SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 49

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 49
30. maí 2010 49 Ég er of þreyttur til að ganga um gólf Of eirðarlaus til að standa kyrr Í of miklu uppnámi til að sitja Af sömu ástæðu get ég ekki legið. Tökum örstutta stund til að melta þetta. Ég þarf að hanga eða fljóta Mig vantar króka og kaðal Svo ég geti hangið Eða stóra laug Til að fljóta í Því ég þarf að hanga eða fljóta Það eru örlög mín Og fleiri manna ef út í það er farið. Ég er í vandræðum Ég get hvergi krók keypt Og allir kaðlar eru uppseldir Þá eru allar laugar fullar Af fljótandi fólki Mikið er sniðugt að sjá það Vesturbæjarlaugin er smekkfull Af líkömum við líkama Hvítum skvapmiklum húðkeppum Sem fljóta láréttir Með spriklandi lappir Troðandi marvaðann Af ánægjulegri örvæntingu Þvílíkt sprikl. Börnin leika sér samt eðlilega Hjóla og sparka í knött Þó fleiri og fleiri Kjósi að hanga í köðlum Ég sá feitt barn hanga í trjágrein Óhugnanleg sjón En í sama hlutfalli Nokkuð kómísk. Hvert er ég að leiða ykkur? Jú. Sjáið til Ég vakna á hverjum morgni Með munninn fullan af salti Og það tekur mig hálfan daginn Að hreinsa það út Það er tímafrekt og leiðinlegt En ég lít á hvert verkefni Sem áskorun Held ég. Loksins tekst mér að smokra mér Húð við blauta húð Ofan í laugina Og þar flýt ég með spriklandi lappir Við hliðina á Össuri Skarphéðinssyni Og nokkrum öðrum góðum Við spriklum skinn við skinn En á milli okkar fljóta diskar Með ágætis brunch Kámugum kartöfluskífum Og fleira góðgæti Þessu skolum við niður með greipsafa Og svo tístum við Eins og stressaður spói Sem er hræddur um ungann sinn. Í fáum orðum: Þetta er tilvera mín Ég bara gæti ekki útskýrt það öðruvísi Ekki fyrir mitt litla líf Ég bugta mig En þvílíkt postulínsandlit Sem þú hefur Ég myndi snerta það Ef ég hefði ekki kámuga fingur Ef það væri í lagi Stúlkan mín. Úr Tími hnyttninnar er liðinn, Mál og menning 2010. Hanga eða fljóta Ljóð Bergur Ebbi Benediktsson var að velta því fyrir mér hvað fólk hefði haft á borðum í fjölskylduveislum í Gimli, hverju fólkið hefði klæðst og þar fram eftir götunum. Því miður lést hún áður en ég lauk við bókina, en ég veit að hún hefði verið mjög stolt yfir því að ég lauk við bókina og enn stolt- ari yfir því að hún skuli hafa komið út á íslensku og að mér hafi verið boðið til Íslands að segja frá henni.“ Langar til að búa hér Þó að Sunley hafi alist upp ætt- ingjalaus, eins og hún orðar það, þá á hún ættingja á Íslandi og segir það hafa verið óvenjulega stund þegar hún kom til Íslands í fyrsta sinn og var boðið í mat hjá ættmennum sínum: „Ég upp- lifði það í fyrsta sinn á ævinni að sitja í herbergi með ættingjum mínum og það tóku allir mér svo vel. Þegar ég svo fór til Gimli að kynna bókina komst ég að því að þar átti ég líka fjölmarga ætt- ingja og hitti meira að segja fólk sem mundi eftir afa mínum og í kjölfarið fékk ég tölvupóst frá níræðri konu sem sagðist vita á mér deili og hún hefði þekkt afa minn.“ Sunley segist vera búin að koma því frá sér sem hún vildi segja frá Íslandi í bili að minnsta kosti, hún sé nú með bók í smíðum sem gerist í Bandaríkj- unum, en hún sé líka með ýmsar fleiri hugmyndir í kollinum sem hana langi til að takast á við og þar á meðal aðra bók sem hefur íslenska skírskotun án þess þó að hún vilji ræða það frekar að svo stöddu. „Bandaríkin eru land innflytjenda, en það hafa ekki verið skrifaðar skáldsög- ur á ensku um hlutskipti íslenskra inn- flytjenda sem ég veit um og fólk hefur líka tekið bókinni vel. Eitt af því sem mér finnst merkilegast við viðtökurnar er sá fjöldi landa minna sem hafa skrif- að mér og sagst ýmist vera á leið til Ís- lands eftir að hafa lesið bókina eða vera nýkomnir þaðan eftir að hafa lesið hana.“ Ekki er bara að Sunley hefur gaman af að heimsækja Ísland, hana langar til að prófa það að búa hér: „Mig dreymir um að búa á Íslandi í a.m.k ár. Ég hef þó ekki efni á því en myndi til dæmis taka því fagnandi fengi ég vinnu við hæfi, til dæmis við kennslu. Ég verð þó að viðurkenna að ég hræðist íslenskan vetur, þó ekki kuldann heldur myrkr- ið.“ Upplestur og frásagnir Eins og getið er í upphafi les Christina Sunley upp úr Freyjuginningu í Þjóð- menningarhúsinu við Hverfisgötun á mánudag og hyggst þá lesa upp úr ís- lensku þýðingunni. Hún mun síðan segja frá tilurð bókarinnar og tengslum sínum við Ísland og svara fyr- irspurnum. Meðal þess sem hún hyggst sýna eru ýmis gögn sem hún viðaði að sér vegna skrifanna. Þriðjudaginn kl. 16.00 verður hún einnig með upplestur en nú í Reykja- víkur Akademíunni, JL-húsinu Hring- braut 121, 4. hæð. Þar verða einnig pallborðsumræður þar sem m.a. verður fjallað almennt um vesturferðir Íslend- inga með skírskotun til nútímans. Sunnudaginn, 6. júní, les Sunley upp úr bókinni í Stofnun Gunnars Gunn- arssonar, Skriðuklaustri, og ræðir við gesti. Síðasti viðburður í heimsókninni verður svo í Amtsbókasafninu á Ak- ureyri miðvikudaginn 9. júní kl. 17.00 og þá mun hún líka lesa upp og ræða við gesti. ’ Ég upplifði það í fyrsta sinn á ævinni að sitja í herbergi með ættingjum mínum og það tóku allir mér svo vel. Christina Sunley grunaði ekki að hún ætti eftir að gefa bók út á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.