SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 35

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 35
8. ágúst 2010 35 hjá hinum innflytjendum. Hann telur að þetta framtak Búvís hafi sparað bændum hundruð milljóna króna á síð- asta ári. Á sama tíma og áburður, olía og önnur aðföng hafi hækkað um tugi prósenta hafi afurðaverð ekki hækkað að sama skapi eða einungis um 8-10%. Í ár er útlit fyrir að verðið sem bændur fá fyrir sláturfé sitt í haust, muni standa í stað eða jafnvel lækka. Allt of uppteknir af því að allt sé vonlaust Á Leifsstöðum er stundaður fjárbúskapur og eru um 500 á fóðrum. Stefán leggur allt sitt sláturfé inn hjá Fjallalambi á Kópaskeri en fyrirtækið er stærsti atvinnurekandinn á staðnum. Selur Fjallalamb sínar vörur meðal annars til Fjarðarkaupa og var Stefán einn þeirra bænda sem fyrr í sumar tók þátt í vörukynningu og átaki þar sem upp- runamerking á kjöti var kynnt. Þá getur fólki slegið inn ákveðið númer í tölvunni sinni og séð frá hvaða framleið- anda kjötið er. Stefán segir að menn séu og hafi verið frá hruninu allt of uppteknir af því að allt sé vonlaust. Fólk gleymi því góða sem það hafi. Hins vegar líki honum betur sá hugs- unarháttur sem fylgdi falli krónunnar að íslensk fram- leiðsla var ekki lengur litin hornauga líkt og oft áður. Nú sé hugsað um að nýta betur innlenda framleiðslu í stað þess að líta niður á þá sem starfa við framleiðslu. „Það var ótrúlegt hvaða viðhorf voru uppi varðandi sauðfjárbændur. Lausnin var alltaf sú að flytja vöruna bara inn, þetta væri svo dýr framleiðsla hjá okkur. Við- horf sem gjörbreyttist þegar ekki var til gjaldeyrir til að flytja inn þessa svokölluðu ódýru vöru. Menn sáu að það skipti máli að vera með innlenda framleiðslu. Ekki reiða sig bara á eitthvað innflutt.“ ESB-aðild mjög slæm fyrir bændur Stefán er eindreginn andstæðingur aðildar Íslands að Evr- ópusambandinu enda telur hann að aðildin myndi koma sér afar illa fyrir íslenskan landbúnað. Hann segir að mið- að við hvað sumar þjóðir hafa þurft að ganga í gegnum eftir aðild þá sé hann hræddur um að staðan yrði erfið fyrir íslenska bændur. „Ég efast um að Íslendingar muni ganga í ESB. Ég held að menn séu búnir að sjá í gegnum þessa Evrópusam- bandsumræðu sem var og er hér á landi.“ Hann segir að það hafi verið með ólíkindum að hlusta á það sem ýmsir stjórnmálamenn sögðu. Þeir hafi látið eins og umsóknarferlið væri nánast formsatriði. Ekki tæki nema örfáa mánuði að fá aðild og að vörmu spori væri evran orðin gjaldmiðill Íslendinga. „Ef maður les sér til um hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að taka upp evru sér það hver maður sem vill sjá að það er langt í að Ísland uppfylli þau skilyrði. Ég held að þetta hafi verið notað til að færa mönnum einhverja bjarta sýn í öllu svartnættinu sem blasti við. Þegar alvaran er ljós sést að ferlið er langt. Eins er skynsamlegra, ef viljinn er fyrir hendi, að fara inn í ESB þegar góðæri ríkir því annars geti lítil lönd eins og Ísland þurft að sætta sig við afarkosti sem að öðrum kosti yrðu aldrei samþykktir,“ segir Stefán. Stefán líkir aðild að ESB við sameiningu sveitarfélaga. „Mín sýn er sú að við sameiningu sveitarfélaga er talað um að verða hluti af samfélagi og geta haft áhrif. En hvaða áhrif hefur fólk á Raufarhöfn á Húsavík þar sem íbúarnir eru margfalt fleiri? Það er eins með ESB. Hvaða áhrif höf- um við Íslendingar þegar við erum orðnir hluti af heild Evrópusambandsins? Tæplega 320 þúsund manns á móti öllum þessum milljónum. Þá geta þeir sem ráða ríkjum breytt öllum reglum eins og þeim sýnist. Við gerum ósköp lítið í því,“ segir Stefán, bóndi á Leifsstöðum í Öxarfirði. E inar Sigurðsson, smábátaeigandi á Rauf- arhöfn, er sjómaður í húð og hár. Hann hefur hætt á sjónum oftar en einu sinni en alltaf snúið aftur. Hann hefur haft í nægu að snúast í sumar. Bæði við strandveiðar og að sigla norður fyrir heimskautsbaug með ferðamenn. Eig- inlega hafi hann allt of mikið að gera en hann siglir með ferðamennina þar sem lítið hefur verið um að vera fyrir ferðamenn á þessum slóðum . Ekki til þess að hagnast á því. Á vetrum fer hann á grásleppu og stundar hand- færaveiðar en hann á kvóta. Einar er