SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Page 55

SunnudagsMogginn - 20.06.2010, Page 55
20. júní 2010 55 Þ að reyndist rithöfund- inum Susan Abulhawa þrautin þyngri að fá skáldsögu sína Morgn- ar í Jenín útgefna, enda hefur hún valið sér mjög eldfimt um- fjöllunarefni. Bókin er ein af fyrstu bókum á ensku sem gefa innsýn í allt annað en hvers- dagslegan heim stríðshraktra Palestínumanna frá stofnun Ísr- aelsríkis árið 1948. Hún lýsir þeim hræðilegu örlögum sem beðið hafa margra í kjölfar vax- andi sundrungar meðal araba og gyðinga, og því æðruleysi sem fólk hefur þurft að temja sér til þess að lifa af. Sagan segir frá palestínskri fjölskyldu sem hrakin er frá heimkynnum sínum og neyðist til að finna sér samastað í flótta- mannabúðum í Jenín. Yngsta syninum, Ismael, er rænt á leiðinni og elst hann upp í gyðingdómi hjá ísraelskri fjöl- skyldu. Bróðir hans, Yousef, sér sig tilneyddan til að fórna öllu fyrir málstað landa sinna og Amal systir þeirra, sem flytur til Bandaríkjanna eftir afdrifaríka æsku, snýr aftur til síns heima og upplifir stríðið á nýjan leik. Abulhawa er af palestínskum ættum og kemur það bersýni- lega í ljós í skrifum hennar. Sag- an er samt sem áður langt frá því að vera áróður, enda bregð- ur hún upp fyrir lesanda sann- gjarnri mynd af bæði Palestínu- og Ísraelsmönnum. Þó svo að sagan sé skáldsaga er hún ekki tilbúningurinn einn, því Abul- hawa byggir að mestu leyti á sögulegum heimildum og fyrir vikið verður sagan einstaklega kraftmikil. Mannvonskan virð- ist ekki eiga sér nein takmörk á köflum, en til allrar hamingju er sagan yfirfull af djúpum kærleik og ólýsanlegri ást. Nauðsynlegt er að hafa vasa- klút við hönd þegar lestur hefst, því tárin byrja að streyma áður en bókin er hálfnuð. Mann- vonska og ólýs- anleg ást Bækur Morgnar í Jenín bbbbn Eftir Susan Abulhawa. JPV útgáfa 2010, 393 bls. Hugrún Halldórsdóttir Susan Abulhawa kom til landsins fyrir skömmu til að kynna bók sína Morgnar í Jenín Óútgefið handrit sem bandaríski rithöfund- urinn Mark Twain skrifaði til minningar um dóttur sína Oliviu „Susy“ Clemens var selt á ríflega þrjátíu milljónir króna á uppboði Sotheby’s á fimmtudag, en þá vou seld ýmis bréf og skjöl tengd Mark Twain úr eigu dánarbús blaðaútgefandans James S. Cop- leys. Handritið ber heitið Fjölskyldumynd og var skrifað til minningar um Susy Clemens sem lést úr heilahimnubólgu hálfþrítug. Það er 64 síður og að stærsum hluta æskuminn- ingar Twains. Upphaflegt verðmat var í kringum fimmtán milljónir, en samkvæmt Reuters hækkaði verðið skarpt þegar fjórir viðstaddra tóku að glíma um það. Handrit Marks Twains á tugmilljónir Pappírar Marks Twains seljast fyrir geypifé. LISTASAFN ÍSLANDSÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Sögustaðir - Í fótspor W.G. Collingwoods Myndir Einar Fals Ingólfssonar og W.G. Collingwoods Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík Sunnudaginn 20. júní kl. 14:00 veitir Einar Falur leiðsögn um sýninguna Skemmtileg safnbúð og Kaffitár! Opið alla daga 10-17. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is – s. 530 2200 Söfnin í landinu Sýningar til 20. júní - síðasta sýningarhelgi Staðir - Friederike von Rauch Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu - Erling T.V. Klingenberg Sunnudag 20. júní kl. 15 - Listamannsspjall með Erling T.V. Klingenberg Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis AÐ ÞEKKJAST ÞEKKINGUNA 15 samtímalistamenn Kaffistofa leskró - barnahorn OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði ÓNEFND KVIKMYNDASKOT, Cindy Sherman 16.5. - 5.9. 2010 ÁFANGAR, verk úr safneign 16.5. 2010 - 31.12. 2012 EDVARD MUNCH 16.5. - 5.9. 2010 HÁDEGISLEIÐSAGNIR þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10-12.40 Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is SAFNAHÚSIÐ Á HÚSAVÍK NÝJAR SÝNINGAR! MANNLÍF OG NÁTTÚRA - 100 ár í Þingeyjarsýslum Á sýningunni er fjallað um margslungið samspil manns og náttúru á árabilinu 1850-1950. Ljósmyndir Silla - Sigurðar Péturs Björnssonar (1907-2007). Silli tók myndir í hálfa öld, sýnd dæmi úr merkilegu safni hans. Myndlistarsýning. Joris Rademaker er hollenskur listamaður sem býr á Akureyri og vinnur með náttúruleg efni og form. Sjóminjasýningin í pýramídanum er á sínum stað. Verslun/kaffi Opið alla daga 10-18. Sími 464 1860. www.husmus.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna. Mynd- gerð: Páll Steingrímsson. Í ljósi næsta dags. Sýning um þýðingarstörf, skáldverk og baráttumál Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Efnaskipti/Metabolism: Anna Líndal, Guðrún Gunnars- dóttir, Hildur Bjarnadóttir, Hrafnhildur Arnardóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir. Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com „Úr hafi til hönnunar“ 27.5. - 5.9. 2010 Sýning á íslenskri og erlendri hönnun úr íslensku sjávarleðri. „Sýnishorn úr safneign“ Opið alla daga nema mánudaga kl. 12-17. Verslunin Kraum í anddyri og kaffiveitingar. Garðatorgi 1, Garðabær www.honnunarsafn.is Sýningin stendur til 26. júní CharlieHotelEchoEchoSierraEcho Rosen/Wojnar Þýsku listamennirnir Rosen/Wojnar vinna hér með uppstillingar og verk úr safneign Nýlistasafnsins. Nýlistasafnið tekur þátt í Jónsvöku: Lau 26. júní kl.18-20 & sun 27. júní kl.14-17 Opið þri. - lau. kl. 12-17 Aðgangur er ókeypis. www.nylo.is • nylo@nylo.is Skúlagötu 28, 101 Reykjavík LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR v/Hallgrímstorg og Freyjugötu Opnunartími safnsins 1. júní–15. sept.: 14:00-17:00 alla daga nema mánudaga. Aðgangur ókeypis á sunnudögum. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu alltaf opinn. Sími: 551 3797, netfang: skulptur@skulptur.is GEYSISSTOFA– MARGMIÐLUNARSÝNING Í nútímalegu margmiðlunar- safni á Geysi er að finna margskonar fróðleik um náttúru Íslands. OPIÐ: alla daga 10.00-17.00. AÐGANGSEYRIR: 1.000 KR Afsláttur fyrir námsmenn, eldri borgara og hópa Geysir í Haukadal, sími: 480 6800 www.geysircenter.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.