi og óvand- virkni.“ Margir snertifletir Tónsmíðaneminn hefur líka fylgst grannt með nýrri skrifaðri tónlist. „Í seinni tíð snýst tón- sköpun að miklu leyti um hljóð, litbrigði sem eru þegar allt kem- ur til alls ekki svo ótengd popp- inu, þó formstrúktúrinn sé hugs- aður á allt annan hátt. Snertifletirnir eru margir. Sjáðu til dæmis sönglagahefðina í Bandaríkjunum, menn eins og Leonard Cohen, Neil Diamond og Paul Simon, hún er undanhaldi á yfirborði poppmenningarinnar. Nú er einblínt á hljóðið og þar gefið listrænt rými til sköpunar.“ Hann talar um að þýða poppið yfir á önnur svið – og öfugt. „Þegar allt kemur til alls er þetta allt músík. Vitnisburður um ákveðið andartak, ákveðinn tíma.“ Högni tæpir á frelsinu í tónlist – og listum almennt. „Frægt var þegar Stalín hótaði að hengja Sjostakovitsj fyrir dulin skilaboð í einni sinfóníu hans. Nú er tíðin önnur.“ Högni heillast ekki síður af poppmenningunni í heild og seg- ir vora tíma speglast vel í nýj- ustu stjörnunni, Lady Gaga. „Þegar hér er komið sögu er búið að brjóta svo margar reglur í poppmenningunni að reglurnar eru ekki lengur til. Þetta hefur Lady Gaga fært sér í nyt – með eftirtektarverðum hætti. Hún kastar fram hlutum sem eru svo dýrir í framkvæmd og klikkaðir á sinn siðferðislega spillta hátt að við eigum ekki orð. Svo selur hún sig stórfyrirtækjum með glamúr. Hún virðist algjörlega hömlulaus. Maður hlýtur að velta fyrir sér hvert næsta skref sé. Hversu langt getur samfélagið leitt okkur? Eru engin takmörk?“ Kastar aldrei til höndum Högni vekur athygli á því að um leið og Lady Gaga gengur fram af fólki leiði hún fagmennskuna til öndvegis. Þessi vandvirkni er honum að skapi. „Minn metn- aður stendur til þess að gera hlutina vel, koma afurðinni frá mér á snyrtilegan hátt, hand- verkslega og hugmyndalega. Af- staðan verður líka að vera skýr, sérstaklega á þessum tímum. Það er skylda listamannsins að taka afstöðu til augnabliksins sem hann lifir í. Það eina sem við getum treyst á er innihald sem afleiðing af vinnu. Listamaðurinn verður að vera nógu auðmjúkur til að bera virðingu fyrir því sem hann er að gera. Að öðrum kosti er stríðið tapað.“ Högni í góðri sveiflu á Innipúkanum síðasta sumar. Morgunblaðið/Eggert Vitnisburður um andartak var líka ásættanleg, um eitt þúsund ein- tök seldust fyrir jólin. „Það er viðunandi fyrir fyrstu plötu. Við vorum sátt.“ Ekki var þó allt búið. Vorið 2008 var Hjaltalín áberandi þegar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna voru kynntar. Högni meðal annars tilnefndur fyrir lagasmíðar og söng. „Þar var ég allt í einu á bekk með mönnum eins og Páli Óskari og Mugison,“ segir hann og glottir. Athyglin jókst við þetta og salan á Sleepdrunk Seasons tók kipp. Hjaltalín hafði meðbyr. Leiðin lá meðal annars til Lundúna, þar sem sveitinni var vel tek- ið. Hafi hún ekki verið búin að því söng sveitin sig endanlega inn í hjarta þjóð- arinnar um sumarið – óvænt, að sögn Högna. „Ég var uppi í sumarbústað að hlusta á plötuna hans Páls Óskars og hreifst af henni, sérstaklega einu lagi, Þú komst við hjartað í mér, og langaði strax að henda í útsetningu, mýkja dans- teknóstemninguna í laginu.“ Óhemjuþroskað verk Eins og allir vita sló lagið ærlega í gegn í flutningi Hjaltalín og varð einn helsti smellur ársins á Íslandi. Högni segir við- tökurnar hafa komið sér á óvart. „Hug- myndin var aldrei að gera lagið vinsælt enda ekki hægt að ganga út frá því í jafn- litlu samfélagi og okkar. Markmiðið var einfaldlega að gera eitthvað sem okkur þótti skemmtilegt. Það var ánægjulegt að svona margir aðrir hefðu gaman af þessu líka.“ Hjaltalín var komin á stall í íslensku tónlistarlífi og mikil eftirvænting lá í loftinu þegar önnur breiðskífa bandsins, Terminal, kom út í nóvember síðast- liðnum. Gefum Arnari Eggerti Thorodd- sen, tónlistargagnrýnanda Morg- unblaðsins orðið, en í niðurlagi umsagnar sinnar um plötuna sagði hann: „Terminal fer þannig yfir allan skalann, en fyrst og síðast er um að ræða óhemjuþroskað og metnaðarfullt verk og ekki er skrítið að fólk grípi til Sigur Rósar-líkinga þegar talað er um sveitina […] Ég á ekki lengur erfitt með að átta mig á Hjaltalín. Þetta er allt saman orðið mjög skýrt. Þessi öndvegissveit hefur hér skilað sannkölluðu meistaraverki, verki sem er enn að vaxa og hræra upp í þessum haus. Sannkallað þrekvirki þeg- ar allt er saman tekið, hreint út sagt glæsileg smíð. Hæglega plata ársins og plata síðustu ára ef út í það er farið.“ Við þetta er engu að bæta. ’ Ég var stöðugt að eiga við útsetningarnar, bæta inn kórum og öllu mögulegu. Gunni hefur örugglega verið að verða brjálaður á mér,“ segir Högni hlæjandi. „En það sást ekki á honum enda er Gunni al- veg dásamlegur maður.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.