SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 12

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 12
12 8. ágúst 2010 Miðvikudagur Elísabet Kristín Jök- ulsdóttir Faðir minn Jökull Jakobsson hafði annálaða rödd, fólk hélt varla vatni yf- ir röddinni, einhverntíma ákvað ég að leyfa tvíburasonum mínum að heyra þessa rödd afa þeirra og fékk lánaða upptöku úr útvarpinu. Tví- burarnir voru ekki seinir að átta sig og sögðu: Það er einsog þessi mað- ur sé í kremju undir borði. Mánudagur Ragnar Jónasson Bækur lesnar árið 2010; bók nr. 14 / books read in 2010, no 14: Las loksins frábæra glæpasögu Arnaldar, Harð- skafa, sem er sú besta sem ég hef lesið eftir hann, en hef þó ekki lesið allar. Sunnudagur Hildigunnur Sverrisdóttir dagur tvö á kjálkanum enginn eftirbátur hins fyrri: Sund í súrreal ljósazúrbláum bárum á Rauðasandi í stórkostlegu veðri, kaffi og meððí á flæðunum og svo píratískt stuð hjá tvíbur- unum í sjóræningjasetri – við neit- um að yfirgefa hótelið Ráðagerði … aaaaahhhhh hvað lífið er ljúft á Patró – en samt segir mér eitthvað að öll renni vötn til Dýrafjarðar? Fésbók vikunnar flett Á Reykjavík að gerast vinaborg Múmíndals? N ú eru krúttin og krútt- kynslóðin komin í pólitík, frábært. Þá verður allt svo sætt og fallegt, meira að segja hundleiðinleg vinabæjarhefð borgarstjórnar verður að ævintýri. Í staðinn fyrir að gamlir og feitir sósíal- demókratar takist í hendur og skáli þá koma ævintýrapersónur á sviðið og sveipa athöfnina barnslegum blæ. Þetta er svo sætt að mig langar til að æla. Má ég þá frekar biðja um gömlu góðu Samspillinguna, það var allt svo einfalt í þeirri spillingu. Pólitíkusar sem gáfu gæðingum sínar fínar stöður, gáfu Framsókn sem hélt R-listanum í stjórn leyfi til að leika sér með sjóði Orkuveitunnar og þeir voru í þessu klassíska: fara í laxveiðar, hlæja með útrásarvíkingunum, lofa Fréttablaðið, styrkja Baugspennana, vera á fyrsta farrými, drekka kampavín, rækta útrásarrisarækjur og daðra við flug- þjóna. Maður þoldi þetta ekki á meðan á því stóð en núna saknar maður þess. Hugmyndin hjá krúttunum er að draga töfrablæ bernskunnar og æv- intýranna inní pólitíkina og gera þann harða realisma sem þar ríkir fullan af gleði og barnslegu sakleysi. En það sem gerist er þveröfugt. Harður real- ismi pólitíkinnar kemur með sína brútal hönd inn í heim bernskunnar og eyðir þar öllu sakleysi. Áður en krúttin fóru að seilast til valda gat fólk með ýmiskonar pólitískar skoðanir sameinast í kringum börnin og þann heim sakleysisins. En nú á að pólití- sera þann heim líka. Auðvitað hafa leikskólakennarar árum saman kennt börnum Maístjörnuna og önnur ljóð og lög sem hafa verið ort til dýrðar einni mestu morðstefnu síðustu aldar. En þesskonar áróður kennara á sak- laus börnin er ekki markviss eða með- vitaður. Það er erfitt að ætlast til þess að kennarar geti verið með börnunum allan daginn án þess að lífsskoðanir þeirra komi fram. En þegar pólitík- usar eru farnir að gera markvissa og meðvitaða árás inní heim sakleysisins og bernskunnar þá er það bara ljótt. Múmínálfarnir eru persónur úr ein- hverjum fallegustu ævintýrum bók- menntasögunnar. Allir foreldrar geta notið stundar með börnum sínum í Múmíndalnum. En nú er það að