SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Síða 34

SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Síða 34
sumstaðar líti sumarið ágætlega út hjá ferðaþjónustuaðilum. Ferðamennskan hafi breyst, fólk sé forvitið að komast nærri og sjá gosstöðvarnar en færri gisti á svæðinu. Aðrir hafi þó orðið illa úti vegna öskufallsins. Þannig séu vélsleðaferðir á Mýrdalsjökul úr sögunni í bili því sleð- arnir ráði ekki við öskuna. Guðmundur fékk einnig að kynnast áhrifum öskunnar á ferðum sínum upp á jökul. „Við keyrðum upp Hamragarða- heiði sem er erfiður og brattur slóði og það var mikil aska sem reyndi á tæki og tól. Askan smaug alls staðar inn á bíl- unum, inn um allar rifur og hjöruliðina. Ég þurfti að setja ryksugupoka yfir loft- inntakið á bílnum. Þetta er ekkert sér- staklega gott fyrir vélar.“ ulinn hvítan en nú er hann kolsvartur af þykku öskulaginu sem liggur yfir honum öllum,“ segir Guðmundur. Breytt ferðamennska Áhrifa gossins verður aðallega vart til- tölulega nálægt eldstöðinni að sögn Guð- mundar, frá Þórsmörk og upp í Emstrur. „Ég var í Þórsmörk á dögunum og þar var nokkuð rok. Um leið og við stigum úr bílnum fékk maður öskuna í augun. Það var alveg ólíft þar og við þurftum að hörfa burt. Það verður erfitt að njóta lífs- ins þar í sumar.“ Guðmundur segir öskufok verða við- varandi vandamál í sumar þegar þurrt er og vindasamt. Hann segir þó svæðið undir Eyjafjöllum hafa lagast mikið og ’ Ég byrjaði á bloggi á meðan á gosinu stóð með myndum sem ég hafði tekið af því og fékk ótrúlega margar heimsóknir á skömmum tíma frá mönnum sem elta eldgos. Á heljarslóð. Sporaskja? Þykkt ösku- lag liggur yfir jöklinum. Aðstæður á jöklinum líkjast helst tunglinu. Öskuþakinn ísinn er alsettur gígum sem myndast þegar funheitt grjótið úr gígnum bræðir sig niður í hann.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.