SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 31

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Blaðsíða 31
8. ágúst 2010 31 Þ að vekur athygli þegar ferðast er um landið hversu gróskan er mikil. Er þá bæði átt við mannlíf og náttúru. Hvarvetna hefur fólk notað hugarflugið og um leið nýtt sér þá sérstöðu sem felst í sögu og umhverfi hvers staðar til að hafa ofan af fyrir ferðafólki, en afla sér á sama tíma lífsviðurværis. En gróskan er líka mikil í náttúrunni, auðvitað vegna þess að vorið og sumarið hafa verið með eindæmum veðursæl, en einnig vegna þess að beitin er orðin hófleg. Fyrir vikið má víða sjá birki og víði spretta upp. Nú er kominn tími til að menn velti því fyrir sér, hvort það eigi ekki að friða ákveðin landsvæði og leyfa landinu að vaxa upp – eins og náttúran sjálf mælir fyrir um. Menn geta horft til Hornstranda í þeim efnum, en þangað sækja Íslendingar á sumrin til að flýja skark- ala þéttbýlisins og upplifa kyrrðina, ósnortna náttúru, stórbrotið landslag og auðugt dýralíf. Á þeim stað hefur tekist að tengja söguna og náttúruna ferðamennskunni, en halda á sama tíma fast í sérkenni þjóðarinnar, gamlar hefðir og gestrisnina í fámenninu. Ferðalangar leggja ekki land undir fót til að upplifa það sama og þeir fá heima hjá sér. Þeir sækjast eftir nýrri upplifun, en hún verður að vera raunveruleg, ekki byggð á sjónleik sem settur er á svið til þess eins að kreista aura út úr þeim. Þá situr ekkert eftir. Þegar Íslendingar ferðast um landið, þá eru þeir öðrum þræði að kynnast sjálfum sér, grafast fyrir um rætur sínar og upp- runa. Íslendingar þurfa að eiga sér athvarf, þar sem þeir geta horfið til náttúrunnar, án þess að siðmenningin elti þá. Það er til dæmis ekki bara óþarft, heldur beinlínis óæskilegt að koma alls staðar upp farsímasambandi. Staðarhaldarar á Hornbjargsvita sýttu það mjög, þegar þar var skyndilega komið farsímasamband á tjaldstæðinu. Hver ferðast alla leið að ysta hafi til þess að tala í síma? Og eftir að hafa ekið hringinn um landið, að Vestfjörðum meðtöldum, þar sem vegirnir hanga utan í fjallshlíðunum, eins og Þorgeir Hávarsson á hvönninni forðum, þá stendur upp úr hversu stór partur af landslaginu vegirnir eru. Mikilvægt er að skynsamlega sé staðið að lagningu vega, sem hlykkjast um landið þvert og endilangt. Það verður að gera skýran greinarmun á vegum, sem eru beinlínis nytjavegir, þar sem umferðin þarf að ganga hratt og örugglega fyrir sig, og vegum sem liggja um afskekktari slóðir og er fyrst og fremst ætlað að greiða leiðina að náttúruperlum. Slíkir vegir liggja oft um afar falleg og ósnortin landsvæði og er það mikið lýti ef þeir eru áberandi í landslaginu. Það getur raunar verið upplifun í sjálfu sér að keyra gömlu slóðana, sem falla inn í lands- lagið; þá ekur maður hægar og kemst einhvern veginn nær náttúrunni. Gott dæmi um það er til dæmis gamli vegurinn vestan við Dettifoss, sem hlykkjast eins og árfarvegur um landslagið, og er niðurgrafinn þannig að hann sést varla, nema maður sé staddur á honum. Það fer um mann hrollur þegar maður sér hátt vegstæðið og svarta mölina, sem sker sig úr landslaginu og á að koma í staðinn fyrir gamla vegslóðann. Það má á milli vera. Vegirnir mega ekki verða að aðalatriði í landslaginu, nánast eins og framlenging á Miklubrautinni. Þá verða náttúruperlurnar svipaðir áningarstaðir og vegasjoppur. Hvað er þá eftir af upplif- uninni? Athvarf í náttúrunni „Það var sagt um íslenskan forsætis- ráðherra að blaðrið í honum væri efnahagsvandamál. Nú hefur utan- ríkisráðherra tekið við keflinu.