SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Síða 42
42 8. ágúst 2010
hófst samvinna þessara listamanna sem
stendur enn. Fyrsti eftirmáli The
Woman in the Room er stuttmyndin
Dollar Baby, sem King þótti það vel
lukkuð að þeir gerðu heiðursmanna-
samkomulag um að Darabont leikstýrði
og skrifaði aðlögun sögunnar Rita Hay-
worth and the Shawshank Redemp-
tion, einni fjögurra í safninu Different
Seasons. Síðan hafa ekki skilið með
þeim leiðir.
Áður en Darabont sneri sér að leikstjórninni hafði
hann unnið sig í álit sem handritshöfundur mynda á
borð við A Nightmare on Elm Street 3: Dream Warriors,
The Blob og The Fly II. Fyrsta leikstjórnarverkið í fullri
lengd var sjónvarpsmyndin Buried Alive (’90), með Tim
Matheson og Jennifer Jason Leigh. Hún kostaði litlar
tvær milljónir dala en fékk prýðisdóma – þó bólaði ekki á
snilldinni sem átti eftir að koma í ljós. Darabont fylgdi
myndinni eftir með því að gerast handritshöfundur hjá
George Lucas, þar sem hann skrifaði The Young Indiana
Jones’ Chronicles, skammlífa sjónvarpsþáttaröð.
Frægðin var handan við hornið og birtist Darabont í
allri sinni dýrð árið 1995, þegar The Shawshank Re-
demption var frumsýnd við einróma lof gagnrýnenda
sem almennings. Hún var m.a. tilnefnd til Óskarsverð-
launanna sem besta mynd ársins og Darabont fyrir
handritið, en myndin hlaut alls 8 tilnefningar. En þetta
var árið sem Hollywood hélt ekki vatni yfir Forrest
Gump. Ég hvet fólk til að sjá þær á ný og dæma hvor hef-
ur elst betur. Munurinn er sá að Shawshank … er ein-
faldlega ein þeirra hágæðamynda sem maður getur skellt
í tækið hvenær sem er, hún er ætíð jafn fullnægjandi
upplifun – sannkölluð klassík. Forrest Gump er góð sem
barn síns tíma, brennimerkt fljótfærnislegu leikaravali,
að Hanks og Mykelti Williamson undanskildum. Á síðu
gagnabankans IMDb trónir The Shawshank Redemption
hvorki meira né minna en í efsta sæti listans yfir öndveg-
isverk kvikmyndasögunnar, Forrest Gump stendur sig
einnig dável, en er 38 sætum neðar.
Nú tóku við ein fimm róleg ár hjá Darabont, þau hefur
hann m.a. notað til að undirbúa næsta stórvirki, The
Green Mile (’99), sem hann skrifaði og leikstýrði eftir
bók vinar síns, King. Hér segir frá viðskiptum fanga-
L
eikstjórans Franks Darabonts er sárt saknað.
Hann er auðvitað kunnastur fyrir hina ómót-
stæðilegu The Shawshank Redemption, snilld-
arlega kvikmyndagerð samnefndrar nóvellu
eftir Stephen King.
Margir kenna rithöfundinn afkastamikla við hroll-
vekjur, sem er ekki alls kostar rétt; þó þær séu fyrirferð-
armiklar þá fæst hann við margt annað. The Shawshank
Redemption fjallar t.d. um mann sem er dæmdur saklaus
í fangelsi, nýtir þar tímann til að grafa sér flóttaleið sam-
fara því sem hann bruggar erkifjandmanni sínum, fang-
elsisstjóranum, grimmileg en sanngjörn örlög. Sagan og
myndin á einnig mýkri hliðar, einlæga vináttu þess sak-
lausa og eins samfanga hans, stórkostlegan flótta og að
lokum langþráða endurfundi vinanna utan múrsins, þar
sem pálmatrén blakta í hlýrri strandgolunni í Mexíkó.
Áætlunin hefur gengið fyllilega upp. Sögufléttan er skot-
held, spennandi, fyndin, prýdd frábærum persónum.
Hún er sjálfsagt í hópi snjöllustu verka Kings en margir
eru á því að leikstjórinn Frank Darabont hafi gert mynd
sem tekur sögunni fram og byggja þá skoðun m.a. á
mögnuðu leikaravali og leikstjórn og handriti sem fangar
ádeiluna, óréttlætið, hefndina og vináttuna á einkar
sannfærandi hátt. Öll þau fjölmörgu blæbrigði sem gera
bókina hrífandi komast til skila með láði. Ef þú hefur
ekki séð The Shawshank Redemption, þá láttu það ekki
bíða lengi, hún er einhver besta og ánægjulegasta af-
þreying sem þú getur átt von á að sjá á lífsleiðinni og fáar
myndir hafa verið sýndar um dagana sem skilja mann
eftir í jafn ósviknu sólskinsskapi.
Darabont er fæddur í flóttamannabúðum í bænum
Montbéliard í Frakklandi í ársbyrjun 1959, sonur ung-
verskra hjóna sem flýðu land eftir uppreisnina 1956, sem
brotin var niður af Sovétinu. Darabont flutti ungur með
fjölskyldunni vestur um haf, þar sem hún settist að í Los
Angeles. Hann er því aðeins rétt liðlega fimmtugur og
ætti aldursins vegna að geta bætt við mörgum góðum
myndum til viðbótar á mishæðóttum, hrífandi ferli sem
hefur m.a. fært honum þrjár Óskarstilnefningar auk
fjölda annarra og tug verðlauna hér og þar.
