SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Page 36
36 20. júní 2010
Birgir Hrafn Hafsteinsson, CrossFit-þjálfari hjá CrossFit Sport, segir tilganginn með æf-
ingakerfinu vera að gera fólk líkamlega hæft til að takast á við sitt daglega líf og gera
það sem því langar að gera. Einnig hjálpi æfingakerfið fólki að halda í eðlilega virkni og
hreyfigetu líkamans, fyrir utan allt hitt sem hreyfing geri fyrir fólk.
Hann segir að CrossFit sé í raun samansafn af mörgum íþróttagreinum. „Öllu því
besta er safnað undir einn hatt og blandað saman og það gerir CrossFit frábrugðið öðr-
um íþróttum og annarri líkamsrækt. CrossFit gengur út á að koma fólki í form á breiðum
grunni og snýst alls ekki um sérhæfingu. Fjölda æfinga og íþróttagreina á óteljandi mis-
munandi vegu þannig að iðkandinn er stöðugt að takast á við nýjar áskoranir. Þannig
búum við fólk best undir þær líkamlegu og andlegu áskoranir sem lífið leggur fyrir okk-
ur.“
Aldrei verið í betra formi
Birgir Hrafn var í boltaíþróttum framundir tvítugt og eftir það í almennri líkamsrækt,
hlaupum og útivist. Sumarið 2008 byrjaði hann að æfa CrossFit eftir að Leifur Geir bróð-
ir hans, sem líka er CrossFit þjálfari og stofnandi CrossFit Sport, kynnti hann fyrir því.
„Mig langaði að prófa eitthvað nýtt í líkamsræktinni og leist vel á fjölbreytnina og
áherslurnar í CrossFit, sérstaklega með tilliti til þess hversu mikið er lagt upp úr tækni
og góðum stórum hreyfingum á öllum helstu liðamótum. Ég ákvað svo að byrja að þjálfa
um áramótin 2008/2009 þar sem fyrirtækið hans Leifs hafði stækkað og hann vantaði
aðstoð. Ég hafði líka alltaf haft áhuga á þjálfun frá því ég þjálfaði körfubolta fyrir nokkuð
mörgum árum.“
Birgir Hrafn segir enga spurningu vera um að CrossFit hafi skilað sér árangri og seg-
ist aldrei hafa verið í betra formi.
Undirbúningur fyrir lífið
Daði Rúnar ræðir næstu æfingar við Birgi Hrafn, en báðir eru þeir þjálfarar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
C
rossFit er æfingakerfi sem nýtur vaxandi vin-
sælda meðal íþróttaiðkenda hér á landi sem og
annars staðar í Evrópu og í Bandaríkjunum.
Segja má að opnun æfingaaðstöðu fyrir Cross-
Fit í Sporthúsinu í Kópavogi haustið 2008 hafi markað
upphafið að útbreiðslu þessa æfingakerfis, en áður höfðu
þó einhverjir hér á landi æft CrossFit og sumir jafnvel
árum saman.
Að minnsta kosti fimm CrossFit-stöðvar eru starf-
ræktar á Íslandi en þær sinna hins vegar CrossFit í mis-
ríkum mæli. Sumar eru eingöngu með staka tíma en
aðrar bjóða upp á fjölmörg námskeið og tíma í hverri
viku. Erfitt er að segja til um hversu margir virkir Cross-
Fit-iðkendur eru hér á landi en áætlað er að það séu um
500-600 manns.
Að búa sig undir hið óþekkta
Upphafsmaður CrossFit heitir Greg Glassman en hann
gefur einnig út the CrossFit Journal, tímarit sem kemur
út á netinu, þar sem finna má ýmsan fróðleik um æf-
ingakerfið.
Hugmyndin á bak við CrossFit var að hanna kerfi sem
byggi fólk undir hið óþekkta. Markmiðið var að koma
fólki í líkamlegt og andlegt form sem gerði það hæft til
að takast á við áskoranir lífsins, hvort sem væri í leik eða
starfi, og auka þannig lífsgæði þess og heilsu.
Til að ná því markmiði þótti þurfa kerfi sem byggðist á
breiðum grunni. Því var litið til allra íþrótta og lík-
amlegra verkefna og skoðað hvaða hæfni þyrfti til að
standa sig sem best í þeim. Tíu atriði þóttu skipta þar
mestu máli og það eru súrefnisvinnslugeta líkamans,
þrek, styrkur, liðleiki, afl, hraði, samhæfing, nákvæmni
í hreyfingum, snerpa og jafnvægi. Í CrossFit er mark-
miðið aðalatriðið og er þjálfurum veitt nokkurt frjáls-
ræði til að meta og prófa sig áfram í að finna æfingar sem
best ná fram því markmiði. Þar af leiðandi er CrossFit á
einum stað ekki endilega það sama og á öðrum.
Sérstaða CrossFit er fólgin í því að þar sérhæfir fólk sig
ekki, heldur gengur það út á alhliða líkamshreysti.
Stundum er sagt að með CrossFit verði maður aldrei
bestur í neinu en alltaf í efstu tíu sætunum. Crossfit er
ætlað öllum, óháð aldri, kyni eða líkamlegu ásigkomu-
lagi, jafnt afreksfólki sem kyrrsetumönnum og -konum.
Eingöngu er unnið með náttúrulegar hreyfingar lík-
amans og æfingarnar miðast við að vinna með sem flesta
vöðva í einu. Fólki er einnig kennd tæknin á bak við æf-
ingarnar og að beita líkamanum rétt, bæði til að fyrir-
Leifur Geir Hafsteinsson Crossfit-þjálfari passar upp á að teygt sé vel á eftir æfingar.
Í endann á hverri Crossfit-æfing er teygt vel á öllum útlimum og smá tími tekinn í slökun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ein
með
öllu
CrossFit er æfingakerfi sem nýt-
ur vaxandi vinsælda hér á landi.
Í þessari líkamsrækt er mikið
lagt upp úr því að blanda saman
ólíkum íþróttagreinum. Má segja
að þetta sé „ein með öllu“.
Guðrún Ásta Guðmundsdóttir
Hreyfing