“ Hallur Hallsson í aðsendri grein í Morgunblaðinu um framgöngu Össurar Skarphéðinssonar í Bruss- el. „Hann er í einu orði sagt: Flott- ur!“ Leikstjórinn Erlendur Sveinsson um Thor Vil- hjálmsson, en hann gerði heimildarmynd um píslargöngu skáldsins til Santiago de Comp- ostela á Spáni og talar Thor átta tungumál í myndinni. „Þegar maðurinn minn var jarðaður fyrir nokkrum ár- um, þá sagði presturinn í ræðunni að hann hefði verið afi 180 barna. Ég fór bara hjá mér.“ Marta Her- mannsdóttir dag- móðir, sem hef- ur passað vel yfir 200 börn. „Ég verð með trukk í göngunni og við erum að hanna stærsta kjól Ís- landsögunnar, hann verður örugg- lega hátt í sjö metrar á hæð og ég mun klæðast honum.“ Páll Óskar Hjálmtýsson ætti ekki að fara framhjá neinum, að minnsta kosti ekki óséður, í Gay Pride-göngunni á laug- ardag. „Eitt sinn var maður sem vildi titla sig brautryðj- andi, en við vildum ekki leyfa það. Svo kom á daginn að hann vann við að ryðja brautir á Keflavík- urflugvelli.“ Guðrún María Guð- mundsdóttir, rit- stjóri já.is, um titlana sem fólk vill nota í síma- skránni. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal um nútímasögu og atburði sem efst eru á baugi um þessar mundir. Hann sagði í Bandaríkjunum að þegar Bretar börðust við nazistana árið 1940 hefðu þeir þá þegar verið „junior partner“ Bandaríkjanna í þeirri baráttu. Þessi orð hafa margan Bretann sært, enda var þetta þegar þeir stóðu einir og van- búnir, með eldmóð og staðfestu forsætisráð- herrans sem beittasta vopn. Frakkland var í mol- um, Rússar með griðasamninga við Hitler og yfirburðir Þjóðverja miklir og Bandaríkin enn með hlutleysisfánann á lofti. Þetta var þegar barátta breskra flugliða í orrustunni um Bretland kallaði á þá einkunn frá Winston Churchill að aldrei áður hefðu svo margir átt svo fáum jafn stóra skuld að gjalda. Bandaríkin komu ekki inn í stríðið fyrr en eftir óvænta árás Japana á Perluhöfn. Og það tók þá nokkurn tíma að ná vopnum sínum. En upp úr 1943 mátti þó öllum vera orðið ljóst að þeir myndu framvegis vera í aðalhlutverkinu í þeim hildarleik og ráða mestu um lyktir hans og um þróun verald- armála á árunum á eftir. Seinni mistök breska forsætisráðherrans eru jafnvel enn undarlegri. Hann var að fjalla um stöð- una fyrir botni Miðjarðarhafsins og var að lýsa hættuþáttum þar og nefndi þá sérstaklega að Íran hefði nú þegar fullgerð kjarnorkuvopn í fórum sínum. Þetta hefðu verið mikil tíðindi og þótti ótrúlegt að þau væru kynnt á óformlegum borg- arafundi þar sem forsætisráðherann svaraði spurningum almennings. Enda hafa ummælin ver- ið dregin til baka í snatri. Forsætisráðherrann og skrifstofa hans hafa beðist afsökunar á ummæl- unum og gefið skýringu á hvað það var sem for- sætisráðherrann hafði ætlað sér að segja, þótt svona hafi tekist til. Þessi dæmi um mistök eru mun alvarlegri en það að íslenski forsætisráð- herrann hafi ekki vitað hvar Jón Sigurðsson var fæddur og valið 17. júní til að láta þjóðina vita af vanþekkingu sinni. Enda datt Downingstræti 10 ekki í hug að láta eins og slysin hafi aldrei orðið með því að breyta útskriftum frá atburðunum, eins og gert var á Íslandi, þegar Austurvallarræðunni var breytt án nokkurra skýringa. Litli og stóri mætast á úthafinu. Morgunblaðið/Ómar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.