breytast því Múmínpabbi er orðinn fylgjandi ESB. Nú er Jón Gnarr orðinn vinur Múmínpabba og sá álfur vænt- anlega fylgjandi verkum Jóns Gnarr. Pólitíkin er ekki falleg tík. Sú tík á ekki heima á meðal álfa í Múmíndal. Né eiga álfarnir heima hjá henni, þótt það séu ógurleg krútt sem hafa nú lík- amnast í skinni hennar í borgarstjórn- inni. MÓTI Börkur Gunnarsson Rithöfundur og kvikmynda- leikstjóri Þ að er löngu tímabært að Reykjavík verði vinabær Múmíndals og gott að Jón Gnarr borgarstjóri skuli nú ganga fram fyrir skjöldu og ljá máls á því. Múmíndalurinn á nú þegar stór- an hlut í hjarta margra borgarbúa svo það hlaut að koma að þessu. Sjálf heillaðist ég af Múmíndal þegar ég var unglingur og sá fremur drungalegar finnskar klippimyndir í Ríkissjónvarpinu um atburði sem þar höfðu gerst. Þeir sem eru hvað atkvæðamestir í Múm- índalnum eru sjálf múmínfjölskyldan, Múmínmamma, Múmínpabbi og Múmínsn- áðinn, og vinkonur þeirra, Snorkstelpan og Mía litla. Þau eru ekki ósvipuð okkur Reyk- víkingum og því ekki að efa að einhverjum borgarbúa þyki þeir þekkja einhvern úr frændgarði sínum í þessum hópi, svo sem þunglynda fjölskylduföðurinn sem er alltaf með bók í smíðum. Stundum verður brings- malaskottan honum um megn og þá siglir hann út í vita til að fá að vera í friði. Fleiri verur eru þarna á sveimi sem búa sömuleiðis yfir kunnuglegum eiginleikum; Filifjonkan hefur áhyggjur af öllu, Pjakkur er hrekkja- lómur sem leggur sig fram um að koma öllu í bál og brand, Bísamrottan þykist allra gáf- uðust og Hemúllinn röltir um með stækk- unarglerið sitt og hefur engan áhuga á því sem gerist fyrir utan hans þrönga heim. Ég el þá von í brjósti að borgarstjóri ráði einmitt Hemúlinn til að fara yfir reikninga borgarinnar og athuga hvar heppilegast er að skera niður. Hann virðist einmitt nógu einbeittur til að geta valdið því verkefni. Aukin samskipti við Múmíndælinga gætu svo sannarlega komið Reykvíkingum og reyndar allri þjóðinni til góða því þeir eiga það sameiginlegt með okkur að hafa oft þurft að glíma við óblíð náttúruöfl. Eldgos hafa leikið þá grátt, flóðbylgja kom eitt sinn öllu á flot og sökkti þá til að mynda leikhús- inu þeirra. Margir óttuðust síðan heimsendi þegar spurnir bárust af því að halastjarna væri á leiðinni. Þó hafa íbúar Múmíndals alltaf búið yfir nægum innri styrk til að sigr- ast á erfiðleikunum. Satt best að segja vil ég ganga eilítið lengra en að Reykvíkingar taki aðeins upp vina- bæjarsamband við Múmíndal. Morrinn, sem kemur með veturinn, hefur nú fyrir margt löngu haft tvöfaldan ríkisborgararétt og virðist verja stærstum hluta ársins hér á landi. Ég vil að Múmíndælingar og Reykvík- ingar hafi allir tvöfaldan ríkisborgararétt og geti litið á bæði Múmíndal og Reykjavík sem heimili sitt. Við erum hvort eð er svo lík að vart má á milli sjá. Ekki væri ónýtt að Sumardagurinn fyrsti yrði alltaf haldinn hátíðlegur með því að Múmínmamma og borgarstjóri skiptust á skeljum úr sinni heimabyggð og síðan snæddum við öll saman sultu beint úr krús- inni, eins og Múmíndælingar gera gjarnan. Í Múmíndalnum er það nefnilega oftast það litla sem gleður. MEÐ Gerður Kristný Guðjónsdóttir Rithöfundur og skáld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.