SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 22

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 22
þekking á virkjun jarðhita sem við flytj- um nú út til annarra þjóða. Í 100 mw orkuveri á Reykjanesi er jarðvarminn að- eins nýttur að litlu leyti, megnið af orkunni rennur þar sem sjóðheitur sjór í stokk til sjávar. Búið er að kaupa viðbót- argræjur fyrir nokkra milljarða sem safna ryki og óvíst hvað gert verður því auð- lindin er ekki talin þola meira álag til lengdar. Þetta er annað vinnulag en tíðk- aðist þegar Hitaveita Suðurnesja var þjónustustofnun sveitarfélaganna sem byggðu hana upp – þegar frábært starfslið sigraðist á tækniörðugleikum og skóp þekkingu sem nú er útflutningsvara og gæti orðið auðsuppspretta fyrir gróðap- unga sem engan þátt áttu í þeirri sköp- un.“ Er ekki nauðsynlegt fyrir Íslendinga á þessum tímapunkti að skapa þjóðinni gjaldeyristekjur til þess að standa undir afborgunum af tröllauknum erlendum lánum? Er ekki ljóst að ef ekki koma inn erlendir fjárfestar eiga lífskjör eftir að skerðast verulega hér á landi á næstu árum? „Hin tröllauknu erlendu lán eru um- deild, ekki bara hversu háar upphæðir sé um að ræða heldur einnig hvort „við“ eigum að borga þau og hvort við getum það. Þurfum við ekki fyrst að leysa það hvort við viljum taka á okkur skuldir einkafyrirtækja? Hvaða afleiðingar mun það hafa á næstu kynslóðir ef við munum þurfa að selja öll auðæfin okkar til að þóknast kröfuhöfum – kröfuhöfum sem margir voru þegar búnir að græða vel á viðskiptum hér? Mér fannst það mjög uppörvandi þegar ég heyrði að Barack Obama hefði fyrir um tveimur vikum breytt lögum í Bandaríkj- unum. Hann sagði að bandaríska þjóðin þyrfti, vegna þessara laga, aldrei framar að borga reikning vegna mistakanna á Wall Street. Skattgreiðendur þyrftu ekki framar að borga brúsann af mistökum viðskiptalífsins. Punktur. Ef stór fjár- málastofnun fer á hausinn munu banda- rísk lög hindra það að allt hagkerfið drag- ist ofan í svaðið, fari með í fallinu. Hann sagði: „Við verðum öllu heldur að vinda ofan af klúðrinu. Og við munum setja nýjar reglur sem tryggja að ekkert fyr- irtæki sé verndað vegna þess að það sé „too big to fail“.“ Ef íslenskir stjórnmálamenn vilja fara að óskum þjóðar sinnar þurfa þeir að finna leiðir til að verja aðgang að orku- lindum jafnvel þótt þeir þurfi að breyta lögum. Við búum í heimi þar sem komm- únismi og kapítalismi hafa runnið sitt skeið á enda og það þarf nýsköpun í stefnu þjóðarinnar sem bjargar okkur í okkar einstæðu aðstæðum. Þetta kallar á hugrekki. Er það rétt að við getum ekki sjálf byggt upp atvinnutækifæri hér? Ég heyrði áhugaverða hugmynd um daginn: Fyrst peningar voru fluttir út í stórum stíl fyrir hrun, m.a. af lífeyrissjóðunum, hvers vegna nota lífeyrissjóðirnir ekki ið- gjöldin sem innheimt eru af launafólki til þess að fjárfesta í atvinnuuppbyggingu hér á landi?