SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Side 36
36 8. ágúst 2010
E
inar Þór Gunnlaugsson kvik-
myndagerðarmaður hefur und-
anfarin ár unnið að gerð heim-
ildarmyndarinnar Norð Vestur,
sem verður frumsýnd í haust. Þá eru 15 ár
liðin frá því að snjóflóðið féll á Flateyri, en
myndin segir björgunarsögu flóðsins.
Einar er sjálfur frá Hvilft í Önundarfirði.
Hann sleit barnsskónum á Flateyri, gekk
þar í skóla og þar eru hans æskustöðvar.
Hann þurfti að hugsa sig lengi um áður en
hann fór út í gerð myndarinnar, þar sem
atburðirnir standa honum afar nærri. En
nú verður ekki aftur snúið.
Fyrst leitarhundarnir
Einar útskrifaðist frá London Film School
árið 1992 með leikstjórn sem aðalfag og fór
síðan í meistaranám í City University í
London þaðan sem hann útskrifaðist í list-
rænni stjórnun og stefnumörkun árið 2001.
Hann var einn fimm leikstjóra Villiljóss,
sem frumsýnd var árið 2001, og hefur
leikstýrt tveimur leiknum íslenskum
kvikmyndum til viðbótar; Þriðja nafninu
frá árinu 2003 og Heiðinni frá 2008. Árið
1997 kom út eftir hann heimildarmyndin
Leitarhundar, sem fjallaði um hundana
sem hjálpuðu til við björgunarstörf eftir
snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri árið 1995.
Við gerð þeirrar myndar safnaðist mikið
efni sem Einar nýtir sér í þessari nýjustu
mynd sinni.
Björgunarsagan sögð
Blaðamaður tók hús á Einari í miðbæ
Reykjavíkur til að forvitnast um gerð
myndarinnar Norð Vestur og hvernig til-
finning það er að rifja þessa atburði upp.
Við setjumst við eldhúsborðið og fáum
okkur kaffi.
„Myndin segir björgunarsögu vegna
snjóflóðsins á Flateyri í október 1995,“
segir Einar. „Hún flokkast sem mynd í
fullri lengd og verður um 100 mínútur.
Hún segir líka að hluta til frá byggðinni á
norðanverðum Vestfjörðum, það er að
segja bæjarkjörnunum í kringum Ísafjörð,
sem mér fannst mikilvægt til þess að við
skiljum björgunaraðgerðirnar. Það eru
bæjarfélögin í kring sem eru með björg-
unarsveitir og það eru líka þessi fjöll sem
skilja að og eru illfær á veturna. Ég reyni
að láta það koma fram, hvar staðirnir eru
og hvað þeir eiga sameiginlegt og hvaða
karakter þeir hafa.
Ég segi þó mest frá Flateyri, sem um leið
er lýsandi fyrir bæjarkjarnana í kring, þar
sem sjávarútvegur er aðalatvinnugreinin.
Alls staðar er einn skóli, ein kirkja, eitt
kaupfélag, ein sjoppa og þetta er svipað að
mörgu leyti. Svo aðgreina einstakir atburðir
þessi þorp og sögu þeirra, eins og snjóflóð-
in. Í atvinnusögunni eru það eigendaskipti
á frystihúsum og togurum og fleira, en í að-
alatriðum er þetta mjög svipað.
Ég fékk mikið af myndum frá heima-
mönnum, bæði á Flateyri og nágranna-
byggðum, sem ég nýti í myndinni. Einnig
hefur vinur minn sem er gamall Flateyr-
ingur, Halldór Bragason, lagt mikla vinnu
í að gera þrívíddarmyndir af Flateyri í
réttum hlutföllum, sem gefa góða mynd af
öllum aðstæðum og atburðarásinni.“
Í kjölfar flóðanna
Eins og áður kom fram segir fyrri hluti
myndarinnar björgunarsöguna en sá
seinni fjallar um ýmis málefni sem breytt-
ust eftir flóðin, eða árið sem þau féllu.
„Eitt af því sem breyttist var viðhorf
fólks til rannsókna á snjóflóðavarnagerð
og byggingu snjóflóðavarnargarða, hvern-
ig skilgreina á áfallahjálp og hvaða virkni
eða hlutverk hún hefur,“ segir Einar.
„Þar skapast reynsla hjá verkfræðingum,
hjúkrunarfólki og náttúrlega fjölmiðlum –
og það hefur áhrif á samskipti þeirra. Þessir
stóru atburðir höfðu áhrif á alla þessa mála-
flokka. Og líka á það hvernig björg-
unarsveitirnar skipuleggja sig og hvernig
tæknin spilar inn í öll samskipti. Allir
björgunarsveitarmenn eru komnir með far-
síma og miklar kröfur gerðar um það að all-
ir séu í sambandi. Það var ekki hægt fyrir 20
árum og jafnvel ekki 15 árum.“
Ástæður byggðaröskunar
Einar segir að ýmsar ástæður séu fyrir
fækkun í byggðalaginu: „Þar fléttast sam-
an tækniþróun, almenn byggðaþróun, at-
vinnuþróun og tækifæri til menntunar,
auk náttúruhamfaranna. Það varð fækkun
á Flateyri eftir flóðið, en það er mikilvægt
að átta sig á því að fleiri þættir spila þar inn
í. Ég reyni að draga þá fram í myndinni.“
Hann segir að margir hafi dregið lær-
dóm af þessum atburðum. „Það er líka til
Björgunar-
sagan á
Flateyri
Heimildarmynd um björgunarsögu
snjóflóðsins á Flateyri 1995 verður frumsýnd
í haust. Leikstjórinn er borinn og barnfæddur
Flateyringur og hefur áður gert heimildar-
mynd um leitarhundana sem komu við sögu
við björgunarstörf eftir snjóflóðin á Flateyri
og í Súðavík.
Sigríður Guðfinna Ásgeirsdóttir
„Eitt af því sem breyttist var viðhorf fólks
til rannsókna á snjóflóðavarnagerð og byggingu
snjóflóðavarnargarða, hvernig skilgreina á
áfallahjálp og hvaða virkni eða hlutverk
hún hefur,“ segir Einar í viðtalinu.