SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Side 47
8. ágúst 2010 47
LÁRÉTT
1. Vinningur sem ljóð Jón Helgason vann að hluta.
(11)
6. Endist ys einhvern veginn í haug. (8)
9. Brekkan upp að Öskju er í Reykjavík. (11)
10. Hróp gerð lægri hjá ómeðhöndlaðri. (6)
12. Pappír Íslendings eru myndræn framsetning á
landslagi. (9)
13. Klikka á íláti. (6)
15. Biðinni er einhvern veginn lokið hjá barninu. (9)
16. Heilablóðfallsdrag í félagsskap. (7)
17. Grimm sat einhvern veginn við það sem er ekki
jafn mikið. (8)
19. Hvæsa: „manst að anda“ við að vera gerður úr
einhverju. (11)
21. Komast krónur einhvern veginn í skífu. (8)
25. Fá gjörð í gegnum brenglaðar ráðleggingar. (7)
26. Borðaði skít og ryk frá þeim sem voru ekki rænu-
litlar. (7)
27. Fyrsta klifur í þessum mánuði. (5)
28. Fá til baka innvols úr kastara frá samtengdum. (7)
30. Fyrir ofan hóp er ómegin. (7)
31. Með kurrt og pí og par inn kemur iðnaðarmað-
urinn. (8)
32. Með lýsingarorð hverfðu á braut. Heitirðu því? (7)
33. Stalín stekkur í milli með vopnin. (6)
34. Útlendingurinn er grey með gráðu. (7)
LÓÐRÉTT
2. Dirfska hjá Agli ruglast vegna veiðitækis. (11)
3. Drattaðist þegar pabbi fékk gull frá Gunnari. (8)
4. Drepur heilagur angi með örvæntingu. (11)
5. Heilsa og fæ það, að sögn, sem er ambrósía. (8)
7. Daníel heiðra með ávexti. (5)
8. Fýld og huglaus út af því sem gert er úr rúgmjöli. (7)
11. P.S. Ek Katli í flæktan hnút. (9)
14. Svei, lesa og skrifa ekki fullum stöfum! (10)
18. Uppsprettan sem gefur pening. (11)
19. Sætindi úr grasi? (9)
20. Dýrast fari berlega í flækju hjá stólpum. (10)
21. Ær er með gaspur og rugl um sjómann. (8)
22. Kembdir í burtu og kláraðir. (10)
23. Karlkynsrjúpa gerir strik í reikninginn út af kryddi.
(5)
24. Veiði set hjá einni með óþolinmæði. (8)
29. Vá ávöxturinn í leikhúsverkinu. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í
umslagi merktu: Krossgáta Morg-
unblaðsins, Hádegismóum 2,
110 Reykjavík. Frestur til að skila
úrlausn krossgátu 8. ágúst rennur
út fimmtudaginn 12. ágúst. Nafn
vinningshafans birtist í blaðinu
15. ágúst. Heppinn þátttakandi
hlýtur bók í vinning. Vinningshafi krossgátunnar 1.
ágúst er Valdís Björgvinsdóttir. Hún hlýtur í verðlaun
bókina Friðlaus eftir Lee Child. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Á Politiken-mótinu í Kaup-
mannahöfn sem nú stendur yfir
hylla Danir sinn fremsta skák-
mann, Bent Larsen sem varð 75
ára hinn 5. mars sl. Meðal atriða
á dagskrá tileinkaðri honum er
einvígi sem Peter Heine Nielsen
teflir við Peter Svidler. Þeir tefla
nokkrar stuttar skákir sem hefj-
ast með hinni svonefndu Lar-
sen-byrjun, 1. b3.
