SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Side 33

SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Side 33
20. júní 2010 33 V ið sáum grjótmola á stærð við litla bíla þjóta nokkur hundr- uð metra upp í loftið. Flug- maður sem ég spjallaði við sagðist hafa séð einn slíkan þeytast í 500 metra hæð.“ Þannig lýsir Guðmundur Eyjólfsson fjallaleiðsögumaður því mikilfenglega sjónarspili sem hann varð vitni að þegar gosgígurinn í Eyjafjallajökli spýtti út úr sér rjúkandi stórgrýti í gegnum ösk- ustrókinn. Guðmundur hefur farið átta ferðir upp að gosgígnum með vísinda- og fjölmiðlamenn sem ólmir vildu sjá gosið í nærmynd. Þá fór hann ótal ferðir upp á Fimmvörðuháls með ferðamenn, allt upp í tvær ferðir á dag þegar mest lét. „Síðan lenda þessir steinar á jöklinum og eru enn mjög heitir, ég hef heyrt töl- una 800°C nefnda. Steinarnir bræða síð- an gíga í ísinn og jökullinn er alsettur slíkum gígum,“ segir Guðmundur. Hættan hófleg Á ferðum sínum upp að gosinu fór hann í aðeins nokkur hundruð metra fjarlægð frá gosinu. Guðmundur segist þó ekki hafa óttast hættuna sem stafaði að því. Hún hafi verið hófleg og hann treyst vís- indamönnunum sem hann flutti þangað upp til að leggja mat á hana. „Ég lagði þó alltaf áherslu á öryggi, sérstaklega varð- andi veðrið. Hættan var sú að vindáttin færði öskuskýið yfir hópinn. Þegar að- stæður breyttust eitthvað var ég fljótur að kalla menn niður.“ Guðmundur segir ferðirnar upp á jökul hafi lagst af eftir að gosinu lauk og áhugi vísindamanna hafi minnkað mikið. „Það var ákveðinn hópur sem sótti mikið í þessar ferðir, jarðvísindamenn og ljós- myndarar. Ég byrjaði á bloggi á meðan á gosinu stóð með myndum sem ég hafði tekið af því og fékk ótrúlega margar heimsóknir á skömmum tíma frá mönn- um sem elta eldgos. Þessi áhugi hefur snarminnkað eftir goslok.“ Hann segir það þó enn vera magnaða upplifun að fara upp að eldstöðinni og sjá afleiðingar gossins á landslag jökulsins. „Þetta er sérstaklega merkilegt fyrir mig sem er vel kunnugur svæðinu að sjá þennan sköpunar- og eyðingarkraft náttúrunnar. Alla mína tíð hef ég séð jök- Þegar gosið í Fimmvörðuhálsi stóð sem hæst fór Guðmundur jafnvel tvær ferðir á dag með ferðamenn. Í þetta skiptið voru þeir fluttir með þyrlu upp á hálsinn. Fljúgandi grjót á stærð við bíla Guðmundur Eyjólfsson fjallaleiðsögumaður fór fjölda ferða upp að gosinu í Eyjafjallajökli og stóð steinsnar frá ógnarkrafti gossins sem hefur um- turnað landslagi jökulsins. Texti: Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ljósmyndir: Guðmundur Eyjólfsson

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.