SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Side 10
10 8. ágúst 2010
E
f boðskapurinn um spýtustrákinn Gosa yrði að áhríns-
orðum í tilviki Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, að nef hans
lengdist í hvert sinn sem hann segði ósatt, þá ætti nefið á
hinum fallna útrásarvíkingi fullt erindi í Heimsmetabók
Guinness. Af ókunnum ástæðum birti morgunútvarp Rásar 2
drottningarviðtal við Jón Ásgeir nú á fimmtudagsmorgun, þar sem
svo mikið er víst, að sannleikurinn var ekki leiðarljós þessa við-
mælanda RÚV. Ekkert nýtt kom fram í þessu viðtali Sveins Helga-
sonar við Jón Ásgeir. Stytta hefði mátt viðtalið í þessar upphróp-
anir: Ó! Ó! Æ! Æ! Aumingja ég! Allir eru vondir við mig!
Sveinn spurði hvort eignalistinn sem hann skilaði til dómara í
Bretlandi, sem sýndi eignir upp á rúmlega 200 milljónir króna,
gæti talist trúverðugur. Mað-
urinn sem bar í eiðsvörnum
vitnisburði fyrir sama dómara
að hann hefði undanfarin ár
eytt á milli 55 og 66 milljónum
króna á mánuði í persónulega
neyslu svaraði bara að hann
hefði lagt allt undir og svo
hefði farið sem fór. Þetta var
nota bene sama morgun og
Viðskiptablaðið birti úttekt um
hverjir væru helstu auðmenn
Íslands í dag og byggðu blaða-
mennirnir úttekt sína á auð-
legðarsköttum í álagningarskrá
skattsins. Þar skipar umrædd-
ur Jón Ásgeir fjórða sæti listans
og er áætlað að hann eigi 653
milljónir króna í eignum á Ís-
landi, umfram skuldir. Hvern-
ig stemma þessar upplýsingar
við eiðsvarinn vitnisburð Jóns
Ásgeirs?
Svo skautað sé hratt yfir nef-
lengingarorðræðu Jóns Ásgeirs, áður en ég kem að því sem ég tel
vera eina lykilatriðið í viðtalinu, þá sagðist hann ekki tjá sig um
málefni Gaums! Hann sagði að Hagar kæmu sér ekki við! Hann
sagði að hann stjórnaði engu hjá 365 miðlum! Hann sagðist ekki
hafa haft Lárus Welding í vasanum og hann hefði ekki stjórnað
Glitni! Fyndið?! Hvað finnst ykur, lesendur góðir?
Sveinn spurði: „Jón Ásgeir. Svo ég spyrji bara hreint út. Áttu
peninga í skattaskjólum, Jómfrúaeyjum, Tortola eða skúffufyr-
irtækjum sem eru falin einhvers staðar?“ Og maðurinn sem átti
eitt sinn lystisnekkjuna Thee Viking sem skráð var á Tortola og
sagði Agli Helgasyni í Silfrinu haustið 2008 að hann hefði aldrei
heyrt minnst á eyjuna Tortola svaraði: „Nei. Ég myndi geta gefið
skattayfirvöldum umboð til að leita alls staðar í heiminum að fjár-
munum í mínu nafni.“ „Í MÍNU NAFNI“ tel ég að sé lykilatriði og
rifja upp það sem ég fjallaði um í pistli fyrir viku, bókina Den of
Thieves (Þjófabælið). Dennis Levine, einn úr fjórmenninga-
glæpaklíkunni á Wall Street sem bókin fjallaði um, sá nú auðveld-
lega við þessu „Í mínu nafni“. Hann flaug einfaldlega til Bahama-
eyja, stofnaði þar í svissneskum banka reikning í nafni Mr.
Diamond (Herra Demantur) og selflutti reiðufé á milli, því aldrei
mátti vera hægt að rekja slóð peninganna til hans. Hann flutti svo
gríðarlega fjármuni reglulega til baka til New York, sem hann flutti
í 100 dollara seðlum frá eyjunum. Og hvað gerði hann við hið illa
fengna fé? Jú, hann keypti sér toppíbúð á Manhattan; hann keypti
sér lúxusbíla og hann barst mikið á. En hann misreiknaði sig á því
hver var rannsóknargeta og viljinn til eftirfylgni hjá bandaríska
verðbréfaeftirlitinu og bandaríska saksóknaranum. Það var til
mynd af Mr. Diamond í Bank Leu og það var einfaldlega hægt að fá
starfsmenn bankans til þess að bera saman myndina sem til var í
bankanum við myndir af Dennis Levine og staðfesta að um einn og
sama manninn væri að ræða.