Um tvítugt kynntist Darabont kvikmyndagerð og ein
sú fyrsta sem hann var viðriðinn var The Woman in the
Room. Hún er byggð á sögu úr smásagnasafninu Night
Shift, eftir Stephen King, og þarna við upphaf ferilsins
varða við mislitan hóp fanga á dauðadeild og yfirnátt-
úrlega sem hádramatíska hluti sem henda þá flesta. The
Green Mile var tilnefnd sem besta mynd ársins og Dara-
bont fékk aðra tilnefningu til Óskars fyrir handritið.
Myndin nálgast Shawshank að gæðum, en afleitur og
óþarfur lokakafli skemmir heildaráhrifin. Gott ráð að
stöðva diskinn þegar kemur að eftirmálanum. Myndin
nýtur einnig mikillar hylli hjá neytendum IMDb, situr í
91. sæti.
The Majestic var frumsýnd 2001, en nú var enginn
King að styðjast við. Darabont leikstýrir Jim Carrey að
vísu röggsamlega en myndin fór framhjá án þess að gára
yfirborðið.
Darabont er frægur í kvikmyndaborginni fyrir hand-
ritaráðgjöf og hefur hann m.a. lagt sínar „læknishendur“
á mörg verka Stevens Spielberg, líkt og Minority Report
og Saving Private Ryan. Spielberg fékk hann einnig til að
skrifa handritið Indiana Jones and the Kingdom of the
Crystal Skull, og líkaði vel það sem Darabont gerði. Sama
varð ekki sagt um viðbrögð framleiðandans, George Lu-
cas, sem hafnaði því með öllu og allir vita hvílík hörm-
ung varð til. Árið 2007 leiddu þeir enn saman hesta sína
King og Darabont, afraksturinn varð hrollvekjan The
Mist, sem á sín augnablik en kemst hvergi nærri fyrri
samvinnu þessara ágætu manna. Hvað sem því líður þá
hyggjast þeir vinna saman að The Long Walk, sem er
smásaga eftir King, tímasetningin hefur ekki verið
ákveðin.
Kvikmyndaunnendur bíða og vonast eftir að aftur
vænkist hagur Darabonts, enginn efast um hæfileikana.
Um þessar mundir hefur hann nokkur álitleg járn í eld-
inum, m.a. hina frægu sögu Rays Bradbury, The Ill-
ustrated Man, sem áður var kvikmynduð á 7. áratugnum
með Rod Steiger og Claire Bloom og lélegum árangri.
Darabont hefur einnig gengið með í kollinum endurgerð
Fahrenheit 451, annarrar frægrar sögu eftir Bradbury,
sem var filmuð árið 1966 af François Truffaut með Oscar
Werner og Julie Christie. Samkvæmt nýjustu fréttum
verður það þó að öllum líkindum mynd um föðurlands-
svikarann, hina hötuðu Tokyo Rose, sem útvarpaði jap-
önskum áróðri yfir til landa sinna í síðari heimsstyrjöld-
inni, sem verður næsta verkefni leikstjórans góða. Það
skiptir ekki mestu máli hvað barnið á að heita, árang-
urinn verður tilhlökkunarefni.
Morgan Freeman og Tim Burton í eftirminnilegum hlutverkum sínum í Shawshank Redemption.
Hvað nagar
Frank
Darabont?
Kvikmyndaáhugamenn
bíða eftir nýju stórvirki frá
Darabont, höfundi einnar
bestu myndar kvikmynda-
sögunnar, en fátt bendir
til að biðinni sé að ljúka.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Frank Darabont
Kvikmyndir
Leikstjóri: Frank Darabont. Aðal-
hlutverk: Tom Hanks, Michael Clarke
Duncan, James Cromwell. 190 mín. 1999.
Nýr fangi kemur í fangelsið þar sem
Paul Edgecombe (Hanks), ræður ríkjum
yfir dauðadeildinni, sem er kölluð Græna
mílan vegna þess að gólfið frá fanga-
geymslunni að rafmagnsstólnum er lagt
eiturgrænum dúk. Sá nýi er tröllvaxinn
svertingi með lundarfar barns og hefur
hann verið sakaður um að nauðga og
myrða tvær ungar stúlkur. Áður en langt
um líður tekur yfirfangavörðinn að
gruna að hann geti verið saklaus. Græna
mílan er falleg saga um vináttu og yf-
irnáttúrulega hæfileika og hvernig þeir
koma að notum við ýtrustu aðstæður.
Darabont vinnur úr því með mestu
ágætum án þess að grípa til neinna sér-
stakra flugeldasýninga. Hér er flest gert á
lágstemmdum nótum og af mikilli og
djúpri virðingu fyrir King. Darabont
reynir talsvert á trúgirni áhorfandans en
misbýður honum eiginlega aldrei nema í
upphafs- og lokakaflanum, er vel hefðu
mátt missa sig. Leikhópurinn er frábær,
en senuþjófurinn er Duncan sem leikur
svertingjann risavaxna með barnshjartað
og lýsir af þeim kærleika sem er kjarni
sögunnar. Tom Hanks og Michael Clarke Duncan í Green Mile.
Reuters
Kraftaverk í Köldufjöllum
Kvikmyndaklassík The Green Mile bbbbm