SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Síða 26
26 20. júní 2010
H
vað ætli hafi orðið um hina
svonefndu „verkalýðs-
flokka“, sem voru um-
svifamiklir á vettvangi ís-
lenzkra stjórnmála mestan hluta 20.
aldarinnar? Ég hef verið að velta þessu
fyrir mér vegna þess, hversu lítið er um
það á Alþingi, að þar rísi upp þingmenn,
sem tala sérstaklega máli launþega á erf-
iðum tímum. Þeir eru að vísu til í þing-
flokki Vinstri grænna en ekki margir og
þá virðist ekki vera að finna í þingflokki
Samfylkingarinnar.
Verkalýðsflokkar 20. aldarinnar voru
fyrst og fremst Alþýðuflokkur en einnig
Kommúnistaflokkur Íslands, sem síðar
sameinaðist Héðni Valdimarssyni og
fylgismönnum hans innan Alþýðuflokks
í Sameiningarflokki alþýðu – Sósíal-
istaflokki en sá flokkur sameinaðist svo
aftur Hannibal Valdimarssyni og fylg-
ismönnum hans úr Alþýðuflokki í Al-
þýðubandalaginu.
Til þess að kynnast upphafi þessarar
merku sögu er fróðlegt að lesa bók
Ragnheiðar Kristjánsdóttur, Nýtt fólk –
þjóðerni og íslenzk verkalýðsstjórnmál
1901-1944, sem út kom 2008 en einnig
er gagnlegt að lesa bók Sigríðar Matt-
híasdóttur, Hinn sanni Íslendingur –
þjóðerni, kyngervi og vald á Íslandi
1900-1930, sem út kom 2004. Lestur
beggja bókanna gefur yfirsýn yfir
grundvallarþætti þeirrar þjóðfélagsþró-
unar, sem leiddi verkalýðshreyfinguna
og að nokkru leyti kvennahreyfinguna
og þá stjórnmálaflokka, sem þeim
tengdust, til mikilla áhrifa á síðustu öld.
Í báðum tilvikum er um að ræða merki-
legar, vandaðar og vel skrifaðar bækur.
En hvað varð um þessa flokka og áhrif
þeirra? Getur verið að þeir hafi orðið
fórnarlömb endurskipulagningar
vinstriflokkanna undir lok síðustu aldar
og leiddi til stofnunar Samfylkingar
annars vegar og Vinstri grænna hins
vegar?
Þegar horft er til Samfylkingarinnar er
ljóst, að þær rætur verkalýðsbarátt-
unnar, sem settu mark sitt á Alþýðu-
flokk og Alþýðubandalag og forvera
þess, virðast ekki hafa fylgt með yfir í
Samfylkinguna. Þær hafa einhvers staðar
orðið eftir. Samfylkingin er í dag fyrst og
fremst flokkur háskólamenntaðs fólks,
sem virðist ekki hafa áhuga á vanda-
málum almennra launþega eða hinum
sérstöku vandamálum heimilanna í kjöl-
far bankahrunsins og er beinlínis
fjandsamlegur bændastéttinni og
virðist heldur í nöp við lands-
byggðina. Formennska Jóhönnu Sigurð-
ardóttur hefur ekki orðið til að tryggja
tengsl við fyrri tíð heldur virðist tíma-
bundin ráðstöfun, sem hefur enga sér-
staka merkingu en nýtist flokknum vel
við óvenjulegar aðstæður.
Vinstri grænir hafa heldur ekki lagt
áherzlu á að rækta tengslin við sína for-
tíð í verkalýðshreyfingunni, þótt þeir
séu ekki eins illa staddir og Samfylk-
ingin að þessu leyti. Þröng umhverf-
isverndarsjónarmið hafa meiri áhrif á
stefnu og afstöðu þess flokks heldur en
verkalýðshreyfingin.
