SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Síða 25

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Síða 25
30. maí 2010 25 Hvernig var Ellý sem persóna? „Ellý var feimin og hlédræg og vinur vina sinna. Hún var alls ekki allra. Stundum kom hún með plötur til mín og gaf mér. Hún var mjög myndarleg, saumaði út, heklaði og prjónaði og gaf mér til dæmis dúka undir diska sem ég nota á hverjum einustu jólum. Ég minnist Ellýjar með mikilli hlýju.“ Sjálfsgagnrýnin Anna Mjöll Þið hjónin eigið tvö börn, Andra Gauk sem er læknir og Önnu Mjöll sem er söngkona í Los Angeles. Gefurðu Önnu Mjöll ráð? „Nei, það er frekar að hún gefi mér ráð. Hún er ansi góð á sínu sviði, mjög músíkölsk. Við Gaukur vissum lengi vel ekkert hvað hún var að bralla í söngnum. Einu sinni, fyrir mörgum árum, þegar við vorum í Ameríku vildi hún endilega fara í stúdíó þar sem hægt er að taka upp lög með sjálfum sér og fá á kassettu. Hún nauðaði lengi um þetta og við létum loks undan henni. Við spil- uðum svo kassettuna í bílnum og það kom okkur á óvart hversu gott þetta var hjá henni. Hún hafði ekkert verið að flagga því sem hún var að gera.“ Hefurðu ekki áhyggjur af henni úti í þessum stóra heimi? „Ekki lengur. Ég hafði miklar áhyggjur þegar hún var ein að þvælast. Nú er hún orðin heimavön og kann á hlutina. Hún syngur talsvert í klúbbum og Gaukur var að koma frá Los Angeles þar sem hann var að spila inn á jólaplötu með henni. Annars er Anna Mjöll mjög sjálfs- gagnrýnin, henni finnst hún aldrei nógu góð söng- kona.“ Er ekki bara kostur að vera sjálfsgagnrýnin? „Jú, en það getur verið fjötur um fót að vera sífellt að íhuga hvort maður geti ekki örugglega gert betur.“ Hvernig uppeldi fengu börnin ykkar Ólafs Gauks? „Við vorum ekki í sérstöku uppeldi heldur tókum börnunum okkar eins og manneskjum. Þau voru vinir okkar og eru enn. Þau voru þægileg börn, ekkert vesen á þeim, en maður áttaði sig ekki á því á þeim tíma hvað maður var heppinn. Við vorum mikið með þeim. Við unnum á kvöldin um helgar og virku dagarnir voru lausir og þá vorum við með börnunum. Þannig að vinn- an truflaði fjölskyldulífið ekki. Við Gaukur vorum sennilega heppnari þar en margir.“ Á þeim árum sem þú varst að syngja, var mikið rugl á fólki í þessum bransa í sambandi við brennivín? „Já, það var rugl á þeim sem höfðu áhuga á slíku. Ég reyndi að fá mér vín og sígarettur en það er eitthvað í mér sem stoppar mig af. Ég gerði ítrekaðar tilraunir til að læra að reykja en tókst aldrei að reykja ofan í mig svo ég hætti loks þessu sígarettustandi. Ég hafði enga hæfi- leika í það. Enn í dag finnst mér gaman að fá mér rauð- vín og hvítvínsglas en meira er það ekki. Börnin eru enn vonlausari en ég að þessu leyti.“ Allt gott við Evróvisjón Í kvöld horfir þjóðin á Evróvisjón. Hvernig finnst þér Hera Björk og lagið sem hún flytur? „Hera Björk er glæsileg söngkona. Mér finnst enginn vafi á því að hún á heima þarna. Og lagið er flott. Það er allt gott við þetta framlag okkar í ár. Anna Mjöll tók þátt í Evróvisjón árið 1996 og við Gaukur vorum þar. Eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert um dagana var að vera á Evróvisjón. Það er svo mikið um að vera og mikið látið með það fólk sem kom þarna fram. Ég var í kynningarstarfseminni og tapaði kílóum, það var svo mikið að gera.“ Þú ert glæsileg kona. Hvernig heldurðu þér í svona góðu formi? „Ætli þetta séu ekki bara genin. Ég geri ekki neitt. Kannski heldur það mér í formi að ég hef aldrei áttað mig á því að tíminn líður. Ég lifi í eins konar tímaleysi og held bara áfram.“Morgunblaðið/Golli Ég er bara þakklát ef fólk þekkir mig. Mér finnst það hlýlegt á okkar litla landi þegar ókunnugt fólk heilsar manni eða víkur að manni góðri kveðju. ’ Ég vildi vissulega alltaf gera vel og reyndi það, en ég var ekki að springa úr söng- konumetnaði. Ég held að ég hafi tekið þessu öllu með mjög mikilli ró. Þetta starf átti af einhverjum ástæðum ágætlega við mig. Það er engin ástæða til að verða vitlaus og fara að líta stórt á sig þótt mað- ur rauli einhver lög á sviði eða syngi þau á plötu.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.