SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 33

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Gúna Hófaskarðsleið og þéttbýli Úrslit í kosningu um sameiningu í janúar 2006 Grunnkort: LMÍ Árið 2006 voru fjögur sveitarfélög sameinuð í eitt, Norðurþing. Sveitarfélagið er 3.730 km2 að stærð og við sameiningu voru íbúarnir 3.027 talsins. Árið 2010 eru þeir 2.926. Þar af eru tölur fyrir hvern þéttbýlisstað eftirfarandi: Raufarhöfn HófaskarðsleiðKópasker Melrakkaslétta Hólaheiði Afrétt Hófaskarð Hraunhafnartangi 2006 / 2010 2006 / 2010 2006 / 2010 2.500 2000 1500 1000 500 100 50 0 2.269 2.229 140 126 228 217 58%40% 2% 54%44% 2% 52%44% 3% 78% 21% 2% Þáttaka: Raufarhöfn 58,20% Öxarfjarðarhreppur 75,30% Kelduneshreppur 80,80% Húsavíkurbær 28,30% Húsavík Kópasker Raufarhöfn Öxarfjarðarheiði 8. ágúst 2010 33 Hópur fólks vinnur nú hörðum höndum við að gera upp Óskarsstöð, fyrrum verstöð Óskars Halldórssonar á Rauf- arhöfn. Meðal þeirra sem koma að verkefninu er Snorri Hilmarsson, leik- myndahönnuður. Hann segir að hóp- urinn hafi ekki þurft að greiða hátt verð fyrir húsið gegn loforði um að það yrði gert upp. Í húsinu rak Óskar, sem oft var nefndur Íslandsbersi líkt og Halldór Laxness nefnir hann í Guðsgjafaþulu, síldarsöltun. Húsið var flutt hingað til lands með skútu frá Noregi árið 1949. Snorri veit ekki hvað það mun taka langan tíma að gera húsið upp. Það fari allt eftir efnum og aðstæðum þeirra sem eiga húsið. Hefur framtakið vakið verðskuldaða athygli og fagna heimamenn þessu þar sem húsið var farið að láta á sjá. Ytra byrði þess er ekki í góðu ástandi en innandyra er það mun betur farið. Óskarsstöð tekur stakkaskiptum Unnið við Óskarsstöð en húsið var áður síldarverstöð þar sem síld var söltuð á neðri hæðinni en starfsmenn bjuggu uppi. Morgunblaðið/Gúna þrátt fyrir að sitja í sveitarstjórn og menningar- og fræðslunefnd hafi hún ekki verið upplýst um hvað til stóð fyrr en tillagan var kynnt opinberlega í apríl 2008. Ekkert hafi verið hlustað á hvað íbúar á Kópaskeri höfðu um málið að segja. Ákvörðunin hafi verið tekin þrátt fyrir mótmæli íbúa, sem birtust bæði á fundum, í bréfa- skriftum og undirskriftarlistum. Hún segir að Rannsóknar- og þróunarstofnun Há- skólans á Akureyri hafi unnið mjög viðamikla skýrslu um skólasamfélagið við Öxarfjörð á sínum tíma sem kostuð var af sveitarfélaginu en hafði lítið gildi þegar upp var staðið þar sem sveitarstjórn Norðurþings hefði í raun hunsað skýrsluna. Þrátt fyrir að hafa flutt frá Kópaskeri er Kristbjörg fyrir norðan í sumar en þau Óli Björn eiga þrjár fast- eignir á Kópaskeri. Tvær þeirra leigja þau út, það er hús- næði verslunarinnar á staðnum og íbúðarhúsið sem þau bjuggu í áður en fjölskyldan fluttist á brott. Í þriðja hús- inu, Víðihóli, hafa þau rekið orlofsíbúðir í nokkur ár. Segir hún að úr því sem komið er sé það ágætis tilbreyt- ing að vera á höfuðborgarsvæðinu á vetrum en fyrir norðan á sumrin. Strandveiðarnar hafa breytt miklu Synir hennar eru báðir á strandveiðum frá Kópaskeri en nokkuð margir bátar stunda þær veiðar í Norðurþingi. Segir hún strandveiðarnar hafa breytt miklu í atvinnu- málum á stöðum eins og Kópaskeri. Hún telur að fjölmargir möguleikar séu fyrir hendi í ferðaþjónustu á Melrakkasléttu. Nýr vegur, Hófaskarðs- leið, sem tengir saman byggðirnar við Öxarfjörð og Þist- ilfjörð, muni breyta miklu sérstaklega fyrir íbúana