Þetta ræktarleysi stjórnarflokkanna
tveggja við fortíð sína í verkalýðshreyf-
ingunni kristallast í yfirlýsingu, sem Al-
þýðusamband Íslands sendi frá sér sl.
miðvikudag, þar sem ASÍ segir sig form-
lega frá svonefndum stöðugleikasáttmála
en í yfirlýsingunni segir:
„Miðstjórn ASÍ gagnrýnir ríkisstjórn-
ina harðlega fyrir að standa ekki við fyr-
irheit í stöðugleikasáttmálanum. Það er
engin launung að væntingar miðstjórnar
ASÍ til lögbindingar þessara ákvæða voru
síðasta hálmstráið, sem rökstuddi aðild
ASÍ að þessum svokallaða sáttmála þrátt
fyrir aðgerða- og úrræðaleysi ríkis-
stjórnarinnar í efnahags- og atvinnu-
málum. Nú er ljóst að sú von er að engu
orðin og lýsir miðstjórn ASÍ því formlega
yfir, að engar forsendur eru fyrir að-
komu þess að frekara samstarfi á þeim
grunni.“
Þetta eru stór orð, sem segja mikla
sögu um afstöðu Samfylkingar og Vinstri
grænna til verkalýðshreyfingarinnar.
Það hefur lengi verið ljóst, að tölu-
verður hópur manna, sem starfaði innan
Alþýðuflokksins, hefur ekki fundið sér
eðlilegan samastað í Samfylkingunni.
Jón Baldvin Hannibalsson og fleiri
stuðningsmenn hans eru glöggt dæmi
um það. Sennilega er skýringin sú, að
háskólafólkið á vinstri kantinum yfirtók
Samfylkinguna við stofnun hennar og
hafði ekki áhuga á að halda tengslum við
uppruna og rætur Alþýðuflokksins.
Vinstri grænir voru hins vegar yfirteknir
af sérkennilegu bandalagi arftaka gömlu
klíkunnar úr Sósíalistaflokknum og
þröngra umhverfisverndarsinna. Síð-
arnefndi hópurinn bíður eftir því að
Steingrímur J. Sigfússon hætti afskiptum
af stjórnmálum en þá yfirtaka þeir VG
endanlega.
Hinn almenni launþegi á Íslandi, sjó-
maðurinn, verkamaðurinn, iðnaðar-
maðurinn, bóndinn, á sér ekki lengur
málsvara á hinum pólitíska vettvangi. Í
þessu felast tækifæri fyrir aðra flokka ef
þeir kunna að notfæra sér þessa stöðu.
Gleymum því ekki að á þingum ASÍ á
Viðreisnaráratugnum voru stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokks næststærsti hóp-
urinn meðal þingfulltrúa. Sú staða skipti
sköpum um, að Viðreisnarstjórninni
tókst að sigla þjóðarskútunni í örugga
höfn á erfiðleikaárunum 1967-1969.
Í þessari stöðu felst líka tækifæri fyrir
nýtt stjórnmálaafl, sem ekki er lengur
hægt að útiloka að verði til, þegar horft
er yfir sviðið allt og reynsluna úr síðustu
borgarstjórnarkosningum. Hver gefur
sig fram?
Hvað varð um „verkalýðsflokkana“?
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@mbl.is
N
eyðarlínu var komið upp á milli Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna eftir samkomulag
sem undirritað var 20. júní árið 1963, en hún
fól í sér „öruggt“ beinlínusamband á milli
kjarnorkuveldanna tveggja.
Samkomulagið var ekki gert að tilefnislausu, fremur
en aðrir mannanna gjörningar. Þetta var á hápunkti
kalda stríðsins og Kúbudeilan nýlega um garð gengin,
en líklega hefur aldrei staðið eins tæpt, að það yrði
kjarnorkustyrjöld á milli risaveldanna tveggja.
Það var ekki síst vegna þess að það tók sérfræðinga
Bandaríkjanna á tólftu klukkustund að beita dulmáls-
lyklinum á þrjú þúsund orða sáttatilboð Nikita Krjúsj-
effs. Loks þegar svarið var tilbúið af hálfu bandarískra
yfirvalda, þá hafði borist annað og kröfuharðara sátta-
tilboð frá Sovétmönnum, þar sem þess var krafist að
Bandaríkjamenn tækju niður kjarnaflaugar sínar í
Tyrklandi.
Nálægt frostmarki
Tildrög málsins voru þau að í september árið 1962 hófu
stjórnvöld í Sovétríkjunum og Kúbu að byggja í sam-
einingu eldflaugapalla á Kúbu, sem hefðu gert þeim
kleift að hæfa skotmörk nánast hvar sem er í Bandaríkj-
unum.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum brugðust ókvæða við og
nálgaðist kalda stríðið frostmark, sem sést meðal ann-
ars á því að Fidel Castro skoraði á sovésk stjórnvöld að
verða „fyrri til“ að ráðast á Bandaríkin. En svo fór að
samningar náðust bak við tjöldin, Sovétmenn féllust á
að taka niður eldflaugakerfið sem komið hafði verið
upp, en í samkomulaginu fólst meðal annars að Banda-
ríkin hétu því að ráðast ekki á Kúbu.
Neyðarlínan, eða „rauði síminn“ eins og hann var
kallaður, var beinlínusamband á milli stjórnstöðva
hersins í risaveldunum tveimur. Hún var fyrst notuð
meðan á sex daga stríðinu stóð, á milli Ísraels og ná-
grannaríkjanna Egyptalands, Jórdaníu og Sýrlands. Þá
létu risaveldin hvort annað vita af hernaðarlegum að-
gerðum, sem annars hefðu getað talist torkennilegar
eða ögrandi, en á þeim tíma var skammt á milli flota-
herja ríkjanna, annars vegar á Svarta hafinu og hins
vegar Miðjarðarhafinu. Rauði síminn var notaður aftur
árið 1971 meðan á stríðinu milli Indlands og Pakistans
stóð, árið 1973 er Ísrael átti í stríði við arabaríkin og árið
1974 þegar Tyrkland réðst inn í Kýpur. Fimm árum síð-
ar var hann notaður er Sovétríkin réðust inn í Afganist-
an og nokkrum sinnum eftir það í forsetatíð Reagans.
Ómögulegt er að segja til um hvort rauði síminn hafi í
raun komið í veg fyrir kjarnorkustyrjöld, en víst er að
hann hefur skilað hlutverki sínu og til marks um það er
beinlínusambandið enn fyrir hendi, þó tæknin hafi
breyst.
Njósnasögur og auglýsingar
Rauði síminn hefur einnig komið við sögu í ýmsum
njósnasögum, einkum frá dögum kalda stríðsins, þar á
meðal í Bond-mynd.
Og það þykir mælikvarði á trúverðugleika frambjóð-
enda í forsetakosningum vestanhafs hvort kjósendur
treysti þeim til að vera á öðrum enda línunnar í rauða
símanum. Til marks um það er að Walter Mondale not-
aði rauða símann í auglýsingum í forkosningum demó-
krata árið 1984. Þeim var beint gegn mótframbjóðand-
anum Gary Hart. Þar sagði að „ógnvænlegasta og
þyngsta ábyrgð í heiminum felst í því að taka upp þetta
símtól“. Rauði síminn kom aftur fyrir í auglýsingu
Hillary Clinton í forkosningum demókrata árið 2008.
pebl@mbl.is
Rauður
sími risa-
veldanna
John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, ræðir við flugmenn hers-
ins, en þriðji frá vinstri er Richard Heyser, sem tók myndirnar þar
sem fyrstu merkin um eldflaugapallana sáust á Kúbu.
’
Og það þykir mælikvarði á
trúverðugleika frambjóð-
enda í forsetakosningum
vestanhafs hvort kjósendur
treysti þeim til að vera á öðrum
enda línunnar í rauða símanum.
Rauði síminn kemur
fyrir í skáldsögunni
„The Sum of All Fears“
eftir Tom Clancy, þar
sem Jack Ryan notar
hann á ögurstundu til
að ná samkomulagi við
stjórnvöld í Sovétríkj-
unum.
Á þessum degi
20. júní 1963