SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Page 2

SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Page 2
2 20. júní 2010 8 Hnekkti myntkörfulánum Í annað skipti veldur þrjóska bílaeigenda á Akureyri straumhvörfum í réttarkerfinu. 12 Skopmynd Ívar Valgarðsson myndlistarmaður sér spaugilegu hliðina á tilverunni. 18 Hundruð hvítra og svartra kolla Myndrík frásögn af samkomu margra kyn- slóða stúdenta í höfuðstað Norðurlands. 24 Tvær löggur Áður var mikið um samskipti – nú er mikið um afskipti. Óli barnalögga og Steini Pje hættir í lögreglunni á Akureyri eftir áratugastarf. 38 Bleikjan frá Hala Friðrik V. skrifar um matarmenninguna á Hornafjarðarsvæðinu, en hann verður með reglulega pistla í sumar. 39 Kósí í sumar Það er notalegt að verja sumrinu með Maríu Ólafsdóttur, sem skrifar um lífsstíl og kósíheit. 34 Eins og á tunglinu Guðmundur Eyjólfsson fjallaleiðsögumaður hefur farið ótal ferðir upp að gosstöðvum og tekið stórbrotnar myndir. Lesbók 48 Aftur til upphafsins Í nýrri ljósmyndabók er þvottakvennanna minnst, sem Laugavegurinn dregur nafn sitt af. 52 Orðanna hljóðan Stærðin skiptir máli, skrifar Helgi Snær Sigurðsson blaðamaður, að minnsta kosti þegar bækur eru annars vegar. Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Ernir Eyjólfsson af Þórunni Sigurðardóttur. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags- moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kjartan Kjartansson, Kolbrún Bergþórsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir. Augnablikið Þ að liggur vel á Högna Egilssyni þetta kvöld, ef marka má brosið sem breiðist yfir andlitið aftur og aftur er hann legg- ur við hlustir. Hann ætti að þekkja hljóminn úr smiðju Hjaltalíns. En nú hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands bæst við undir stjórn annars ungs manns, Daníels Bjarnasonar. Samstarfið er raunar nánara en virðist við fyrstu sýn, því bróðir Högna, Hrafnkell Orri, spilar á selló með Sinfóníuhljómsveitinni og út- setti lagið Sonnet for Matt fyrir tónleikana. Högni gefur sér tíma til að rekja forsögu lags- ins, en textinn er saminn um „skrýtinn fír“ sem heilsaði upp á bandið á gistiheimili í Hert- fordshire á Englandi, gamall hermaður, en þó aðeins 19 ára, sem var ber að ofan alla heimsókn- ina, fór í sjómann við fiðluleikarann Viktor Orra Árnason og ældi í vaskinn. Úr varð ljúfsárt lag sem berst kannski til breska heimsveldisins. Skáldagyðjurnar geta tekið á sig ólíklegustu form er þær skjóta upp kollinum. Sigríður Thorlacius með engilásjónuna sína stendur á sviðinu með Högna og hann eins og kristur upprisinn. Orðið „sweet“ kemur fyrir í textunum og söngurinn er sykursætur. It tastes like sugar, and feels like rain. Sætt er aldrei sætara en þegar það er sungið af þessu tvíeyki. Einn tónleikagesta hefur á orði að sér hafi fundist þetta eins og sykur og rjómi – „og svo bættist við stúlknakór!“ Þetta er kvöldið fyrir þjóðhátíðardaginn, sem sagt lögverndað djammkvöld. Og þegar Högni hótar tónleikagestum hléi, þá bendir hann þeim á að þeir geti fengið sér drykk eða nammi. „Þessi miðvikudagur þykist vera föstudagur og það er allt undir ykkur komið hvað þið gerið í því.“ Þrjú frumflutt lög eru á tónleikadagskránni og í kynningu á einu þeirra notar Högni tækifærið til að benda á það augljósa, að það sé spennandi fyrir hljómsveitina „að heyra það flutt vegna þess að það hefur aldrei verið flutt áður“. Að minnsta kosti ekki fyrir áheyrendur. Eftir því er tekið þegar Högni kynnir „síðasta lagið“ á tónleikunum og er ábúðarfullur á svip. Svo kemur smáþögn, þar sem hann lítur hikandi á Sigríði, en bætir við: „Nei annars, ég kann ekki að ljúga.“ Hann hlær. Auðvitað láta þau ekki staðar numið þar – þau eru klöppuð upp og hver veit nema þau lumi á fjórða frumflutta laginu. Flestir sem blaðamaður ræðir við eftir tón- leikana nutu hverrar mínútu og ung kona hefur á orði, að eitt hljómríkt augnablik hafi runnið upp fyrir sér, að á sviðinu væru hátt í hundrað manns, „að búa til einn tón“. pebl@mbl.is Sigríður og Högni í góðum félagsskap á miðvikudagskvöld. Morgunblaðið/Jakob Fannar Sætt aldrei sætara 24-27 júní Jónsvöku, nýrri og metnaðarfullri listahátíð í miðborginni, verður hleypt af stokkunum á Jónsmessu, fimmtudaginn 24. júní, og stendur yfir fram á sunnudag. Tónleikar verða fyrstu þrjú kvöldin á NASA og þar spila Árstíðir, Bloodgroup, Ensími, For a Minor Reflection, Foreign Monkeys, Hjaltalín, Hjálmar, Hudson Wayne, Kimono, Mammút, Ólafur Arnalds, Rökkurró, Seabear, Sin Fang, Sudden Weather Change og Úti- dúr. Hægt er að kaupa sig inn á hverja tónleika fyrir sig, en einnig arm- band fyrir öll þrjú kvöldin. Tónleikar á Jónsvöku Við mælum með … 24 júní Opnunarhóf Jónsvöku hefst kl. 15 í Hinu húsinu þegar Snorri Helga- son leikur nokkur lög auk tónlist- argjörnings í flutn- ingi Mukkaló og Júníus Meyvant band. 27 júní Um kvöldið kl. 20 verður tísku- sýning á vegum Po- pUp í Listasafni Reykjavíkur í Hafn- arhúsinu. Þar verða sýndar flíkur frá fjöl- mörgum grasrót- arhönnuðum og gefst fólki kost- ur á að kaupa sér ný föt fyrir heimferðina. Í framhaldi af því eða kl. 21, flytja Guðmundur Vignir Karlsson (kippi kaninus), Sigtryggur Bald- ursson og Steingrímur Guð- mundsson verkið Parabólur. 18 11 Agndofa ökumaður situr sár eftir aðdáendur körfuboltaliðsins Los Angel- es Lakers sem brutu framrúðu bíls hans í uppþotum í borginni eftir að lið- ið tryggði sér NBA-titilinn á fimmtudagskvöld. Lakers lagði Boston Celtics og bætti þar með 16. NBA-titlinum í safnið. Eftir leikinn voru tugir aðdá- enda handteknir fyrir að hafa hent steinum og flöskum, brennt bíla og brotið rúður. Titill í skugga ofbeldis Reuters Veröldin

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.