SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Qupperneq 4

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Qupperneq 4
4 8. ágúst 2010 Vikufréttaritið Newsweek kom fyrst út 17. febrúar 1933 og á því rúmlega 77 ára útgáfusögu að baki. Stofnandi Newsweek var Thomas J.C. Martyn sem áður rit- stýrði erlendum fréttum í tímarit- inu Time. Fyrsta tölublaðið kom út undir nafninu News-Week í 50.000 ein- taka upplagi. Á forsíðu fyrsta tölu- blaðsins voru sjö ljósmyndir úr fréttum vikunnar. Hvert eintak kostaði 10 cent og ársáskriftin fjóra dollara. Útgáfufélag Washington Post keypti Newsweek árið 1961. Vikuritið hefur fengið fleiri viðurkenningar frá samtökum bandarískra ritstjóra tímarita en nokk- urt annað vikufréttarit. Ritstjórn Newsweek er í New York en blaðið er með svæðisskrifstofur í sex öðrum borgum Banda- ríkjanna og tíu utan Bandaríkjanna. Þær eru í Bag- dad, Peking, Höfðaborg, Jerúsalem, London, Mexíkóborg, Moskvu, Hong Kong, París og Tókýó. Auk hinnar bandarísku útgáfu News- week koma út þrjár mismunandi al- þjóðlegar útgáfur af tímaritinu á ensku. Það eru Atlantshafsútgáfan, Asíuútgáfan og útgáfa fyrir Rómönsku- Ameríku. Upplag vikuritsins er nú meira en fjórar milljónir eintaka og Newsweek er á boðstólum í meira en 190 þjóð- löndum í hverri viku. Newsweek kemur einnig út á japönsku, kóresku, spænsku, arabísku, pólsku og rússnesku. Fréttavefurinn Newsweek.com var opnaður í októ- ber 1998 en þá hafði tímaritið verið á netinu í sam- vinnu við aðra í um fjögur ár. Jon Meacham, ritstjóri Newsweek, hefur tilkynnt að hann muni láta af starfi fljótlega eftir að eig- endaskiptin verða um garð gengin. Alþjóðleg fréttaveita D r. Sidney Harman, bandarískur við- skiptajöfur sem auðg- aðist m.a. á sölu hljómtækja, varð hlutskarpastur þeirra sem gerðu tilboð í frétta- vikuritið Newsweek. Útgáfufélag dagblaðsins Washington Post og vikuritsins Newsweek, The Wash- ington Post Company, tilkynnti 2. ágúst sl. að gert hefði verið sam- komulag um að selja Harman tímaritið Newsweek. Kaupverðið var einungis einn bandaríkjadalur. „Þegar við leituðum að kaup- anda að Newsweek vildum við fá einhvern sem er jafn sannfærður og við um mik- ilvægi góðrar blaðamennsku. Við fundum þann kaupanda í Sidney Harman,“ sagði Donald E. Graham, stjórnarformaður og forstjóri The Washington Post Company, að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu um söluna. „Hann hefur heitið því að halda ekki aðeins áfram að gefa út líflegt, trúverðugt og fyrsta flokks fréttatímarit, heldur einnig jafn öflugan vef Newsweek.com – og hann stefnir að því að halda í meirihlutann af mjög hæfu starfsfólki Newsweek.“ Margir höfðu sýnt Newsweek áhuga. Aðrir sem lögðu inn loka-kauptilboð í Newsweek voru fjárfestingarfélagið OpenGate Capital, vog- unarsjóðurinn Avenue Capital Group, sem m.a. á hlut í útgáfu The National Enquirer og Star Ma- gazine, og Fred Dasner, áður einn af útgefendum U.S. News & World Report og New York Daily News. Kaupandinn er háaldraður Ekki verður annað sagt en að nýr eigandi Newsweek sé kominn á virðulegan aldur. Raunar eru flestir á hans aldri löngu sestir í helgan stein. Sidney Harman er nýorðinn 92 ára en hann fæddist 4. ágúst 1918 í Montreal í Kanada. Hann fæddist því áður en Kötlugosið varð í októ- ber 1918 og Ísland fékk fullveldi 1. desember sama ár. „Þrátt fyrir aldur minn kem ég með orku og ferska nálgun,“ sagði Harman eftir kaupin. „Ég er reynd- ur í viðskiptum og veit mínu viti. Ég ber einnig djúpa virðingu fyrir hlutverki blaðamennskunnar.“ Harman kveðst telja Newsweek vera eina af þjóðargersemum Bandaríkjamanna og hefur lýst mikilli ánægju yfir því að taka við kyndlinum af Graham-fjölskyldunni, útgefanda Washington Post, sem hefur átt Newsweek í um hálfa öld. Halli hefur verið á rekstri Newsweek en Harman hefur sagt að hann ætli sér ekki að græða á út- gáfunni. Auðgaðist á hljómtækjaframleiðslu Margir kannast við nafn Harmans af vörumerk- inu Harman Kardon en fyrirtækið stofnaði hann árið 1953 ásamt Bernard Kardon. Harman nam eðlisfræði og að loknu námi fór hann að vinna í verkfræðideild David Bogen Company, sem framleiddi stór hátalarakerfi. Kardon var þar yfirverkfræðingur. Þeir breyttu hátalarakerfum í hljómflutningstæki fyrir sjálfa sig en fyrirtækið hafði ekki áhuga á því. Þeir stofnuðu því Harm- an Kardon til að smíða hljómflutningstæki. Fyrsta tækið sem þeir fjöldaframleiddu var FM-útvarpsviðtæki. Ári eftir stofnun kynnti Harman Kardon fyrsta viðtækið sem skilaði há- gæðahljómi (hifi). Harman keypti Kardon félaga sinn út úr fyrirtækinu 1956. Fyrirtækið varð einnig fyrst til að framleiða útvarpsviðtæki með magnara sem tók á móti útsendingum í víðómi (stereó) árið 1958. Þessi tæki voru öll einföld í notkun og ætluð almenningi. Harman seldi fyrirtækið og keypti annað snemma á 7. áratug síðustu aldar. Hann keypti síðan Harman Kardon aftur og önnur þekkt hljómtækjafyrirtæki á borð við JBL, AKG, Studer og Infinity. Hann nefndi fyrirtækjasamsteypuna Harman International Industries (HII). Harman Kardon varð fyrst til að nýta hljóðbætitækni frá Dolby Laboratories í tækjum fyrir almenning. Sidney Harman studdi Jimmy Carter í forseta- framboði hans 1976 og varð aðstoðarvið- skiptaráðherra í ríkisstjórn hans. Harman seldi þá HII-samsteypuna. Kaupandinn Beatrice Fo- ods náði ekki tökum á rekstr- inum og þegar Harman hætti opinberum störfum keypti hann HII aftur. Sidney Harman er kvæntur Jane Harm- an, en hún situr á Bandaríkjaþingi fyrir kjördæmi í Kaliforn- íuríki. Öldungur kaupir Newsweek Sidney Harman auðgaðist á hljómtækjasmíði Harman Kardon Sidney Harman hóf smíði hljómflutningstækja fyrir almenning árið 1953. Myndin er kringum 1955. Vikuspegill Guðni Einarsson gudni@mbl.is Harman Kardon og önnur fyrirtæki í Harman International Industry, Inc. hafa átt stóran þátt í að gera almenningi kleift að njóta útvarpssend- inga og hljóðritana í miklum tóngæðum. Harman Kardon var í fararbroddi í fram- leiðslu víðóma (ste- reó) útvarpstækja á 6. áratug síðustu ald- ar. JBL hátalarar voru ríkjandi í hljóðverum, líkt og AKG hljóð- nemar og Studer upp- tökutæki. Úr mónó í stereó Sidney Harman varð 92 ára 4. ágúst síðastliðinn og lætur aldur ekki aftra sér. ódýrt og gott Grísahryggur, úrbeinaður, danskur kr. kg999 Verð áður 1998 kr. 50%afsláttur

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.