“ Pétur H. Blöndal þingmaður hefur tal- að um að annað af tvennu gerist eignist opinberir aðilar hlut Magma Energy í HS Orku. Annaðhvort stöðvist fram- kvæmdir í orkugeiranum eða skuldsetn- ing í greininni vaxi sem er ærin fyrir. Hvernig sérðu fyrir þér framtíð orku- nýtingar á Íslandi? „Mér finnst ekki bara ein lausn við vandanum. Íslenskir vísindamenn segja að ef við byggjum tvö álver í viðbót séum við líklegast búin að nota alla þá jarð- varmaorku sem við höfum. Finnst einhverjum, eins og Árna Sig- fússyni, ekki frekja að ákveða núna að taka orku frá svona mörgum svæðum í svona langan tíma? Hvað ef barnabörn hans hafa eitthvað annað í huga? Við myndum heldur ekki standa við gefin lof- 22 8. ágúst 2010 „Málið er að mér finnst bara vanta svo frjósemi og hugmyndir,“ segir Björk. „Það er hægt að gera svo margt annað. Hér að neðan kemur listi sem er unninn upp úr fyrirtækjahugmyndum sem hafa komið frá sprotafyrirtækjum, ný- sköpunar- og atvinnuuppfinningafólki og fjár- festum um allt land.“ Hefst svo upptalningin. „Það er hægt að selja vatn, t.d í orku- og te- drykki. Við gætum framleitt litlar færanlegar jarðvarmavirkjanir til útflutnings, heilsuböð, við gætum ræktað matvöru sem krefst mikils vatns, ilmvötn, linsuvökva, snyrtivörur. Við gætum gefið gróðurhúsum sama afslátt á raf- magni og stóriðjan fær, stefnt að því að allt grænmeti á Íslandi sé íslenskt, hægt er að fram- leiða barnamat, gæludýramat, frostþurrkuð prótein fyrir matvæla-, lyfja- og efnaiðnað þar sem nóg er af próteinum úr fiskafgöngum og afgöngum frá sláturhúsum. Þessi framleiðsla þarf mikla orku og gufu í þurrkun. Binding CO2 til að framleiða íblöndunarefni fyrir bensín. Við gætum orðið brautryðjendur í umhverf- isvænum vörum eins og endurnýtingu á bagga- plasti og öðru plasti til að framleiða vegastikur og aðrar vörur. Við gætum endurnýtt sorp og búið til bioolíu og biokol. Svo eru hugbún- aðarlausnir eins og tungumálakennsla á netinu, gagnabankar, hugbúnaður fyrir tónlistar- og kvikmyndaiðnað, sem hjálpa foreldrum að hjálpa börnum að stýra leikja- og netnotkun, hugbúnaður til að hjálpa lögreglunni við að berjast við barnaníðinga, leitarbúnaður fyrir lögreglu, tónlistarsala, ýmiss konar hugbún- aður til að gera skipum, heimilum og far- artækjum kleift að nýta orku betur og draga þannig úr orkunotkun, veðurspárforrit, endur- hanna rafmagnstöfluna og gera fólki kleift að fylgjast með rafmagnsnotkun, leitarbúnaður fyrir umfjöllun á netinu, fjármálahugbúnaður fyrir einstaklinga, gagnaver, teiknimyndagerð, tölvuleikjagerð, kafbátaframleiðsla, ræktun á bláskel. Svo eru auðvitað endalausir mögu- leikar tengdir læknisþjónustu, ferðaþjónustu og kennslu, t.d. nýting gufu og/eða heits vatns og virkjun alls hugvitsins, reynsluþekkingar á vettvangi. Svo er það íslensk hönnun á barna- leikföngum sem eru framleidd eftir fairtrade- stöðlum í þróunarríkjum, nútímavæðing heil- brigðisþjónustunnar með gagnageymslu í tölvuskýinu, leikjavél sem býr til leiki með því að nýta sér gervigreind, hlusta á netið og tengja saman viðfangsefni og skynjun og tilfinningar, undirvagn fyrir rafmagnsbíl sem getur keyrt á hlið, grænasta gagnageymsla í heimi fyrir staf- ræn gögn, rafmagnslyftur fyrir ruslabíla sem gera ruslabílinn miklu umhverfisvænni og hljóðlátari, búa til húð til að græða sár úr fisk- roði, steinasöfn, Vatnajökulsþjóðgarður, list- og menningarviðburðir úti í náttúrunni, skóli/ rannsóknarsetur um loftslagsbreytingar þar sem jöklarnir okkar eru skólabókardæmi um áhrif loftslagsbreytinga, steinateppi í gólf, klæðning t.d. í sundlaugar.“ Frjósemi og hugmyndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.