SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 55

SunnudagsMogginn - 30.05.2010, Blaðsíða 55
30. maí 2010 55 Bókaflokkurinn neon klikkar ekki frekar en fyrri daginn. Nýj- asta bókin í flokknum og sú 63. í röðinni er dramatísk skáldsaga gríska rithöfundarins Panos Karnezis, Klaustrið. Í bókinni segir af nunnum sem dvelja í klaustri einu á spænskri sléttu á fyrri hluta síðustu aldar, ein- angraðar frá umheiminum að mestu, ef undanskildar eru ein- staka ferðir fárra þeirra til ónefndrar borgar og vísitasíur biskupsins Estrada. Dag einn finnst ferðataska á þrepum klaustursins, með haganlega út- skornum loftgötum á, og í henni kornbarn. Abbadísin, systir María Inés, tekur barnið að sér og telur að Guð hafi sent henni barnið, að fundur þess sé ekkert annað en kraftaverk. Abbadísin er þjökuð af syndum sínum (syndum skv. kenningum kaþ- ólsku kirkjunnar) og telur að verið sé að veita sér tækifæri til að bæta fyrir þær. Nunnurnar í klaustrinu eru hins vegar ekki allar sáttar við þá ákvörðun abbadísarinnar að taka barnið að sér, í stað þess að senda það á munaðarleysingjahæli eða láta biskupinn ákveða hver örlög þess skuli vera. Helsti andstæð- ingur abbadísarinnar er systir Ana sem sér Satan í hverju horni og telur abbadísina andsetna, á valdi kölska. Og málin taka heldur að vandast fyrir abba- dísina þegar biskupinn fréttir af barnsfundinum en hann er ekki syndlaus frekar en önnur börn Guðs. Karnezis dregur upp áhuga- verðar myndir af kirkjunnar þjónum og það blessunarlega án skrautmælgi eða lýsing- arorðafjöld. Abbadísin og bisk- upinn eru aðalpersónur sög- unnar, á yfirborðinu einlægir þjónar Guðs sem falla ekki í freistni, virðast flekklausir og óskeikulir í sínum störfum. En hver hefur sinn djöful að draga og mannlegar hvatir er erfitt að hemja, hversu sterk sem trúin er. Þjáningin sem fylgir hinum meintu syndum er mikil hjá að- alpersónunum og listilega lýst hjá Karnezis sem og hversu mjög trúin getur brenglað rök- rétta hugsun eða hreinlega hindrað hana og valdið fólki þjáningum. Skemmtilegasta persónan er án efa biskupinn Estrada, hokinn af reynslu og hálfþreyttur á öllu umstanginu í kringum embættið, eins og Kar- enzis lýsir oft á tíðum snilld- arlega. Á bls. 167 má t.d. finna texta sem sýnir vel skemmti- legan og tæran stíl Karnezis sem og lifandi mannlýsingar. Bisk- upinn er að renna í hlað hjá klaustrinu á biskupsbílnum, rykugur í framan eftir ferðalag- ið: „Biskupinn lokaði bíldyr- unum og tók ofan leðurhjálm- inn. Litarhaftið á rykugu andliti hans var eins og á líki. Af skyldustörfum sínum hafði hann minnst dálæti á ferðalög- um en þau voru nauðsynleg. Þar að auki var ekki slæmt að láta minna sig á það með óþæg- indum eftir klukkustundar setu undir stýri að í augum Drottins væri hann ekki eins merkilegur og virðingarstaða hans gaf fólki til kynna. Hann hristi frakkann, hvarf inn í rykský og fór að hósta. „Af visku Þinni hefur Þú gjört það allt,“ muldraði hann. „En það var engin þörf fyrir allt þetta ryk.“ Hann tók flösku af köln- arvatni upp úr vasa sínum, dreypti úr henni á vasaklútinn og þreif á sér andlitið þar til það hafði aftur fengið glæsibrag og festu rómversks keisara.