Larsen sló í gegn á Ólympíu-
mótinu í Moskvu 1956 en þar
náði hann bestum árangri 1.
borðs manna og var þegar í stað
útnefndur stórmeistari. Hann
var lengi að gera upp við sig
hvort hann ætti að leggja skák-
ina fyrir sig en þegar sú ákvörð-
un var tekin héldu honum engin
bönd; hann varð efstur með
öðrum á millisvæðamóti í Amst-
erdam 1964 og gaf þá skýringu á
frammistöðu sinni að fyrir mót-
ið hafi flestir keppendur legið
yfir nýjustu bókum Boleslavskís
en hann hafi gramsað í skákum
gömlu meistaranna og dregið
úr pússi sínu ýmsar fornar
byrjanir eins og t.d. Vínartafl. Á
þessum árum var Bent einn
harðvítugasti mótarefurinn og
fyrir það afrek að vinna fimm
mót í röð árið 1967 hlaut hann
fyrstur manna Skák-Óskarinn.
Í Belgrad árið 1970 tefldi
hann á 1. borði fyrir heimsliðið
gegn Sovétríkjunum fyrir ofan
Bobby Fischer sem eftir mikið
japl, jaml og fuður gaf heið-
urssætið eftir. Kom það mjög á
óvart. Þó Larsen tapaði í aðeins
17 leikjum annarri skák sinni
gegn þáverandi heimsmeistara
Boris Spasskí var hann fljótur
að jafna metin og lagði síðan
Stein að velli þegar Spasskí tók
sér frí í lokaumferðinni. Sov-
étmenn unnu þó 20½ : 19½.
Í júlí 1971 háði Larsen hið
fræga einvígi við Fischer í Den-
ver og tapaði 0:6. Var aldrei eftir
það litli glaði drengurinn, eins
og einhver orðaði það. Hann var
aldrei með aðstoðarmann en
treysti á mátt sinn og megin og
fyrir vikið var hann dálítið
brokkgengur í einvígjum á þess-
um árum. Vann þó nokkra góða
sigra, t.a.m. yfir Portich ’68 og
Tal ’69. Þriðja sigurinn á milli-
svæðamóti vann hann í Biel
1976.
Eftir Bent Larsen liggur frá-
bært verk á sviði skákbók-
mennta. Í ritinu „50 valdar
skákir“ dró hann athygli les-
enda að dálæti sínu á framrás
kantpeðanna. Hann var geysi-
lega sterkur í endatöflum og
baráttuvilji hans var nánast
ódrepandi. Vissulega tapa ég oft,
sagði hann einu sinni, en ekki
jafn mörgum hálfum vinningum
eins og keppinautarnir, bætti
hann við. Leikbragð eitt í mið-
tafli má rekja til Larsens og
kemur það fram í eftirfarandi
skák (og fyrir fróðleikfúsa –
gegn Van Scheltinga ’64) þegar
honum tekst að opna línu fyrir
drottningu. Það hefst með
leiknum 20. g4! og inniheldur
m.a. hinn eitursvala varnarleik,
28. Ka1! Lokin eru snilldarleg.
Larsen vann þetta mót – Friðrik
varð í 2. sæti.
Lugano 1970:
Bent Larsen – Lubomir Kava-
lek
Larsens-byrjun
1. b3 c5 2. Bb2 Rc6 3. c4 e5 4.
g3 d6 5. Bg2 Rge7 6. e3 g6 7. Re2
Bg7 8. Rbc3 O-O 9. d3 Be6 10.
Rd5 Dd7 11. h5 f5 12. Dd2 Hae8
13. h5 b5 14. hxg6 hxg6 15. Rec3
bxc4 16. dxc4 e4 17. O-O-O Re5
18. Rf4 Hd8 19. Kb1 Bf7 20. g4
Rxg4 21. f3 exf3 22. Bxf3 Re5 23.
Dh2 Bxc4 24. bxc4 Rxf3 25.
Dh7+ Kf7 26. Rcd5 Hg8 27. Rxe7
Hb8 28. Ka1 Dxe7 29. Dxg6+ Kf8
30. Re6+ Dxe6 31. Bxg7+ Ke7
32. Bf8+ Hgxf8 33. Hh7+
– og Kavalek gafst upp. Eftir
33. … Hf7 kemur 34. Hxf7+ Dxf7
35. Dxd6+ o.s.frv.
Danir hylla Bent Larsen 75 ára
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang