SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 30
30 8. ágúst 2010 Þ að hefur verið nokkur íþrótt vinstri- manna allra landa að gefa til kynna að ýmsir forsetar Bandaríkjamanna úr röð- um repúblikana séu fremur illa gefnir, jafnvel jaðri við það að vera vanvitar, öfugt við gáfumennin úr röðum vinstri manna sem þjóðin hafði ekki vit á að kjósa það sinnið. Þetta var lengi reynt við Reagan, einn vinsælasta forsetann, fyrr og síðar. Hann átti að vera fávísi leikarinn sem skolaðist inn í Hvíta húsið fyrir góðan talanda og leikræna tilburði, eftir að hafa sigrað gáfumanninn Carter, sem sagður var lesa skýrslur embættis- manna 18 tíma á sólarhring og setja sig inn í hvert atriði með aðdáunarverðum hætti. En jafnframt tókst Carter með hausinn fullan af fróðleik þó að verða fremur misheppnaður forseti, sem dró úr sjálfstrausti Bandaríkjamanna og veikti frumkvæði þeirra og samkeppnishæfni, sem lengi hafði verið þeirra aðalsmerki. Smáatriða vit Reagan forseti hafði svo sannarlega ekki öll smáat- riðin á sínu valdi og kærði sig heldur ekkert um það. En stóru línurnar vöfðust ekki fyrir honum og eftir að heimildir um forsetatíð hans hafa opnast smám saman kom í ljós að hann hafði verið harð- duglegur, stundvís og vinnusamur og sett sig óað- finnanlega inn í þau mál sem kröfðust athygli hans. Og það sem kom þvert á kenningarnar og spunann þá hafði hann samið mikilvægustu ræður sínar sjálfur eigin hendi og stundað miklar bréfa- skriftir að auki. Það var á hinn bóginn merki um tilgerðarlaust sjálfstraust hans, að hann tók til- raunum til að gera lítið úr gáfum hans, hæfni og dugnaði eins og himnasendingum og ýtti undir þær með sögum sem hann sagði sér og öðrum til gamans, sem áttu að sanna hve hann væri orðinn gamall, latur og út að aka. Varaforseti eftirmanns hans á forsetastóli, Dan Quayle, fékk heldur betur að finna til tevatnsins að þessu leyti og var reyndar auðvelt skotmark vegna seinheppni og klaufahátt- ar, sem náði hámarki þegar hann leiðrétti nem- anda í grunnskóla, duglega blökkustúlku, sem skrifað hafði orðið kartafla á töflu upp á enskan máta. Varaforsetinn leiðrétti nemandann í við- urvist milljóna manna sem fylgdust með í sjón- varpi og hætti ekki fyrr en hún stafsetti orðið vit- laust. Grínistarnir sögðu þá að þeir launmorðingjar sem höfðu haft á sinni dagskrá að ráða gamla Bush af dögum og fylgst höfðu með sjónvarpinu hefðu snarlega hætt við þegar þeir sáu til varaforsetans og þar með gert lífvarðasveitum forsetans starfið mun auðveldara. Símtal við Bush Bandaríkjaforseta Þegar sonur þess forseta, Bush yngri, varð forseti fór heimsku-áróðurinn af stað af miklum þunga. Meisturum þess spuna varð nokkuð ágengt með þúsundum greina, tugum bóka og bíómynda, enda átti forsetinn til að mismæla sig og skipa setning- unum með óvenjulegum hætti. „Don’t mis- underestimate me“ varð frægt og var reyndar rétt eftir haft að auki, sem jók gildi þess. En þeir sem unnu með forsetanum höfðu aðra sögu af honum að segja. Nýjasta bókin frá Hank Poulson, fjár- málaráðherra Bandaríkjanna þegar fjármála- kreppan skall á með fullum þunga haustið 2008, dregur upp gjörólíka mynd. Lýsing hans á forset- anum þegar öllum þeim illleysanlegu vandamálum var dembt yfir hann er athyglisverð. Hann hélt ró sinni fullkomlega, var yfirvegaður, spurði réttu spurninganna – það var þýðingarmikið þar sem tíminn var naumur – og stóð fast við bakið á sínum mönnum við hverja aðgerð og fékk ekki bakþanka, hvað sem á dundi. En það sem Poulson fjár- málaráðherra þótti þó athyglisverðast var, að það vottaði aldrei fyrir því að forsetinn velti því fyrir sér hvaða áhrif þessir hrikalegu atburðir kynnu að hafa á stöðu og álits hans sjálfs. Sjálfhverfari menn hefðu brugðist öðruvísi við, og það er því miður ekki vöntun á slíkum, hvorki hér á landi né annars staðar meðal stjórnmálaforingja. Bréfritari var eitt sinn staddur á Plaza-hótelinu í New York og horfði á viðtal við Bush forseta í sjón- varpinu. Þá vildi svo til að lífvarðarforingi bankaði og sagði að forsetinn vildi hafa tal af bréfritara og myndi hringja kl. 8 næsta morgun. „Svo snemma,“ sagði bréfritari eins og upp úr eins manns hljóði. „Þá hefur okkar maður verið við störf í rúma tvo tíma og tekur sér hlé til að hringja,“ var svarið við þeirri athugasemd. Og for- setinn hringdi stundvíslega klukkan 8 næsta morgun. Bréfritari gat þess í upphafi símtalsins, að hann hefði verið að horfa á viðtal við forsetann kvöldið áður og hrósaði viðtalinu. „Og hvað fannst þér gott við það?“ spurði hann. „Það var skýrt og einfalt og skildist vel, enda á tilgerðarlausu mannamáli,“ svaraði bréfritarinn. „Hér vestra þykir þeim ekki að þeir séu að hlusta á Shake- speare, þegar ég opna munninn,“ sagði forsetinn. „Ég er ekki viss um að þeir myndu skilja Shake- speare hér vestra ef hann mætt í spjallþátt núna í eigin persónu,“ sagði bréfritarinn og svo var farið að tala um það erindi sem forsetinn átti. Bush keppti við þá Al Gore og John Kerry um forsetaembættið og vann báða. Spuninn sagði að þeir báðir væru svo miklu gáfaðri en hann og betur menntaðir. Al Gore varð þó illa á í messunni þrátt fyrir meintar gáfur þegar hann upplýsti op- inberlega að hann væri búinn að sannfæra sjálfan sig um að hann hefði fundið upp internetið. Og þegar háskólaafrek Bush og Kerrys voru borin saman kom óvænt í ljós að þar hallaði á þann síð- arnefnda öfugt við spunann. Það er ekki alltaf allt sem sýnist og spunameistarar og þeirra doddar eru varasöm heimild. Slæm mistök En mistök byggð á ótrúlegri vanþekkingu hafa vissulega komið þaulreyndum stjórnmálamönnum í koll. Ford forseti, með áratuga reynslu sem þing- maður, átti ekki vinningsvon gegn Carter, þegar hann gaf til kynna að hann vissi ekki betur en að Pólland væri vestan við járntjaldið og hann ætlaði að halda því þar yrði hann endurkjörinn forseti. Ekki er um það deilt að hinn nýi forsætisráð- herra Breta, David Cameron, er fjölmenntaður úr bestu skólum síns lands. Honum hefur þó þegar orðið alvarlegur þekkingarlegur fótaskortur, bæði Reykjavíkurbréf 06.08.10 Um gáfur og spuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.