“ Eini ljóðurinn á þessari annars ágætu sögu er sá að hún er á köflum fyrirsjáanleg. Það sem virðist eiga að vera ráðgáta í sögunni og valda lesandanum heilabrotum er alls engin ráð- gáta, eða svo var það a.m.k. í tilfelli undirritaðs. Karnezis tekst engu að síður að halda les- andanum föngnum og koma honum örlítið á óvart undir lok- in. Þá er það skemmtilegur leik- ur að gefa aðeins vísbendingur um hvar sagan gerist. Syndum klyfjuð abbadís Bækur Klaustrið bbbbn Eftir Panos Karnezis. Bjartur, bókaklúbburinn neon, 2010. Árni Óskarsson þýddi. Helgi Snær Sigurðsson Í síðasta mánuði var hundraðasta ártíð bandaríska rithöfundarins Samuels Langhorne Clemens, sem tók sér höfundarnafnið Mark Twain. Þegar Mark Twain féll frá hálfníræður var hann með í smíðum sjálfsævisögu sína og hafði reyndar unnið að henni meira og minna í áratug. Hann lagði svo fyrir að þá ævisögu mætti ekki birta fyrr en hundrað árum eftir andlát sitt sem skýrir það af hverju ný bók eftir Mark Twain, sjálfsævisaga hans, kom út í vikunni. Reyndar var það ekki sagan öll sem kom út, því það var fyrsta bindið af þremur sem soðin eru upp úr 5.000 síðna handriti sem geymt hefur verið í bankahólfi frá því Twain féll frá. Hlutar ævisög- unnar hafa reyndar verið birtir áður, en það er þó ekki nema brot af því sem nú kemur út. Ein skýring þess að Twain vildi ekki að bókin kæmi út er sú að í henni er að finna krassandi lýs- ingar á mörgum samferðamanna hans. Sérstaklega var Twain harðorður um samtíma sinn og ýmsa samstarfsmenn og félaga í þeim hluta bókarinnar sem hann skrifaði skömmu fyrir andlát sitt. Frá- sögn hans af sambandi við sér mun yngri konu sem vakti mikla hneykslan á sínum tíma mun birtast í fyrsta sinn, en líka opinberar Twain mikl- ar efasemdir sínar um stjórnmálalíf í heimalandi sínu og kristna trú og segir það til að mynda þvælu að senda trúboða til Afríku þegar frekar væri ástæða til að kristna þá heiðingja sem brjóti mannréttindi á blökkumönnum í Suðurríkjum Bandaríkjanna. Ný bók eftir Mark Twain Samuel Langhorne Clemens sem tók sér höfundar- nafnið Mark Twain eftir dýptarmæli. LISTASAFN ÍSLANDS ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Sögustaðir - Í fótspor W.G. Collingwoods Myndir Einar Fals Ingólfssonar og W.G. Collingwoods Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík Klippt og skorið – um skegg og rakstur Endurfundir – Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna! Skemmtileg safnbúð og Kaffitár! Opið alla daga 10-17. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is – s. 530 2200 Söfnin í landinu 16. maí - 20. júní 2010 Staðir - Friederike von Rauch Laugardag 29. maí kl. 14 - Örnámskeið fyrir börn og foreldra 20. maí - 20. júní Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu - Erling T.V. Klingenberg Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is • sími 585 5790 Aðgangur ókeypis AÐ ÞEKKJAST ÞEKKINGUNA 15 samtímalistamenn Umræðudagskrá laugardaginn 29. maí kl. 15 Kaffistofa – leskró Barnahorn OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði ÓNEFND KVIKMYNDASKOT, Cindy Sherman 16.5. - 5.9. 2010 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík, 2010 Sunnudagsleiðsögn kl. 14 í fylgd Þóru Þórisdóttur myndlistarmanns. ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012 EDVARD MUNCH 16.5. - 5.9. 2010 SAFNBÚÐ FERMINGAR- OG ÚTSKRIFTARTILBOÐ á listaverkabókum. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna. Myndgerð: Páll Steingrímsson. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Efnaskipti/Metabolism: Anna Líndal, Guðrún Gunnarsdóttir, Hildur Bjarnadóttir, Hrafnhildur Arnardóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.