SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 49

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 49
8. ágúst 2010 49 Kvikmynd hefur verið gerð upp úr bók Gilbert og engin önnur en Holly- wood-stjarnan Julia Roberts sem leikur hana. Blaðamaður spurði Gilbert hvort það væri ekki undarleg tilfinning að sjá slíka stjörnu leika sig. „Jú, svolítið, svo vægt sé til orða tekið,“ segir Gilbert og skellihlær. Hún finni þó ekki beinlínis fyrir því að myndin fjalli um hana sjálfa. „Ég á ekki erfitt með að greina muninn milli mín og Juliu Roberts,“ bætir hún við. Gilbert hefur séð kvikmyndina, finnst hún fylgja bókinni vel og á von á því að fólk muni kunna að meta hana. – Ráðfærði Julia Roberts sig eitthvað við þig varðandi hlutverkið? „Já, við skrifuðumst á, það er skemmtilega gamaldags aðferð. Hún var með ákveðnar hugmyndir eftir lestur bókarinnar og ég held að það sjáist greinilega á bókinni að ég er ekki mjög flókin persóna. Mér fannst sem ég ætti ekki að skipta mér of mikið af myndinni,“ svarar Gilbert en kvikmynd- in verður frumsýnd hér á landi í haust. Nýjasta bók Gilbert, Committed: A Sceptic Makes Peace with Mar- riage, kom út í janúar sl. í Bandaríkjunum. Gilbert segir hana óbeint fram- hald af Borða, biðja, elska en bókin fjallar um hjónabandið, eins og titill- inn gefur til kynna. Gerir greinarmun á sér og Juliu Roberts Elizabeth Gilbert finnst að vonum sérkennilegt að sjá stjörnuna Julia Ro- berts leika sig enda sé ekki erfitt að greina muninn milli þeirra. allt saman. Það var mjög dýrt að láta af þessu verða og ég hefði ekki getað gert þetta, sérstaklega eftir skilnað sem reyndist mér dýr, ef ég hefði ekki feng- ið fyrirframgreiðslu hjá útgefandanum mínum. Ég sagði honum að ég vildi skrifa um þetta en að ég vissi ekki hvernig ferðalagið myndi enda,“ svarar Gilbert. Hún hafi kynnt grunn- hugmyndina fyrir útgefandanum, að hún vildi eyða fjórum mánuðum í hverju landi, þ.e. Ítalíu, Indlandi og Indónesíu og kynna sér ólíkar hliðar menningarinnar í þeim löndum og læra að njóta, elska og biðja, svo að segja. Fyrirframgreiðslan dugði fyrir ferðalag- inu. „Ég hef hitt marga sem lagt hafa í ferðalag um heiminn án þess að hafa fengið fyrirframgreiðslu frá útgefanda,“ segir Gilbert og hlær. Fáir þeirra hafi virst vera ríkir. „Ég þekki margt fólk sem fórnað hefur miklu til að geta ferðast um heiminn. Þetta snýst um forgangsröðun í lífinu.“ Aftur á skauta -Hefur þú hitt marga sem lesið hafa bókina þína og ákveðið í framhaldi að breyta lífi sínu og leggja í svona ferða- lag? „Já, ég hef gert það. Ég held að bókin hafi minnt fólk á það sem það vissi fyr- ir um sjálft sig en leitt hjá sér. Þetta er áminning um að ástríðu sé þörf í lífinu, fólk fer að velta því fyrir sér af hverju það sé á þeim stað sem það er í lífinu,“ segir Gilbert. Fólk átti sig á því að ekki sé of seint að breyta lífi sínu og njóta þess. „Sérstaklega hvað konur varðar, þær þurfa nánast leyfi frá einhverju yf- irvaldi til að girnast eitthvað, hafa langanir og þrár og vilja gera ákveðna hluti. Margir lýsa því þannig að þá hafi langað að gera eitthvað tiltekið í langan tíma og það þarf ekki endilega að fela í sér að yfirgefa maka sinn og heimili og ferðast um heiminn þveran og endi- langan. Fyrir suma er það eitthvað til- tölulega einfalt. Ein af mínum eftirlæt- issögum er af konu sem kom til mín og sagðist hafa notið þess mest af öllu í lífinu að renna sér á skautum en hefði ekki gert það í tuttugu ár. Hún sagðist hafa lesið bókina mína og spurt sjálfa sig að því af hverju hún hefði neitað sér um þetta, það eina sem hefði veitt henni fullkomna hamingju. Hún fór því á námskeið í skautadansi, 45 ára göm- ul, og stundar núna listdans á skautum þrisvar í viku. Þannig endar sú saga, hún fékk ekki ólympíugull heldur tókst henni að minna sig á hver hún væri,“ segir Gilbert og hlær. -Kanntu að meta lífið betur eftir þessa reynslu? „Ég hef alltaf kunnað að meta lífið og ein af ástæðum þess að ég fór í ferða- lagið var sú að ég var farin að glata þeirri tilfinningu, var í mikilli lægð og kannaðist ekki við sjálfa mig lengur. Ég myndi segja að ég hafi endurheimt þann hluta af sjálfri mér, ákveðna hlið á mér sem ég hef alltaf metið mikils og óttaðist að ég hefði glatað að eilífu. Ég get óhikað sagt að líf mitt sé tvískipt, þ.e. fyrir og eftir þessa ferð. Ég lærði ákveðna hluti og þroskaðist, náði innri friði og áttaði mig betur á því hver ég væri. Ég vil ekki vera of dramatísk en ákveðnir viðburðir breyttu lífi mínu. Ég vann ákveðna sigra á þessu ferðalagi sem verða með mér alla tíð.“ Bandaríski rithöfundurinn Elizabeth Gilbert sagði starfi þínu lausu, skildi við allt og lagði upp í langferð í leit að hamingjunni. Hún lýsir þeirri leit og niðurstöðu hennar í bókinni Borða, biðja, elska. ’ Konur þurfa nánast leyfi frá einhverju yfirvaldi til að girn- ast eitthvað, hafa langanir og þrár og vilja gera ákveðna hluti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.