SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 32
Ólík upplifun af hruninu Við gatnamótin á Kópaskeri sést greinilega hve stórt sveitarfélagið Norðurþing er. Íbúar á Raufarhöfn þurfa því um langan veg að fara ætli þeir sér að „skreppa" á Húsavík. Frá hruni bankanna fyrir tæp- um tveimur árum hefur mikið verið fjallað um slæma stöðu íbúa á suðvesturhorni landsins. Atvinnu- leysi er meira en Íslendingar hafa áður upplifað og skulda- staða heimilanna slæm. Hins vegar hafa íbúar á norðaust- urhorni landsins ekki upplifað hrunið á sama hátt. Þar nær hrunið miklu lengra aftur og tengist ekki fjármálakerfinu heldur sjávarútveginum, undirstöðuatvinnugrein Ís- lendinga. Lítið sem ekkert atvinnuleysi er á Kópaskeri og Raufarhöfn og fáir eða engir bændur hafa brugðið búi í Öxarfirði og Kelduhverfi. Hins vegar eru öll aðföng mun dýrari en áður á sama tíma og lítið hærra verð fæst fyrir afurðirnar. En íbú- arnir sem blaðamaður Morg- unblaðsins ræddi við bera sig vel og kvarta ekki. Fréttaskýring Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is 32 8. ágúst 2010 K ristbjörg Sigurðardóttir rak um árabil versl- unina Bakka á Kópaskeri ásamt eiginmanni sínum Óla Birni Einarssyni. Þau fluttu hins vegar suður síðastliðið haust aðallega vegna óánægju sinnar með þróun skólamála á Kópaskeri en á síðasta ári var samþykkt að alli bekkir grunnskólans yrðu í Lundi í Öxarfirði, í um 30 km fjarlægð frá Kópa- skeri. Skólasvæðið nær allt frá Kelduhverfi út á Mel- rakkasléttu. Kristbjörg segir að flutningurinn hafi ekki komið til af góðu en hún hefur alla tíð átt heima fyrir norðan, fyrst á bænum Núpskötlu á Melrakkasléttu, þar sem hún ólst upp, en síðustu tuttugu ár á Kópaskeri. Óli Björn ólst upp í Öxarfirðinum þar sem fjölskylda hans hefur stundað búskap um langa hríð. Óviðunandi skerðing á grunnþjónustu Annað hafi hins vegar ekki verið í stöðunni þar sem þau hjón gátu ekki sætt sig við að grunnskóli á Kópaskeri yrði alfarið lagður af. Flutningur skólans hafi verið óvið- unandi skerðing á grunnþjónustu við íbúa svæðisins auk fyrirsjáanlegra afleiðinga þess á ýmsa aðra starfsemi og þjónustu í þorpinu, bæði opinbera og aðra. Mikil umræða var um ákvörðun sveitarstjórnar Norð- urþings að flytja skólastarfið alfarið í Lund og voru menn alls ekki á eitt sáttir vegna þessa. Íbúar á Kópa- skeri voru flestir alfarið á móti flutningnum. Segir Kristbjörg ákvörðunina hafa verið tekna af fólki sem býr annars staðar í sveitarfélaginu, fólki sem ekki virtist hafa skilning á aðstæðum eða því hvernig þorpssamfélag virkar og sér finnist það að leggja skólann niður virðing- arleysi gagnvart því frumkvöðlastarfi sem unnið hafi verið í skólanum á Kópaskeri á árum áður. „Þetta er að mínu mati ekki aðferðin til að fjölga íbúum sem er þó kjarni málsins.“ Fólki hefur fækkað mjög á svæðinu og segir Kristbjörg að íbúarnir séu að eldast og því ekki lík- ur á fólksfjölgun á næstu árum nema nýtt fólk flytji þangað. Var fylgjandi sameiningu en hefur snúist hugur „Ég var fyrir sameiningu Norðurþings eindreginn sam- einingarsinni. Ég taldi m.a. að með henni myndi þjón- ustan batna og stjórnsýslan verða faglegri sem kom á daginn að varð nú síður en svo. Þetta olli gífurlegum vonbrigðum ásamt því að upplifa þessa aðför að sam- félaginu sínu sem lokun skólans var.“ Kristbjörg sat á þessum tíma í sveitarstjórn Norð- urþings fyrir Samfylkinguna og óháða. Hún segir að Flutningur kom ekki til af góðu Kristbjörg Sigurðardóttir dvelur á heimaslóðum í sumar. Bæði á bænum Núpskötlu á Melrakkasléttu og Kópaskeri. Morgunblaðið/Gúna ’ Þetta var ekki heppilegasti tím- inn til að fara frá Kópaskeri, í miðju hruni, en við hreinlega gátum ekki sætt okkur við hvernig farið var með þorpið okkar. Reyndar vorum við heppin, fengum bæði vinnu og íbúð á leigu. Hvert framhaldið verður á síðan eftir að koma í ljós.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.