aust- an hennar og muni auðvelda samstarf milli svæðanna í ýmsu tilliti en einnig verði þetta falleg leið og áhugaverð fyrir ferðamenn. Tækifærin séu því til staðar, það þurfi hins vegar fleira fólk og fjármuni til að nýta þau. Að sögn Kristbjargar hefur Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga staðið að ýmsum verkefnum, bæði á eigin vegum og í samstarfi við aðra. Þar megi nefna GEBRIS- verkefnið sem félagið kom að ásamt þátttakendum frá Finnlandi, Svíþjóð og Noregi. Meginmarkmið GEBRIS-verkefnisins var að bæta ný- sköpunarumhverfið og nýta það betur til þess að mæta þörfum viðskipta- og atvinnulífs á hverju svæði. Verk- efnið byggðist að verulegu leyti á sérstökum viðfangs- efnum á hverju svæði. Viðfangsefni Atvinnuþróun- arfélagsins var á sviði ferðaþjónustu, allt frá Jökulsá austur á Bakkafjörð. Megináhersla AÞ í GEBRIS var þróun og kynning á áhugaverðum „pökkum“ í þjónustu og afþreyingu á umræddu svæði. Að byggja ímynd í kringum norðrið og heimskautsbaug, náttúru og menningu. Megintilgangurinn var að efla ferðaþjónustu og um leið mannlíf á svæðinu. Á strandlengju svæðisins, sem er aðeins þrjá km frá heimskautsbaug þar sem hún liggur nyrst, eru fjögur þorp með íbúafjölda frá um 100-400. Afsprengi verkefnisins, sem nú er í raun lokið, er fé- lagsskapur sem nefnist Norðurhjari, samtök fyrirtækja og einstaklinga í ferðaþjónustu á svæðinu frá Keldu- hverfi austur að Bakkafirði. Á þessu svæði eru margar náttúruperlur og undanfarin þrjú ár hefur Norð- urhjarahópurinn unnið að því að þróa ferðaþjónustuna, auka afþreyingu og bæta aðstöðu fyrir ferðafólk. Aðspurð hvaða áhrif hún telji að álver á Bakka muni hafa á samfélagið á Kópaskeri telur hún að það myndi litlu breyta. „Sveitarfélagið Norðurþing verður vænt- anlega fjárhagslega sterkara en ég tel að önnur áhrif verði lítil í sveitarfélaginu fjær Húsavík.“ Áratuga löng kreppa á landsbyggðinni Kristbjörg segir að kreppan hafi ekki hafist á þessu svæði haustið 2008 líkt og gerðist á suðvesturhorni landsins. „Hrunið átti sér stað hér fyrir löngu og má rekja það allt aftur til þess tíma er kvótakerfinu var komið á. Lands- byggðin hefur víða búið við áratuga langa kreppu og bankahrunið breytti engu um fasteignaverð hér hjá okkur.“ Hún segir að á meðan góðærið ríkti fyrir sunnan hafi aðgengi að lánsfé ekki verið það sama á norðaust- urhorninu aðallega vegna þess hvað fasteignir séu lágt metnar. „Að vísu fengust bílalán jafnt og annars staðar og margir hafa þurft að súpa seyðið af því. Þá hefur vantað þolinmótt fjármagn fyrir frumkvöðla á lands- byggðinni til að auðvelda þeim að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.“ En Kristbjörg segir að íbúar á Norðausturlandi hafi hins vegar ekki komist hjá afleiðingum hrunsins, til að mynda verðhækkunum á öllum aðföngum og eldsneyti sem skipti miklu fyrir fólk sem sækja þurfi þjónustu um langan veg. „Þetta var ekki heppilegasti tíminn til að fara frá Kópaskeri, í miðju hruni, en við hreinlega gátum ekki sætt okkur við hvernig farið var með þorpið okkar. Reyndar vorum við heppin, fengum bæði vinnu og íbúð á leigu. Hvert framhaldið verður á síðan eftir að koma í ljós,“ segir Kristbjörg sem hefur skráð sig í fjarnám við Háskólann á Hólum næsta vetur. Þar ætlar hún að nema ferðamálafræði enda telur hún tækifærin næg á heima- slóðum á þeim vettvangi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.