SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Page 41
30. maí 2010 41
Þ
að er afskaplega freistandi að
ganga út frá því að aust-
urrísk vín séu einhvers kon-
ar framlenging á þýskum
vínum. Í Austurríki tala menn þýsku,
hafa yndi af því að ganga um í Led-
erhosen og ein meginþrúgan heitir
Riesling og rík hefð er fyrir sætum
Auslese-vínum. Þurfa menn frekari
sannana við?
Ekkert væri hins vegar fjær sanni.
Þegar upp er staðið eiga austurrísk vín
nefnilega frekar lítið sameiginlegt með
þýsku vínunum nema tungumálið á
flöskumiðunum.
Byrjum á loftslaginu.
Austurríki er ekki á jaðri
hins mögulega líkt og
Þýskaland heldur nýtur
góðs af meginlandsloftslagi
Mið-Evrópu. Það ætti því
fáum að koma á óvart að
einhver helsti vaxt-
arbroddur austurrískrar
víngerðar síðustu árin hef-
ur verið framleiðsla á stöð-
ugt betri rauðvínum.
Austurrískir vínbændur
njóta líka góðs af ein-
stökum þrúgum sem gefa
framleiðslu þeirra sér-
stöðu. Auk Riesling er þrúgan Grüner
Veltliner einkennandi fyrir aust-
urríska hvítvínsgerð. Um margt ein-
stök þrúga sem í höndum góðra vín-
gerðarmanna skilar einstakri afurð. Í
suðurhlutanum er svo að finna spenn-
andi vín úr Sauvignon Blanc og Char-
donnay, sem oft er kölluð Morillon á
þessum slóðum.
Rauðu þrúgurnar Zweigelt, Blau-
fränkisch og St. Laurent eru síðan
smám saman að koma austurrískum
rauðvínum á kortið.
Síðustu áratugir hafa hins vegar
ekki verið neinn dans á rósum. Aust-
urrísk víngerð hrundi árið 1985 í kjöl-
far þess að upp komst að óprúttnir
dreifingaraðilar höfðu bætt frostlegi út
í vín til að gera það sætara. Vínið var
hræbillegt sætvín sem átti að fara í út-
flutning til Þýskalands. Þegar upp
komst um málið datt botninn al-
gjörlega úr vínútflutningi Austurríkis.
Þetta mál leiddi hins vegar til al-
gjörrar uppstokkunar á víniðnaði
landsins – í raun byltingar. Sett voru
einhver ströngustu lög um vínfram-
leiðslu sem til eru í heiminum. Í stað
áherslu á ódýr vín er allur fókus nú á
mestu mögulegu gæði. Samsetning
markaðarins breyttist einnig frá fáum
stórum aðilum í marga smærri.
Hvert sem komið er á víngerð-
arsvæði Austurríkis iðar allt af lífi. Þótt
margt kunni að virka gamaldags og
byggjast á gömlum hefðum er Aust-
urríki með framsæknustu víngerð-
arlöndum Evrópu.
Sem betur fer er hins vegar haldið í
hinar krúttlegu hefðir, ekki síst
Heurigen-hefðina sem felst í litlum
vínknæpum sem alls staðar er að finna
og bjóða upp á vín viðkomandi bónda
og einfaldan, sveitalegan mat. Vínar-
snitsel er auðvitað ómissandi en einnig
alls konar kæfur og svínafita í mis-
munandi myndum.
Austurríki skiptist upp í fjögur vín-
héruð, Niederösterreich, Burgenland,
Steiermark og Vín. Þessi fjögur héruð,
sem öll er að finna í austurhluta lands-
ins, eru síðan flokkuð niður í alls sex-
tán undirsvæði, átta í Niederöster-
reich, fjögur í Burgenland og þrjú í
Steiermark. Höfuðborgin Vín er síðan
óskipt vínframleiðslusvæði og raunar
eina höfuðborg heims sem getur státað
af slíku.
Langmikilvægast er héraðið Niede-
rösterreich í norðausturhorni lands-
ins. Langmikilvægast í magni talið er
Weinviertel (um helmingur héraðsins)
en bestu svæðin eru lítil svæði við
bakka Dónár, Wachau, Kremstal og
Kamptal.