Það skyldi þó ekki vera að það hafi ekki bara verið bruðl, íburð-
ur, sólundun, snobb og sýndarmennska sem þeir Jóhannesson og
Levine áttu sameiginlegt, heldur einnig aðferðin til þess að fela
slóð peninganna? Spyr sú sem ekki veit. En hitt veit ég, að ég held
að skattayfirvöld og rannsakendur hér á landi ættu að taka Jón Ás-
geir á orðinu, þiggja tilboð hans um umboð og vaða inn í skatta-
skjólin, hvar sem er í heiminum, vopnuð ljósmyndum af kapp-
anum og kanna hvort þessi hluti frásagnar hans af eigin fjármálum
átti við álíka mikil rök að styðjast og restin af viðtalinu rýra.
Ó!Ó! Æ!Æ!
Aumingja ég!
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Jón ÁsgeirGosi
’
Skattayfirvöld
og rannsak-
endur hér
á landi ættu að taka
Jón Ásgeir á orðinu,
þiggja tilboð hans um
umboð og vaða inn
í skattaskjólin, hvar
sem er í heiminum
7.00 Sef vært í friði og ró, sæll
og glaður.
8.30 Vakna mjög mjúklega
við að lítill kútur strýkur á mér
mallann og vekur mig blíðlega
með orðunum: „Pabbi minn.“
9.20 Eftir burstun og morg-
unmat förum við með litla kút
til dagmömmu. Syngjum alla
leið lagið um afa minn og ömmu
mína sem úti á bakka búa. Þetta
er lítið ferðalag sem kemur mér
og minni alltaf vel inn í daginn.
10.00 Mættur á fund með
tölvukörlum. Ótrúlegt hvað
tæknin getur verið snúin, ein-
földustu hlutir verða eins og
flóknustu völundarhús, enda-
lausir ranghalar og u-beygjur.
Ég er ennþá að hrista hausinn
yfir vitleysisganginum.
11.00 Fer heim og fæ mér
ilmandi kaffisopa með frúnni al-
veg eins og í auglýsingunni, við
skröltum svo saman niður í búð
þar sem mjög annasamur dagur
er framundan. Hversdagsróm-
antíkin svífur yfir okkur.
12.30 Eftir að hafa farið yfir
stöðu dagsins, afgreitt viðtal
ásamt spúsu minni vegna skó-
línunar Kron by Kronkron og
undirbúið komu nýju skónna
sem eru að lenda í Kron og
Kronkron er ég sendur í útrétt-
ingar að kaupa perur, gólfsápu
og tuskur; á stóru heimili verður
peran að vera í lagi – og gólfin
hrein.
13.15 Kem við á Gló í list-
húsinu og sæki þar ljúffengan
hráfæðismat, mæli eindregið
með því. Gott fyrir sál og lík-
ama.
14.00 Fyrsti sendiferðabíll-
inn er kominn, nýja skólínan er
komin í hús. Skónum er komið
inn, ótrúlegur spenningur er
farinn að myndast fyrir að kíkja
í kassana, þetta er alltaf jafn
gaman.
15.00 Seinni bíllinn kominn
í hús og Kron er orðin sprengfull
af glæsilegum vetrarskóm.
16.00 Litli kútur sóttur til
dagmömmu. Dáist að heimsins
bestu dagmömmu fyrir óbilandi
lífshamingju og dugnað. Litli
kútur sæll og glaður með
spænskukunnáttu í farteskinu.
17.00 Aftur mættur í vinn-
una núna í gervi ruslakarlsins.
Nokkrar ferðir á Sorpu með
tóma kassa.
18.15 Mættur á Rauðhettu
og úlfinn að klippa nokkra
hausa, mér finnst alltaf mjög
notalegt að taka aðeins í skærin.
Eftir notalegt spjall og nokkrar
klippur og einn kaffi labba ég
slakur út í lífið með bros á vör.
22.00 Klára seinustu mæl-
ingar á kjól með Hugrúnu
minni. Tilbúinn í prufugerð.
23.00 Klára annars mjög
skemmtilegt viðtal við Morg-
unblaðið, líður svolítið eins og
stilltum skólapilt að skrifa í dag-
bókina sína.
23.40 Bursta tennurnar, þvæ
mér í framan og fer að sofa.
Góða nótt og dreymi ykkur fal-
lega.
Dagur í lífi Magna Þorsteinssonar, annars eiganda Kron og Kronkron
Morgunblaðið/Ernir
Nesti og nýir skór
Götulistakona setur upp skrýt-
inn svip á opnunarhátíð listahá-
tíðarinnar Edinburgh Fringe í
Edinborg. Hátíðin var sett í dag
og stendur út ágústmánuð en
hátíðin hefur verið haldin frá
árinu 1947. Edinburgh Fringe er
þekkt fyrir að vera stærsta
listahátíð í heimi en þar koma
fram þúsundir listamanna af
ýmsum ólíkum sviðum, rithöf-
undar, leikarar og margir fleiri.
Veröldin
Listahátíð í
Edinborg
Þessi kann sannarlega að gretta sig og geifla.