SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 35

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 35
30. maí 2010 35 Vasi úr laxaleðri og kálfaskinni, Arndís Jóhannsdóttir, 2000. ’ Óvæntasti gripurinn er gítartaska frá Karl Lagerfeld. Hálsmen og armband úr sjávarfangi, silfri og hlýraleðri, Dýrfinna Torfadóttir, 2010. Næla með kubbum úr silfri, laxa- og skötuleðri, Helga Mogensen, 2009. S ennilega hafa ófá unglingatár fallið yf- ir ballöðunum hans Pauls Youngs á níunda áratugnum þegar söngvarinn sigraði heimsbyggðina með lögum eins og Wherever I Lay My Hat (That’s My Home) og Come Back and Stay. Hvort vinsældirnar mátti rekja til angurværrar og allt að því grát- klökkrar söngraddarinnar eða dapra svipsins og hártoppsins sem slútti yfir andlit sjarmörs- ins eins og markísa, skal ósagt látið. Hitt er víst að mörg meyjarhjörtun tóku aukaslag við það eitt að heyra í goðinu í útvarpinu eða sjá því bregða fyrir á plakati eða sjónvarpsskjá. Paul Young fæddist í Luton í Bedfordshire á Englandi þann 17. janúar árið 1956, í miðið af þremur systkinum. Sem gutti lék hann fót- bolta eftir skóla eins og hver annar strákur en á unglingsárunum notaði hann frístundirnar til að plokka bassa í hinum ýmsu bílskúrs- böndum, þar sem hann var fljótlega farinn að syngja að auki. Young varð fyrst þekktur í Bretlandi undir lok áttunda áratugarins þegar hljómsveit hans, Streetband, kom lagi í 18. sæti breska smáskí- fulistans. Þetta var árið 1978 en ári síðar hætti hljómsveitin og Young stofnaði hljómsveitina Q-Tips. Hún kom ekki lagi á lista en náði fót- festu sem ágætis tónleikaband. Barðist við raddbandavandamál Eftir að Q-Tips lagði upp laupana 1982 skrifaði Young undir samning við útgáfufyrirtækið CBS Records sem sólisti. Fyrstu tvær smáskífur hans náðu takmörkuðum vinsældum en öðru máli gegndi um þriðju smáskífuna, sem var ábreiða Youngs á klassíska slagaranum Where- ver I Lay My Hat. Lagið sat í fyrsta sæti breska listans í þrjár vikur árið 1983 og varð fyrsta lag hans af 14 sem náðu inn á top 40 sæta listann í Bretlandi á næstu árum. Á eftir fylgdu lög eins og Come Back and Stay, Love of the Common People og Everytime You Go Away sem náði mestum vinsældum á heimsvísu en lagið fór í fyrsta sæti bandaríska popplistans árið 1985. Á þessum tíma kom Young fyrir sem hlýleg- ur og vinalegur tónlistarmaður sem flutti heimsbyggðinni hvíta sálartónlist þótt hann sætti stundum gagnrýni fyrir fatasmekk sinn. Árið 1984 var erfitt fyrir Young því fyrsti stóri hljómleikatúr hans um Bandaríkin reyndi svo á raddbönd hans að hann var neyddur til að hvíla röddina það sem eftir var ársins. Hann náði sér þó nægilega til að syngja upp- hafs- og lokalínur hins fræga Band Aid- jólalags Do They Know It’s Christmas? Hann kom líka út annarri stóru sólóplötu sinni, The Secret of Association, sem fylgdi eftir vinsæld- um fyrstu plötunnar, No Parlez, með ágætum og tryggði velgengni hans í Bandaríkjunum, Japan og Ástralíu auk Evrópu. Engu að síður átti hann áfram af og til í vandræðum með raddheilsuna. Á næstu árum fór minna fyrir Paul Yong en 1990 kom hann lagi í áttunda sæti bandaríska Billboard-listans. Hann dúkkaði reglulega upp á stórtónleikum, s.s. á 70 ára afmælistón- leikum Nelson Mandela árið 1988 þar sem hann söng lag Crowded House, Don’t Dream It’s Over og á minningartónleikum um Freddie Mercury árið 1992 þar sem hann söng lagið Radio Ga Ga ásamt eftirlifandi liðsmönnum úr Queen. Hann gaf út vinsælan dúett, Senza una donna, með ítalska blússöngvaranum Zucc- hero árið 1991 og tók upp annan dúett með írsku hljómsveitinni Clannad sama ár fyrir kvikmyndina Switch. Kokkakeppni í sjónvarpi Árið 1993 losnaði Young undan samningi sín- um við CBS/ Sony Records útgáfufyrirtækið og gaf út færri plötur eftir það. Hann endurvakti gömlu hljómsveitina sína Q-Tips sama ár og spilaði á nokkrum tónleikum en sú end- urkoma varði stutt. Honum brá aftur fyrir árið 1996 á undanúrslitaleik Englands og Þýska- lands á Evrópumeistaramótinu í fótbolta þar sem hann kyrjaði þjóðsöng Breta á leikvang- inum. Eftir þetta deildi hann tíma sínum á milli fjölskyldunnar, hinnar óformlegu Tex-Mex hljómsveitar Pacaminos og að troða upp á „eitís“ hljómleikaferðum í Bretlandi á árunum 2001-2008. Í september árið 2006 birtist hann í matreiðsluþætti í breska ríkissjónvarpinu BBC1 þar sem frægt fólk keppti í eldamennsku og varð hlutskarpastur í sínum þætti. Ári síðar keppti hann í öðrum matreiðsluþætti, Hell’s Kitchen, sem sýndur hefur verið í sjónvarpi hér á landi. Samkvæmt opinberri vefsíðu Pauls Youngs vinnur hann nú að útgáfu nýrrar plötu og er gert ráð fyrir því að hún komi út síðar á árinu. Paul Young er giftur fyrrverandi fyrirsætu, Stacey Smith að nafni, en þau hittust við gerð myndbands við lagið Come Back and Stay árið 1983 og eiga þrjú börn saman. Þau skildu árið 2006 en tóku aftur saman þremur árum síðar. ben@mbl.is Paul Young þótti sætur en smekklaus á föt. Hann er enn að og kemur út plata síðar á árinu. Hvað varð um … … Paul Young? ’ Honum brá aftur fyrir árið 1996 á undanúrslita- leik Englands og Þýska- lands á Evrópumeistaramótinu í fótbolta þar sem hann kyrjaði þjóðsöng Breta á leikvanginum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.