Yfir þau öll gnæfir Wachau, sem
trónir á toppi austurrískrar víngerðar,
að minnsta kosti hvað hvítvínið varð-
ar. Í stöllum á 33 km löngu svæði við
hina bröttu árbakka Dónár eru rækt-
aðar víntegundir, fyrst og fremst úr
Riesling og Grüner Veltliner, sem eru á
algjörum heimsmælikvarða.
Þegar árið 1983 tóku framleiðendur
þar sig saman og mynduðu fé-
lagsskapinn Vinea Wachau Nobilis
Districtus, sem hefur m.a. búið til sér-
staka gæðaflokkun fyrir vín Wachau.
Fyrsti flokkurinn er nefndur Steinfed-
er og er það vín fremur létt og einfalt.
Næst kemur flokkurinn Federspiel, en
þá er vínið orðið meira um sig og loks
er besta vínið flokkað sem Smaragd.
Fleiri góð undirsvæði er að finna í
Niederösterreich svo sem Thermenre-
gion og Weinviertel.
Burgenland, við landamæri Ung-
verjalands, er um margt athyglisvert
hérað. Við Neusiedlersee eru nær full-
komnar aðstæður til framleiðslu sæt-
vína og einnig er í þessu héraði að
finna flest rauðvín Austurríkis.
Steiermark er í suðausturhorni
Austurríkis við landamæri Slóveníu.
Víngerðin þar hefur gengið í end-
urnýjun lífdaga með nýrri kynsóð vín-
gerðarmanna sem gjörbreyttu við-
horfum og framleiðsluaðferðum
vínræktenda á þessu svæði. Steier-
mark er fyrst og fremst hvítvínssvæði
– rauðvín eru nær óþekkt á þessum
slóðum og ekki síst vínin úr Sauvignon
Blanc geta verið hreinasta afbragð.
Rósafreyðivínið Schilcher kemur
líka frá Steiermark og er með athygl-
isverðustu sérkennum austurrískrar
víngerðar. Þetta sýrumikla
freyðivín er frá West-
Steiermark og er unnið úr
þrúgunni Blauer Wildbac-
her.
Næst: Portúgal
Austurríska byltingin
Fagurt er í Steiermark í Austurríki.
Vín 101
Tíundi hluti
Steingrímur Sigurgeirsson
r vini sína í matarboðum enda eru þeir til í allt þegar kemur að mat.
Morgunblaðið/Kristinn
„Þessi uppskrift er frá Ottó en hún varð til eitt kvöldið þegar ég var að kvarta yfir því að
mér fyndist ég vera búin að elda allt of oft undanfarið. Hann þyrfti því að koma mér á
óvart með því að elda eitthvað gott. Þá töfraði hann þetta fram úr því sem var til í ís-
skápnum. Þetta er orðið alger uppáhaldsuppskrift, þetta er mjög fljótlegt, ferskt og
gott.“
Marinering
1 kúffull tsk Blue Dragon maukaður hvítlaukur
2 msk Blue Dragon maukaður rauðir chili
4 msk Teryaki sósa
1 msk Sweet chili sósa
2-3 msk Hunang
Smakkið til, það á að vera meira bit en sætleiki í marineringunni.
Salatið
Ferskar og steinlausar döðlur, skornar í bita
Ferskt spínat
Kokteiltómatar skornir í tvennt
5 sm ferskt engifer skorið í þunnar sneiðar
1 zucchini, skorið í 1 sm sneiðar
1 bakki kjúklingalundir
Ferskt parmesan rifið með járni yfir í lokin
Marinerið kjúklingalundirnar í 30 mínútur eða lengur. Steikið á heitri pönnu með mar-
ineringunni, takið svo kjúklingalundirnar af pönnunni en skiljið sósuna eftir og steikið
zucchini og engifer saman.
Raðið döðlum neðst á fat og svo restinni af hráefnunum í þeirri röð sem þau lesast.
Gott er að vera búinn að setja döðlur, spínat og tómata á fatið og svo raða heitu hráefn-
unum ofan á nánast beint af pönnunni, og kjúklinginn síðast. Hellið svo sósunni af
pönnunni yfir salatið. Endið á að rífa parmesan yfir kjúklinginn á fatinu og berið fram.
„Það er dásamlegt að stinga í gegnum salatið og fá sæta döðlu, safaríkan tómat, brag-
mikinn engifer, sterkan kjúkling og parmesan upp í munninn í einu. Alger bragðbomba.“
Alger bragðbomba
Heitt og bragðmikið kjúklingasalat með döðlum,
zucchini og parmesan