fæddur og upp- alinn á Raufarhöfn og vill hvergi annars staðar búa. Hann fór til Reykjavíkur í nám nokkrum árum eftir að hann lauk grunnskólanámi en á þeim tíma, um miðjan níunda áratuginn, var útgerð í fullum gangi á Raufarhöfn og auðvelt að vinna sér inn mikla peninga ef viljinn var fyrir hendi. Einar keypti sér því íbúð í Reykjavík átján ára gamall og bjó þar í nokkur ár. Fékk trillu fyrir íbúðina Hugurinn leitaði norður á ný og reyndi hann að selja íbúðina en það gekk hægt. Eftir um ár var honum boðin trilla í staðinn fyrir íbúðina. Hann lét slag standa enda sannfærður um að honum tækist að selja blessaða trilluna fyrir norðan. Ekkert varð af sölu og hefur Einar verið í útgerð síðan frá Rauf- arhöfn. Árið 2006 ætlaði fjölskyldan að flytja til Reykja- víkur og seldi bæði kvóta og bát. Einari leist hins vegar illa á hvernig Reykjavík hafði breyst frá því hann bjó þar áður, bæði íbúarnir og allt annað. Hraðinn var alls ráðandi og allt snerist um peninga. „Þetta var ekki sama borgin og ég þekkti áður. Mér líkaði ekki það sem ég sá og við ákváðum því að koma heim aftur til Raufarhafnar. Ég keypti nýjan bát og kvóta og tapaði talsverðu á þessum við- skiptum mínum. En það þýðir ekki að hugsa um það. Ég er að minnsta kosti ánægður með að hafa tekið þessa ákvörðun því ekki langar mig suður í dag.“ Ekki skortur á atvinnu á Raufarhöfn Eiginkona Einars, Þóra Soffía Gylfadóttir, hefur ásamt fleiri konum á Raufarhöfn stofnað kaffihús þar sem áður var Essoskálinn. Þær reka einnig gallerí á Raufarhöfn þar sem handverk er til sölu. Einar segir að gróðasjónarmið ráði ekki ferðinni hjá þeim hjón- um þegar að hlutum sem þessum kemur. Heldur hafi þau áhuga á að gera Raufarhöfn að eftirsókn- arverðum stað til að búa á og að sækja heim. Ekki sé skortur á atvinnu á Raufarhöfn en hún sé fremur einsleit enda sé sjávarútvegur nú sem áður aðalat- vinnugreinin. Íbúum á Raufarhöfn hefur ekki fjölgað um árabil en veruleg fækkun varð í byrjun áratugarins í kjölfar þess að vinnsla lagðist af að mestu eftir að Útgerð- arfélag Akureyringa eignaðist meirihlutann í Jökli á Raufarhöfn. Að sögn Einars fluttu á milli 60 og 80 manns frá Raufarhöfn á einu ári. Í bæjarfélagi þar sem íbúarnir eru um fjögur hundruð talsins er augljóst að slíkt er blóðtaka. Hann segir að það hafi verið erfitt fyrir þá sem eftir urðu að sjá eftir vinum og ættingjum. Nú eru íbúar Raufarhafnar á milli 220 og 230 talsins. Að sögn Einars á hann ekki von á því að íbúum Raufarhafnar eigi eftir að fjölga enda fá atvinnutæki- færi til að mynda fyrir langskólagengið fólk. Hann nefnir dætur sínar sem dæmi sem gjarna vildu flytja heim til Raufarhafnar en enga vinnu sé fyrir þær að fá á heimaslóðum tengda þeirra námi. Sonur hans er fjórtán ára og aðstoðar föður sinn í sumar við veið- arnar. Fáir nemendur eru orðnir eftir í grunnskól- anum á Raufarhöfn og að sögn Einars er enginn nemandi í tíunda bekk í ár. Þetta sé þróunin á þessu landsvæði, íbúarnir eldist og lítil nýliðun sé í þorp- um og sveitum. Ánægður með sameiningu Einar var fylgjandi sameiningu Norðurþings á sínum tíma og er enn þeirrar skoðunar að sameiningin hafi verið til góða fyrir Raufarhöfn en segir að fjölmargir íbúar þar séu honum ekki sammála þar um. Hann segir að það sem hafi eiginlega farið mest í taugarnar á honum á Raufarhöfn séu samgöngu- málin sem komi til með að batna gífurlega þegar nýi vegurinn verður opnaður. „Það er náttúrlega ekki hægt að bjóða íbúum og ferðamönnum upp á veginn eins og hann hefur verið undanfarin ár. Enginn heilvita maður kemur hingað á nýjum bíl, hvað þá með fellihýsi í eftirdragi. Með nýja veginum vonast maður til þess að fleiri ferða- menn heimsæki okkur hingað á Raufarhöfn og að vinir og kunningjar sem hafa veigrað sér við að koma út á Sléttu vegna vegakerfisins láti sjá sig hér sem fyrst,“ segir Einar. Erfitt að hætta á sjó Einar Sigurðsson smábátaeigandi á Raufarhöfn siglir með ferðamenn út fyrir heimskautsbaug á sumrin Morgunblaðið/Gúna Höfnin á Raufarhöfn iðar af lífi á sumrin þar sem strandveiðar eru stundaðar af fjölmörgum smábátaeigendum. Hafa þær reynst mörgum búbót áður en næsta kvótaár hefst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.