SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Side 22

SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Side 22
22 20. júní 2010 Zulu prinsessa Cynthia Gcwalislie Zulu-Kabanyane ólst upp í samfélagi þar sem fjölkvæni var viðtekið en afi hennar átti 44 eiginkonur. Þ að heyrist ómur af söng og trommuslætti þegar við nálg- umst húsið þar sem Cynthia býr ásamt eiginmanni sínum og börnum. Hún hefur boðið hópnum í mat og tekur á móti okkur með hlýju faðm- lagi og stóru brosi. Áður en sest er að borðum býður Cynthia hópnum að ganga út í bakgarð- inn þar sem hópur Zulu-dansara er sam- ankominn. Ómurinn skýrir sig fljótlega sjálfur þegar upphefst mikill trommu- sláttur og dansararnir byrja að sýna fimi sína í stökkvum og dansi. Brátt vekur trommuslátturinn forvitni nágrannanna sem kíkja inn í garðinn til að kanna hvort allt sé í lagi og er lofað sérstakri sýningu seinna meir. Dansararnir eru ungir menn frá KwaZulu-Natal, heima- héraði Cynthiu, sem slæst í hópinn og tekur nokkur spor með þeim í grasinu. Lögreglumenn í matarboði Eftir matinn er sest að borðum en það kemur nokkurt hik á Íslendingana þegar þeir eru beðnir að fara með borðbæn. Sem betur fer veit einn í hópnum hvern- ig á að bera sig að og að bæn lokinni er byrjað að borða ljúffengt lambakjöt, heimabakað brauð, maísrétt og græn- meti. Samræðurnar við matarborðið eru líf- legar og meðal annars spjallað um heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu en á svæðinu verður lögð áhersla á að íbúar þess geti komið saman og horft ókeypis á leikina á krikketvöllum og öðrum opnum svæðum. Skyndilega er bjöllunni hringt og tveir lögreglumenn bætast í hóp gesta. Einhver hefur hringt og kvartað undan trommuslættinum svo þeir eru komnir til að kanna málin. Cynthia útskýrir fyrir þeim að hún sé með gesti frá Íslandi sem hún hafi verið að skemmta og eftir að eiginmaður hennar, sjálfur bæjarstjóri Paarl, hefur tekið í höndina á þeim og þeir fengið djúsglas eru þeir horfnir jafnsnögglega og þeir komu. Lærðu af hvíta manninum Eftir matinn sest ég niður með Cynthiu til að fræðast meira um þessa konu og menningu Zulu-fólksins sem henni er umhugað að halda á lofti. Cynthia er fædd og uppalin í KwaZulu-Natal- héraðinu í Suður-Afríku. Hún segir menningu, hefðir og þau gildi sem þjóð- flokkurinn aðhyllist vera Zulu-fólkinu mjög mikilvæg. Meðal þess sé að deila hlutunum á milli sín og standa saman sem samfélag en nokkuð vanti upp á slíkt í nútímasamfélagi. Í uppvexti Cynthiu var fjöl- kvæni viðtekið í samfélaginu og með því var fólki kennt að vera ekki öfundsjúkt og deila öllu á milli sín. „Það þótti alls ekkert athyglisvert við fjölkvæni og afi minn átti 44 eiginkonur og 20 opinberar hjákonur. Þær voru systur kvennanna sem þegar voru giftar afa mínum og var boðið að bætast í fjölskylduna. Ég þekkti ekki allar konurnar en öðru hvoru komu þær allar saman með börnin og þá þurfti ég að spyrja hver væri hver en eftir því sem ég eltist fór ég að þekkja þær betur. Frá barnæsku er ég því vön að hafa marga í kringum mig á heimilinu og það er enn þannig í dag. Ég segi fólki að ég kunni ekki að elda í litlum pottum þar sem þeir sem komu í heimsókn áttu að fá að borða og því var alltaf eldað í stórum pottum,“ segir Cynthia. Efla þarf forvarnarstarf Í kjölfar þess að Cynthia flutti til Pearl og kynntist íbúum fátækrahverfisins Mbekweni, í grennd við borgina, kom hún á fót hjálparstarfi. Hún segir að eft- ir að hafa alist upp í samfélagi þar sem örlæti sé svo mikilvægt geti hún ekki Í matarboði hjá Zulu prinsessu Cynthia Gcwalisile Zulu-Kabanyane er Zulu-prinsessa, sálfræðingur og móðir. Hún býr í Paarl, borg í Western Cape-hér- aðinu í grennd við Cape Town. Cynthiu er umhugað um að starfa í þágu samfélagsins og stuðla að aukinni fræðslu og vakningu um alnæmi. Hún býður blaðamanni og samferðafólki hans til veislu með mat og skemmtun og tekur hlýlega á móti hópnum með faðmlagi. María Ólafsdóttir maria@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.