SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 6
6 8. ágúst 2010
Í ár hafa verið gerðar nokkrar
breytingar á dagskránni frá fyrri
árum, nýir viðburðir koma inn og
aðrir detta út. Einhverjir hafa ef-
laust rekið augun í það að ekki
verður haldin Regnbogamessa
að þessu sinni en hún hefur ann-
ars verið fastur liður á sunnu-
deginum. Þorvaldur Kristinsson,
forseti Hinsegin daga, segir
ástæðuna einfaldlega þá að
þegar nýju húskaparlögin gengu
í gildi 27. júní síðastliðinn var
haldin Regnbogahátíð í Fríkirkj-
unni og því þótti skipuleggj-
endum allt í lagi að sleppa
messunni í ár. Enda hafi alltaf
verið lögð áhersla á að halda í
fjölbreytnina, svona í anda há-
tíðarinnar.
Á sunnudeginum verður hins
vegar haldin í fyrsta sinn fjöl-
skylduhátíð í Viðey, svokölluð
Regnbogahátíð. Þrátt fyrir hið
mikla ævintýri sem gleðigangan
er hefur borið á því að börnin fái
ekki notið hennar til fulls vegna
smæðar sinnar og mannfjöldans
og því kviknaði sú hugmynd að
halda sérstakan viðburð fyrir
börnin. Leikarar munu skemmta
börnunum og farið verður í leiki
en einnig verða regnbogaveit-
ingar í Viðeyjarstofu.
Nokkrar breytingar frá dagskrá fyrri ára
Í ár verður í fyrsta skipti boðið upp á sérstaka fjölskylduhátíð.
Morgunblaðið/Heiddi
N
ú standa yfir Hinsegin dagar í Reykjavík
með tilheyrandi viðburðaveislu, gleði
og látum. Hinsegin dagar, eða Gay
Pride, eru hátíð samkynhneigðra, tví-
kynhneigðra, transfólks og allra þeirra sem styðja
réttindabaráttu þeirra. Hér á Íslandi og eflaust víð-
ar, má segja að Hinsegin dagar, sem ná hámarki
sínu í hinni miklu Gleðigöngu, séu hátíð okkar
allra. Stoltgöngur eru farnar árlega út um allan
heim en þátttaka þjóðarinnar í fögnuðinum hér á
landi hlýtur að teljast einsdæmi. Samkvæmt tölum
frá Hinsegin dögum hafa frá árinu 2006 60-80 þús-
und manns mætt árlega niður í miðbæ til að berja
gönguna augum og samfagna með samkyn-
hneigðum samlöndum sínum.
Ástandið víða hræðilegt
Víða annars staðar í heiminum er ástandið ekki
jafngott. Í löndum eins og Serbíu, Rússlandi, Lett-
landi, Taívan og Ísrael hefur göngufólk mætt harðri
andspyrnu, mótmælum og ofbeldi. Fordómana má
oftast rekja til trúarbragða eða öfgasinnaðra stjórn-
valda, sem ofsækja þá sem eru öðruvísi og falla ekki
undir þröngar skilgreiningar um það hvernig mað-
urinn á að vera og ekki vera. Þorvaldur Kristinsson,
forseti Hinsegin daga, segir til að mynda þróunina í
málefnum samkynhneigðra í Austur-Evrópulönd-
unum hafa verið svipaða og hér á landi en vegna
áhrifa kaþólsku kirkjunnar og fasískra hreyfinga í
sumum þessum ríkjum, sé hún langtum hægari.
Hann vill meina að í samanburði við mörg önnur
vestræn og „frjálslynd“ lönd stöndum við einnig
mun betur að vígi en mörg þeirra. „Samkyn-
hneigðir hér á landi lifa miklu opnara lífi en margir
annars staðar á Vesturlöndum, t.d. í Bandaríkj-
unum. Þó svo að þú sért kominn út úr skápnum þar
og lifir þínu lífi með þínum vinum, áttu kannski
fjölskyldu einhvers staðar í órafjarlægð sem veit
ekkert. Hér heima erum við svo fá að „þjóð veit þá
þrír vita“. Ungir krakkar sem eru að stíga sín fyrstu
skref út úr skápnum vita að mamma og pabbi
munu frétta það ansi fljótt og þó að þetta verði
kannski erfið skref gerir það þau að sterkari ein-
staklingum að vera opinská.“
Ennþá að mörgu að huga
Þegar lög ný hjúskaparlög gengu í gildi í júní mátti
víða lesa og heyra að nú væri algjöru jafnræði náð.
Samtöl við homma, lesbíur, tvíkynhneigða og
transfólk gefa þó annað til kynna. Ein lesbía sagði í
samtali að baráttunni yrði aldrei lokið, það yrði að
minnsta kosti að berjast fyrir því að viðhalda jafn-
réttinu og kveða niður fordóma. Þorvaldur segir að
mörgu að huga. „Mér verður stundum hugsað til
þess að við höfum kannski gleymt okkur í þessu
ferli og farið of geyst. Í baráttunni við að fá jafnrétti
á við gagnkynhneigt fólk höfum við ef til vill beygt
okkur undir gildismat meirihlutans og tileinkað
okkur lífsstíl sem er ekki endilega sá sem við vilj-
um.“
Hann er þó sammála því að í dag sé óvíða betra að
vera „hinsegin“ en á Íslandi.
Að vera
hinsegin
Gott að
vera glaður
á Íslandi
Fjöldi þeirra sem koma og samfagna samkynhneigðum í Gleðigöngunni hér á landi er einsdæmi í heiminum.
Morgunblaðið/Júlíus
Litir, gleði og væntumþykja á Hinsegin dögum.
Morgunblaðið/Heiddi
Vikuspegill
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is
Laugardagur 7. ágúst
11.00 – Upphitun
á Barböru
14.00 – Gleðiganga
15.30 – Hinsegin hátíð
við Arnarhól
23.00 – Hinsegin
hátíðardansleikur –
DJ Páll Óskar á Nasa,
kvennaball í Iðnó,
dansleikur á Barböru
Sunnudagur 8. ágúst
12.00 – Dansleikur á
Barböru fram eftir degi
13.00 – Regnboga-
hátíð fjölskyldunnar
í Viðey
Dagskrá Hinsegin daga
www.noatun.is
FLJÓTLEGT
OG GOTT
Hafðu það
gott með
Nóatúni
NÝTT KJÖTFARS
KR./KG
545
779
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚR
KJÖTBORÐI
30%
afsláttur